Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 102

Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 102
102 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014 ✝ Sverrir Úlfssonfæddist á Úlf- ljótsvatni í Grafn- ingi 10. nóvember 1937. Hann lést á heimili sínu mið- vikudaginn 3. des- ember 2014. Foreldrar hans voru Vilborg Kol- beinsdóttir kenn- ari, fædd 27. októ- ber 1909, dáin 1992 og Úlf Jón Skúli Jónsson skrif- stofumaður, fæddur 12. júlí 1906, dáinn 1973. Sverrir var 4. barn foreldra sinna en systkini hans eru: 1) Unnur Gréta, f. 30.6. 1932, 2) Edda, f. 10.6. 1933, sambýlismaður hennar Hall- björn Bergmann, 3) Nanna Úlfs- dóttir, f. 25.2. 1936, 4) Áslaug Herdís Úlfsdóttir, f. 7.8. 1939, eiginmaður hennar Guðni Þor- varður Sigurðsson, 5) Kolbrún Úlfsdóttir, f. 28.11. 1945, eig- inmaður hennar er Jóhannes Haraldsson, 6) Geirlaug Halla Úlfsdóttir, f. 9.1. 1952, eig- inmaður hennar er Peter Mears 1958. Börn þeirra eru: a) Árni Guðmundsson, f. 30.5. 1982. b) Óðinn Guðmundsson, f. 5.9. 1985. 2) Kolbeinn Sverrisson, f. 2.1. 1967, eiginkona hans er Þóranna Halldórsdóttir, f. 28.2. 1966. Sonur þeirra er Halldór Kolbeinsson, f. 16.11. 2003. Dóttir Svandísar er Sigrún Ólafsdóttir, f. 22.4. 1965, eig- inmaður hennar er Skúli Lárus Skúlason, f. 21.1. 1959, sonur þeirra er Guðmundur Margeir Skúlason, f. 11.7. 1986. Sverrir ólst upp að Brú- arlandi við Ljósafoss. Hann gekk í Ljósafossskóla og síðar í Iðnskóla Reykjavíkur. Lengst af starfaði hann sem bifreið- arstjóri, fyrst hjá Bifreiðastöð Steindórs og síðar Sérleyf- isbílum Helga Péturs. Hann starfaði einnig sem lagerstjóri hjá Hagkaup frá árinu 1982 til ársins 1992. Hann hóf svo störf hjá Strætisvögnum Reykjavíkur árið 1993 þar sem hann vann til loka árs 2007. Sverrir var mikill náttúruunnandi og vann mörg sumur við að keyra erlenda ferðamenn um hálendi Íslands. Jarðarförin fer fram í Grafar- vogskirkju, fimmtudaginn 11. desember, klukkan 13. og búa þau í Eng- landi. Sverrir kvæntist 22.8. 1981 Svandísi Halls- dóttur, f. 25.2. 1943. Fyrstu árin bjuggu þau á Gröf í Miklaholtshreppi. Árið 1982 fluttust þau til Reykjavík- ur. Börn þeirra hjóna eru: 1) Hrafn- hildur Sverrisdóttir, f. 18.9. 1981, sambýlismaður hennar er Francisco Da Silva Chipa, f. 27.5. 1974. Dætur þeirra eru: a) Fríða María Da Silva Chipa, f. 18.8. 2011 og b) Íris Linda Da Silva Chipa, f. 15.9. 2011. 2) Ragnar Sverrisson, f. 26.1. 1984, sambýliskona hans er Elsa Petra Björnsdóttir, f. 31.3. 1989. Dóttir þeirra er Svandís Sif Ragnarsdóttir, f. 9.12. 2011. Börn Sverris frá fyrra hjóna- bandi með Helgu Árnadóttur eru: 1) Ragna Sverrisdóttir, f. 14.3. 1961, eiginmaður hennar er Guðmundur Árnason, f. 28.1. Elsku pabbi minn, kletturinn minn, er farinn í ferðlagið sitt. Það eru margar gleðiminningar sem hafa þotið um huga minn síðastliðna daga. Pabbi var mikill Íslendingur og unni ís- lenskri náttúru heitt. Við feng- um að njóta þess við systkinin og fórum saman fjölskyldan í ófáar útilegurnar þar sem land- ið okkar var þrætt. Þótt ég hafi verið ungur man ég þessi ferða- lög eins og þau hefðu verið í gær. Sá gamli ljómaði þegar við keyrðum um óbyggðir og gat hann sagt okkur nafnið á hverri þúfu, slík var þekkingin á land- inu okkar. Pabbi minn var traustur og heiðarlegur maður, hann lagði mikið upp úr því að við kæmum heiðarlega fram og segðum satt, sem var stundum erfitt eftir að ég hefði kannski verið að púkast og prakkarast eins og strákar gera. Pabbi minn var kröftugur maður með mikla og ákveðna rödd sem stundum var erfitt að lesa í. En þegar manni varð á var sá litli sjaldan skammaður, heldur var talað við mann á rólegu nót- unum og hlutirnir útskýrðir, á eftir fylgdi svo oft setningin: „Erum við ekki vinir?“ Sú var nefnilega raunin, þó svo að þetta væri pabbi minn og þetta miklu eldri þá vorum við líka frábærir vinir, hann var trún- aðarvinur minn og ég gat leitað til hans með öll heimsins vandamál, hvort sem það sneri að skóla, vinum, fótboltanum eða stelpukrísa þá tók það pabba minn ekki langan tíma að leiðbeina stráknum sínum. Hann pabbi minn var hrein- skilinn maður, að margra mati jafnvel of hreinskilinn. Hann var mikil tilfinningavera og mátti ekkert aumt sjá, þá gátu tárin streymt niður kinnar. Hann var mikill fjölskyldumað- ur og ég er svo þakklátur fyrir að hafa átt besta pabba í heimi, okkur vantaði aldrei neitt, sama hvað gekk á. Hann lifði fyrir fjölskyldu sína, vann hörð- um höndum, tók ófáar auka- vaktirnar. Sumarfríin hans fóru oft í ferðir um landið með er- lenda ferðamenn sem hann elskaði að gera, sýna túristun- um fallegasta land í heimi. Pabbi minn elskaði fjölskyld- una sína heitt, afabörnin voru honum allt og gáfu honum mik- inn styrk í veikindum sínum. Mamma og pabbi voru meira en makar, þau voru bestu vinir, dunduðu sér mikið, fóru á ófá stefnumótin og ferðuðust mikið saman alla tíð. Það er stórt skarð sem pabbi minn skilur eftir. Svandís mín yngri spyr mik- ið um afa sinn en er glöð að vita að hann sé uppi í skýjunum að passa okkur. Það er engin leið að und- irbúa sig fyrir fráfall ástvinar og það í jólamánuðinum. Pabbi minn var mikið jólabarn og jól- in okkar hafa alla tíð verið haldin hátíðleg með okkar hefð- um. Ég mun gera mitt besta í að við getum haldið gleðileg jól því ég veit að þú hefðir viljað það elsku pabbi minn. Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af mömmu minni, elskunni þinni. Ég mun passa hana fyrir þig og við munum fara í ferðalög, bú- staðaferðir og fá okkur ham- borgara í hádeginu við og við eins og þið dúllurnar gerðuð stundum. Elsku pabbi, takk fyrir allt. Takk fyrir að vera besti pabb- inn. Takk fyrir að vera besti afi fyrir Svandísi Sif. Takk fyrir að vera svona góður vinur. Takk fyrir að vera kletturinn minn. Ég elska þig. Þinn sonur, Ragnar. Elsku Pabbi Með ást þinni kenndir þú mér að elska. Með trausti þínu kenndir þú mér að trúa. Með örlæti þínu kenndir þú mér að gefa. það eru ekki til orð yfir hversu mikið ég sakna þín. Þú varst alltaf til staðar fyrir mig og mína. Þú varst kletturinn minn. Það er ekki hægt að hugsa sér betri pabba eða afa en þig. Ég á margar góðar minningar um þig sem ég á eft- ir að varðveita í hjarta mínu og koma margar upp í hugann núna eins og ferðirnar í sum- arbústaðina sem við fórum nú í sumar og fyrrasumar. Það var svo gaman að ferðast með þér elsku pabbi og fannst þér fátt skemmtilegra en að ferðast um landið þitt. Svo er það minn- ingin um þig og Fríðu Maríu afastelpu þegar þið sátuð sam- an við tölvuna og hlustuðu á Ég á líf eða voruð að púsla saman. Stelpurnar mínar Fríða María og Íris Linda hefðu ekki getað fengið betri afa.Vildi óska að þær hefðu fengið meiri tíma með þér. Ég á eftir að sakna þess að koma heim í Sóleyjarima og sjá þig sitja við eldhúsborðið og lesa blöðin og fá þetta hlýja faðmlag frá þér og sjá þessi hlýju og brosandi augu. Faðm- lag frá þér gerði allt betra. Elsku pabbi við kveðjum þig með miklum söknuði. Ég mun ávalt geyma þig í hjarta mínu og ég veit að þú verður engill- inn minn og átt eftir að vaka yfir mér og fjölskyldu minni. Ég skal hugsa vel um mömmu fyrir þig elsku pabbi. Takk fyrir allt elsku pabbi. þín, Hrafnhildur (skotta) Hann var kallaður snögglega frá okkur og aldrei erum við tilbúin fyrir kveðjustund. Sverrir stjúpfaðir minn hafði átt við heilsuleysi að stríða um árabil en síðustu mánðir voru honum nokkuð góðir. Eftir langan vinnudag voru móðir mín og hann farin að njóta lífs- ins og kusu að verja rólegum tíma sem mest með fjölskyld- unni. Sverrir var náttúruunandi og vissi fátt skemmtilegra en ferðast um landið. Ferðalög með fjölskyldu og vinum um hálendið voru hans bestu stundir. Við eigum margar góð- ar minningar þar sem við hitt- um þau hjónin í sumarbústað eða þegar þau voru á ferðinni með tjaldvagninn sinn. Heimsóknirnar í sveitina voru margar og var ánægjulegt að sjá hvað þær hresstu sál og líkama þegar heilsan fór að versna hjá Sverri. Fyrir rétt rúmum mánuði áttum við hér góða daga sem gott er að minn- ast á kveðjustund. Við hér í Hlíðinni eigum eftir að sakna margs sem var orðið fastur punktur í tilverunni. Þau hjónin voru einstaklega sam- rýnd og nutu þess síðustu árin að vera með börnum og barna- börnum allar þær stundir sem gáfust. Það er með virðingu og hlýju sem við nú kveðjum góðan mann. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Sigrún Ólafsdóttir og fjölskylda. Elsku Sverrir. Hreinskilni, beinskeyttur húmor, góðvild og eilífðarmatarbletturinn á boln- um þínum eru mér efst í huga þegar ég hugsa til þín. Ég vildi óska þess að þú hefðir fengið lengri tíma með okkur og Svan- dísi Sif. Hún spyr mikið um afa sinn enda voruð þið miklir vin- ir. Hún talar um að þú sért uppi í skýjunum og passir okk- ur þar og ég er sannfærð um það. Því þannig varstu alltaf, að passa upp á okkur. Nú hefur Ragnar tekið við því hlutverki og ég er handviss um að þú sért að springa úr stolti af hon- um. Ekki hafa áhyggjur af elskunni þinni, henni Svandísi, hún er í góðum höndum og við pössum vel upp á hana. Hvíldu í friði elsku vinur minn. Ég vil gjarnan lítið ljóð láta af hendi rakna. Eftir kynni afargóð ég alltaf mun þín sakna. (Guðrún V. Gísladóttir) Skarð þitt verður ekki fyllt en minningarnar lifa. Þín tengdadóttir og vinkona, Elsa Petra. Sverrir Úlfsson Því svo Guð heiminn að hann gaf einkason sinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf... ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma, INGIBJÖRG PÉTURSDÓTTIR hjúkrunarkona, áður til heimilis að Einilundi 1, Garðabæ, lést á Landspítalanum Fossvogi að morgni sunnudagsins 30. nóvember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju föstudaginn 12. desember kl. 15.00. Ólafur Tryggvi Magnússon, Magnús Karl Magnússon, Ellý Katrín Guðmundsdóttir, Atli Freyr Magnússon, Steinunn Gestsdóttir, Ásdís Magnúsdóttir, Viðar Halldórsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓSKAR FRIÐBJARNARSON frá Hnífsdal, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestfjarða Ísafirði 4. desember síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 13. desember kl. 11.00. . Fjóla Hannesdóttir, Hannes Óskarsson, Friðbjörn Óskarsson, Guðrún Hreinsdóttir, Aðalsteinn Óskarsson, Guðrún Hermannsdóttir, Indriði Óskarsson, Laufey Ólafsdóttir, Guðmundur Páll Óskarsson, Gerður Einarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær sonur okkar, bróðir og barnabarn, HARALDUR ÓLAFSSON myndlistarnemi, lést á heimili sínu í Stokkhólmi laugardaginn 6. desember. Útför verður auglýst síðar. . Svandís Torfadóttir, Ólafur Þorkell Helgason, Albert Torfi Ólafsson, Arnar Ingi Ólafsson, Else Heike Jóakimsdóttir, Guðjón Guðmundsson, Torfi Jónsson. ✝ Móðir okkar, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR frá Gvendareyjum, síðar húsfreyja í Vesturkoti á Skeiðum, lést á elliheimilinu Grund föstudaginn 29. nóvember. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Börn og tengdabörn. ✝ Ástkær faðir, sonur, bróðir, mágur og frændi, BRYNJAR ÞÓR SIGMUNDSSON, Langholti 18, Reykjanesbæ, lést á heimili sínu miðvikudaginn 3. desember. Útförin fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 16. desember kl. 13.00. Kristrún Ósk Brynjarsdóttir, Sigmundur Brynjar Sigmundsson, Arnbjörg Vignisdóttir, Baldur Arnar Sigmundsson, Erla Arnardóttir, Ása Karitas Baldursdóttir. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN SIGURÐARDÓTTIR, Fossvogsbrún 6, Kópavogi, lést mánudaginn 8. desember. Útförin verður auglýst síðar. Sigrún Alda Michaelsdóttir, Guðjón Ágústsson, Bragi Michaelsson, Auður Ingólfsdóttir, Snorri Guðlaugur Tómasson, Jóna Björg Jónsdóttir, Margrét Sigríður Halldórsdóttir og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GÍSLA MÁS MARINÓSSONAR, Sólvallagötu 12, Keflavík. Erla Ásgrímsdóttir, Óskar Ingi Gíslason, Svanfríður Þóra Gísladóttir, Þórhalla Gísladóttir, Karl Hólm Gíslason, Helgi Már Gíslason, Ingibjörg Erla Þórsdóttir, Hrafnhildur Gísladóttir, Hildigunnur Gísladóttir, Páll Sólberg Eggertsson og barnabörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.