Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
sprungu og lá nýja sprungan eftir
eldri gossprungu. Gosið stóð ekki
lengi og virtist því ljúka um klukk-
an fjögur sömu nótt og það hófst.
Annað hraungos hófst svo í
Holuhrauni 31. ágúst, líklega um
klukkan fjögur um nóttina, og hef-
ur gosið látlaust síðan. Þótt eld-
gosið léti ekki mikið yfir sér í
byrjun þá er þetta orðið mikið gos.
„Þetta eldgos hagar sér öðru
vísi en eiginlega öll þau gos sem
við höfum séð hér á undanförnum
áratugum,“ sagði Páll Einarsson,
jarðeðlisfræðingur og prófessor
við Háskóla Íslands. „Þetta er í
rauninni ósköp friðsælt gos. Það
gengur bara áfram dag eftir dag
með litlum breytingum.“
Kröflueldar (1975-1984) eru
lengsta eldgosatímabil sem núlif-
andi menn hafa orðið vitni að. Páll
sagði að eldgosið í Holuhrauni
hefði hagað sér allt öðruvísi en
Kröflueldar. „Sennilega stafar það
af þeim mikla hæðarmun sem er á
eldfjallinu Bárðarbungu, sem fóðr-
ar þetta, og sjálfri gosstöðinni í
Holuhrauni. Bárðarbunga virðist
reka þessa atburðarás áfram,“
sagði Páll. Hann sagði greinilegt
að kvikan sem situr efst í kviku-
hólfinu undir Bárðarbungu væri
ekki að koma upp núna. Hún hefur
sennilega allt aðra eiginleika en
kvikan sem kemur upp í Holu-
hrauni en sú kvika hefur sennilega
staldrað við og náð jafnvægi á 9-20
km dýpi undir Bárðarbungu. Páll
sagði að líklega væri flókið kviku-
kerfi þarna og við sæjum ekki
nema hluta af því í gosinu.
Vísindamenn endurmeta stöðugt
atburðarásina sem skýrist æ betur
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Lítið eldgos hófst nyrst í Holu-
hrauni, um 5 km norður af
Dyngjujökli, rétt eftir miðnætti
hinn 29. ágúst sl. Þetta var hraun-
gos á um 600 metra langri
eftir því sem
lengra líður á
gosið. Páll hélt
nýlega erindi á
ráðstefnu Jarð-
fræðafélags Ís-
lands um þessa
atburði. Af því
tilefni skoðaði
hann nokkra at-
burði annars
staðar í heim-
inum sem eru á einhvern hátt
sambærilegir við þennan.
Allmörg dæmi um öskjusig
Páll sagði að hægt væri að finna
allmarga atburði þar sem askja
hefur sigið í tengslum við atburða-
rás sem er einhvers staðar utan
við öskjuna sjálfa. Hann sagði að
45 km fjarlægðin á milli Bárðar-
bungu og gossins í Holuhrauni
væri ekki mjög mikil þegar sam-
bærilegir atburðir á heimsvísu
væru bornir saman. Sums staðar
hefur verið mun lengra á milli
öskju sem seig og atburðarins sem
fylgdi öskjusiginu. Páll sagði að
atburðir af þessu tagi væru al-
gengari en menn hefðu áður talið.
„Ég gat tínt til sex tilfelli utan
úr heimi síðustu öldina. Þá kom í
ljós að sjálft öskjusigið er oftast
afleiðing af því sem er í gangi eða
er gengið um garð frekar en að
það sé aðdragandi einhverra
stórra viðburða,“ sagði Páll. Hann
sagði að í tveimur tilfellum af
þessum sex hefðu orðið myndarleg
gos í lok öskjuhrunsins en í hvor-
ugu tilvikinu neitt sem nálgaðist
það sem kalla mátti hamfarir.
„Í flestum tilfellum gerðist
Morgunblaðið/RAX
Stórgos „Gosið sjálft er orðið af stærðargráðunni einn rúmkílómetri. Það eru ekki mörg eldgos í seinni tíð sem eru stærri en það,“ sagði Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði.
Eldgosið í Holu-
hrauni er einstakt
Morgunblaðið/RAX
Vísindamenn Náið hefur verið fylgst með framvindu mála í Bárðarbungu
og Holuhrauni. Snjó er þegar tekið að festa á elstu hlutum nýja hraunsins.
Páll
Einarsson
Öskjusig oftar afleiðing en fyrirboði stórra atburða
Sófasett, svefnsófar, hvíldarstólar ofl.ofl
Opið
laugardag 11 - 16
sunnudag 14 - 16
Roma 3 – 1 – 1 tau sófasett. Indo hvíldarst. m/skammel Tokio rafm.liftu stóll Tungu sófar m. svefnplássi og rúmfatag.
Sófab.Sandra 120 x 80 Hornb. Sandra 60 Camilla sjónv.skápur 150 cm. Torino sjónv.skápur 135 cm. Sófab. Sharon 120 x 75 x 50
Teg. Mary 3 – 1 – 1 Teg. Giulia 3 – 1 – 1