Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 110
110 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Berglind Helga Sigurþórsdótir er náms- og starfsráðgjafi íVerzlunarskóla Íslands og hefur starfað þar í tíu ár. Húnfæst við allt sem snertir nemendur, frá vali á námi til
persónulegra vandamála. „Það hefur aukist mjög að þeir komi
til okkar vegna prófkvíða en ég veit ekki hvort kvíðinn hefur í
raun aukist eða hvort fólk er farið að leita sér meira hjálpar.
Helsta breytingin
sem ég hef séð í
skólastarfinu er ann-
ars skemmtanahaldið,
við höfum tekið upp
áfengismæla og
áfengisneyslan hefur
stórminnkað á
skemmtunum á veg-
um skólans. For-
eldrar fylgjast líka
betur með krökkum
sínum núna.“
Í tilefni dagsins
ætlar Helga á Ham-
borgarabúlluna í há-
deginu með sam-
starfskonum sínum
og ætlar svo að bjóða
fjölskyldunni í pítsu á
nafnlausa staðnum á
Hverfisgötunni. Svo á
að skála í púrtvíni
með vinkonum á
morgun. „Eirný Sig-
urðardóttir í Búrinu
hjálpaði mér að velja
osta fyrir kvöldið
sem passa við púrt-
vínið.“
Áhugamál Helgu eru fólk og ferðalög, hún var í Berlín í nóv-
ember, London í september og var á Spáni og í Amsterdam í
júní, alls fjórar ferðir á árinu. „Þetta er ein ferð fyrir hvern
áratug, maður leyfir sér kannski meira á svona tímamótaári. Ég
er mjög forvitin að eðlisfari og finnst gaman að svala henni í
ferðalögum, mat og drykk. Svo hef ég mjög gaman af að fara í
göngur, heilsubótargöngur kalla ég þær, og er Helgafell í uppá-
haldi, hef mikið gengið á það enda er ég Hafnfirðingur í húð og
hár þótt ég búi í Garðabæ.“ Eiginmaður Helgu er Agnar Már
Magnússon píanóleikari og börn þeirra eru Gauti 12 ára, Egill 6
ára og Lára Kristín 3 ára.
Helga Sigurþórsdóttir er 40 ára í dag
Púrtvín og ostar
með vinkonunum
Afmælisbarnið Berglind Helga.
Ljósmynd/Selma Káradóttir
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
María Björk Friðriksdóttir, Ingibjörg Aþena Ellertsdóttir og Þórhildur Lilja Guð-
mundsdóttir héldu tombólu til styrktar Rauða krossinum og söfnuðust 11.525 krónur.
Hlutavelta
G
uðlaugur fæddist í
Reykjavík 11.12. 1954.
Fyrsta hálfa árið ól
hann manninn á Fjöln-
isvegi 10, í húsi ömmu
sinnar, en afi hans hafði látist tveimur
árum fyrr, tæplega fimmtugur: „Afi
vitjaði eindregið nafns og því heiti ég
Guðlaugur. Fyrstu minningar eru frá
Laugavegi 22 þar sem fjölskyldan bjó
í þrjú ár. Þar var innangengt úr íbúð
okkar í silfursmiðju og verslun afa.
Þetta var minn leikskóli enda föndr-
aði ég með silfur, sem er sótthreins-
andi og græðandi málmur.
Egypsk aðferð við málmsteypu
Fyrsta silfurgripinn smíðaði ég
fyrir þriggja ára afmælið, og 15 ára
fór ég til Danmerkur um vorið að
læra „Lost Wax“ hjá Henrik Fogh,
ævaforna egypska aðferð við málm-
steypu. Henni fylgdi vélbúnaður sem
við keyptum hingað heim frá Ítalíu og
enn er notast við eftir 45 ár.
Í hádegishléum hjá Henrik Fogh
var borinn fram lítri af bjór á mann
fyrir kennara jafnt sem nema.
Smiðjan á Laugavegi 22 flutti síðar
í Skipholt 3 og varð þar vettvangur
tónlistartilrauna tónlistarmanna af
öllum toga, ekki síst málmblásara
sem komu með hljóðfæri sín til við-
gerðar fram til 2001 er Reynir Guð-
laugsson, frændi minn, lést.
Tónlistin hljómaði einnig á heimili
okkar enda faðir minn „Audiophil“ og
flutti inn þýsk hljómtæki.
Hugur minn hneigðist að raftónlist
og snemma kom í ljós að léttmeti í
tónlist var mér ekki að skapi. Ég
lærði utanbókar krefjandi tónverk og
Guðlaugur Kristinn Óttarsson – 60 ára
Á Breiðabólstöðum á Álftanesi Þar voru áður bækistöðvar Þeys. Nú er húsið í eigu Heru, dóttur Guðlaugs, og
eiginmanns hennar, Jóns Ragnars. Hér er Guðlaugur að kenna dóttursonunum á gítar, Flóka, Ísleifi og Þrymi.
Ofviti og tónlistarséní
Morgunblaðið/Einar Falur
Þrjú tónlistarséní Guðlaugur, Megas og Hilmar Örn leggja á ráðin árið 2001.
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd
af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is
kÖku
gerÐ hp
www.flatkaka.is
Flatkökur& rúgbrauð
ádiskinn þinn
þjóðlegt, gómsætt og gott
á aðventunni
Gríptu með úr næstu verslun