Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 97
97
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Andrés Kolbeinsson, kokkur á
Hereford steikhús, mun elda fyrir
gesti Hjálpræðishersins í Tapashús-
inu á aðfangadagskvöld.
En hvað verður í matinn?
„Við verðum með aspassúpu í for-
rétt sem er gefin af Múlakaffi.
Þannig hefur það verið mjög lengi. Í
aðalrétt erum við með lambalæri
með villijurtasósu og sykurbrún-
uðum kartöflum. Meðlæti verður
rauðkál og grænar baunir. Í eft-
irrétt höfum við ís með súkku-
laðisósu.“
Getur þú gefið einhverja upp-
skrift í þessu sambandi?
„Ég elda ekki eftir uppskriftum,
geri það yfirleitt ekki. Ég kann varla
uppskriftir að nokkrum sköpuðum
hlut, heldur elda eftir ákveðinni til-
finningu. Ég útskrifaðist sem kokk-
ur árið 1993 frá Hótel- og veitinga-
skóla Íslands. Auðvitað þarf maður
að fara eftir uppskriftum stundum
en þá fer maður bara í bækur, ég
legg ekki uppskriftir á minnið.“
Hvers vegna ertu sjálfboðaliði hjá
Hernum á aðfangadagskvöld?
„Þetta er það langskemmtilegasta
sem nokkur maður getur gert, ná-
kvæmlega á þessum tíma. Ég hef
aðstoðað Ingvar Óskar Sveinsson
undanfarin jól við matseldina hjá
Hjálpræðishernum, en hann þurfti
að draga sig í hlé þetta árið svo ég
tók við.“
Eldar eftir tilfinningu
Morgunblaðið/Þórður
Gefandi „Þetta er það langskemmtilegasta sem nokkur maður getur gert,“ segir Andrés Kolbeinsson kokkur.
er með jólamat líka á aðfangadags-
kvöld.
Allir geta komið til okkar á jól-
unum og gott væri ef fólk gæti
skráð sig sem fyrst, sent póst á net-
fangið rannva@herinn.is eða hringt
í síma 5613203 – svo við vitum hve
mikið þarf í matinn.“
á jólunum
Morgunblaðið/Þórður
Fjölbreytni „Við erum yf-
irleitt ekki með skötu á
Þorláksmessu en í fyrra
komu einstaklingar og
veitingastaður með soðna
skötu og meðlæti. Eldri
gestirnir voru kátir með
þetta en hinir yngri og út-
lendingarnir voru ekki
hrifnir,“ segir Rannva.
Julius K-9 hafa verið kosin bestu beislin
frá 2010 af leiðandi hundatímaritum í Evrópu
Fæst í öllum betri gæludýraverslunum
Finndu okkur á facebook
Julius K-9 Ísland
Lýsa ímyrkri!
Tilvalin
jólagjöf fyrir
dýrið þitt
NÝTT
• Julius K-9 beislin eru notuð af lögreglu- og björgunarsveitum
víðsvegar um heiminn.
• Julius K-9 hefur skapað nýjar stefnur í heimi
hunda og tísku.
• Þekktasta vörumerkið, K-9 Power harness,
hefur sett mark sitt á hundaheiminn.
• Julius K-9 hefur í meira en 10 ár verið í fremstu
röð fyrirtækja í Evrópu á sviði íþrótta hunda,
þjónustu hunda, fjölskyldu hunda, búnaði og
öðrum aukabúnaði.
• Á þessum tíma hefur félagið náð leiðandi stöðu
meðal framleiðenda.
• Vörur Julius K-9 eru framleiddar í löndum ESB.
• Julius K-9 notar hluta af tekjum sínum til ýmissa
hjálpar- og líknarstarfa, tengt hundum.