Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 124
FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 345. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Linda Pé lokar Baðhúsinu
2. Bætir enn í vind um hádegi
3. Varð konu að bana af gáleysi
4. Íslendingur í Ríki íslams?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
mun leika á tónleikum Todmobile og
gítarleikarans Steve Hackett, úr
hljómsveitinni Genesis, sem haldnir
verða í Eldborg í Hörpu 16. janúar og í
Hofi degi síðar. Hljómsveitin bætist
við sk. rokkestru Todmobile á tónleik-
unum sem skipuð verður hljóðfæra-
leikurum Sinfóníuhljómsveitar Ís-
lands og kórnum Hljómeyki.
Flytjendur á tónleikunum verða því
um 60 í heildina.
SN með Todmobile
Menningarhúsið Mengi við Óðins-
götu býður upp á fjölbreytta list-
viðburði í vikunni. Í kvöld kl. 21 sýnir
myndlistarkonan Ásdís Sif Gunn-
arsdóttir þrjú vídeóverk eftir sig og á
morgun kl. 17 halda tónlistarkonan
Ólöf Arnalds og rithöfundurinn Guð-
rún Eva Mínervudóttir sameiginlegt
útgáfuhóf vegna plötunnar Palme og
bókarinnar Englaryks. Á laugardag-
inn kl. 21 mun tvíeykið
Ghostigital og mynd-
listarmaðurinn Finn-
bogi Pétursson svo
teygja á sannleik-
anum eina kvöld-
stund, eins og
því er lýst í til-
kynningu.
Fjölbreytt Mengi
VEÐUR
Á meðal þeirra átta Íslend-
inga sem fengu í síðasta
mánuði loforð um sérstakan
styrk frá Ólympíu-
samhjálpinni, til að komast á
Ólympíuleikana í Ríó 2016,
er taekwondo-kappinn Mei-
sam Rafiei. Hann stefnir að
því að vinna til verðlauna á
heimsmeistaramótum og Ól-
ympíuleikum fyrir Íslands
hönd á næstu árum. „Það er
minn draumur,“ segir Mei-
sam. »3
Ætlar að komast
á verðlaunapall
„Fyrir nokkrum árum, þegar við flutt-
um til Eyja eftir að hafa búið í nokkur
ár á höfuðborgarsvæðinu og ekki lík-
að neitt sérstaklega vel, sáum við
ekki fram á að við flyttum frá Eyjum.
Flest er breytingum undirorpið. Nú
búum við í Vínarborg og eigum fyrir
höndum flutning
til Berlínar.
Maður getur
aldrei útilokað
neitt í lífinu,“
segir hand-
knattleiks-
þjálfarinn
Erlingur
Rich-
ardsson
sem í byrjun vik-
unnar var ráðinn
þjálfari þýska
fyrstudeild-
arliðsins
Füchse Berlin
frá og með
næsta
sumri. »4
Maður á aldrei að úti-
loka neitt í lífinu
Landslið Íslands í hópíþróttum hafa
skrifað nýja kafla í íþróttasöguna á
umliðnum árum. Á einungis nokkurra
ára tímabili hafa íslensku hópíþrótta-
landsliðin komist yfir hverja hindr-
unina á fætur annarri. Háfleygir tala
eflaust um vor í íslenskum boltagrein-
um. Nú alast upp kynslóðir íþrótta-
krakka sem þykir sjálfsagt að íslensku
landsliðin komist á stórmót. »2
Þykir sjálfsagt að lands-
lið komist á stórmót
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
NÝTT KORTATÍMABIL
ALLA DAGA
FRAM AÐ JÓLUM
OPIÐ TIL
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Sveitabúðin Sóley á bænum Tungu í
Flóahreppi er öðruvísi en aðrar versl-
anir. „Það er alltaf opið þegar ég er
heima,“ útskýrir Sóley Andrésdóttir,
kaupmaður og bóndi.
Verslunin er 10 ára um þessar
mundir en hjónin Sóley og Björgvin
Njáll Ingólfsson hafa búið á jörðinni,
sem er um sjö km fyrir austan
Stokkseyri og um 16 km fyrir sunnan
Selfoss, í 12 ár. Björgvin starfar á
höfuðborgarsvæðinu og Sóley segist
hafa viljað skapa sér vinnu á staðn-
um. Við íbúðarhúsið hafi verið byggð-
ur bílskúr sem hafi alltaf verið not-
aður sem kartöflugeymsla. Þar hafi
hún átt sér þann draum að vera með
textílverkstæði en síðan hafi kviknað
sú hugmynd að opna sveitaverslun og
hún byrjað að flytja inn gjafavörur
frá Danmörku. „Það var engin sveita-
búð eins og þessi á Íslandi og hug-
myndin varð að veruleika.“
Slakað á í sveitinni
Sóley og Björgvin hafa gert ým-
islegt á bænum. Fyrstu árin tóku
hjónin börn í sveit, þau hafa boðið
hópum upp á súpu og brauð og eru nú
með um 30 ær, nokkur hross og hæn-
ur. Í búðinni er fjölbreytt úrval af er-
lendri og innlendri gjafavöru, krem,
sælgæti og fleira. „Það er mikilvægt
að vera með mikið vöruval. Búðin er í
jólabúningi núna en ég klæði hana í
búning eftir árstíðum,“ segir Sóley
og bætir við að búðin sé ekki síst vin-
sæl á vorin. Þá kíki fólk í sauðburðinn
og líti svo í búðina á eftir. „Þetta er
pínulítið sveitalúðalegt en ég vil að
umhverfið sé afslappað og mér er
sagt að það sé mjög slakandi að koma
hingað. Þá er markmiðinu náð því að-
alatriðið er að fólk vindi aðeins ofan
af sér.“
Sóley segir að búðin hafi alla tíð
gengið vel. „Ég á tryggan hóp ynd-
islegra viðskiptavina og fólk veit að
hverju það gengur. Ég hef aldrei
fengið ákúrur fyrir að vera ekki
heima,“ segir hún og bætir við að fólk
hringi gjarnan á undan sér og líka ef
það komi að læstum dyrum. Þá hinkri
það bara á hlaðinu þar til hún komi
og opni. „Margir koma hérna og
dunda sér í rólegheitum, fá sér jóla-
glögg og piparkökur og jafnvel bita
af sauðalæri, kíkja í blöð í sólstofunni
og gera síðan góðu kaupin.“
Afslöppun í sveitabúðinni
Viðskiptavinir
í bústörfin, lesa,
borða og kaupa
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sveitabúðin Vöruúrvalið er fjölbreytt og Sóley Andrésdóttir vill að gestum líði vel.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan 9-15 m/s, snjókoma eða él, en úr-
komulítið á Suður- og Suðausturlandi. Lítið eitt hægari þegar líður
á daginn og dregur úr úrkomu vestantil. Frost 1 til 7 stig.
Á föstudag Norðlæg eða breytileg átt, 5-10, en norðvestan 8-15
austast. Dálítil él, en þurrt sunnan- og vestantil fram eftir degi.
Frost 5 til 15 stig, kaldast inn til landsins.