Morgunblaðið - 11.12.2014, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Anna hélt til haga heilmikluaf jólakortum og nýárs-kortum sem þeim Einaribárust á tímabili sem
spannar rúma sjö áratugi, frá 1901
til 1975,“ segir Sigríður Melrós
Ólafsdóttir, safnstjóri á Listasafni
Einars Jóns-
sonar, en hún
hefur nú á að-
ventunni verið að
gramsa í gömlum
jólakortum frá
Önnu Jørgensen,
danskri eigin-
konu Einars
Jónssonar, en
þau hjónin
bjuggu á safninu
í áraraðir. „Ég hef sett mynd af
einu korti á hverjum degi á vefsíðu
safnsins og segi frá einhverju úr lífi
þeirra sem tengist ártali kortsins.
Ég reyni líka að sýna fjölbreytileika
kortanna,“ segir Sigríður og bætir
við að kortin segi mikla sögu. „Á
þeim má sjá að Anna og Einar hafa
átt marga vini og verið í sambandi
við fólk alls staðar að úr veröldinni.
En langflest kortin eru frá íslensku
og dönsku fólki. Á kortunum frá
Kaupmannahafnarárunum eru
mörg ólík heimilisföng, sem segir
okkur hversu oft Einar hefur flutt.
Eftir að þau fluttu hingað er
skemmtilegt að sjá að það hefur
dugað að skrifa á kortin Herra og
frú Einar myndhöggvari Íslandi,
þau hafa greinilega komist til
skila.“
Þau reyndu að hætta saman
Saga Önnu og Einars er róm-
antísk, þau kynntust á nýársdans-
leik í Danmörku árið 1902 þegar
hún var aðeins sextán ára. „Einar
kom auga á hana og bauð henni upp
í dans, þau dönsuðu lancier og hann
var frá þeirri stundu sannfærður
um að þetta væri konan hans. Einar
segir frá þessu í endurminningum
sínum. Anna segir í sínum endur-
minningum að hún hafi verið búin
að koma auga á þennan fallega
mann áður en til dansleiksins kom.
Eftir dansinn bauð hann henni að
vera borðdaman sín og hún segir að
þetta hafi verið „stundin“.
Einar var ellefu árum eldri en
Anna og þau giftu sig ekki nærri
strax. „Þau héldu áfram að hittast
fram á vor en þá fór Einar til Róm-
ar og dvaldi þar í rúmt ár, en Anna
tók á móti honum á brautarstöðinni
þegar hann kom til baka til Dan-
merkur. Þau giftu sig ekki fyrr en
1917, hann vildi ekki bjóða henni
upp á hjónaband með manni sem
alltaf var blankur að berjast fyrir
lifibrauði sem listamaður. Þau
reyndu að hætta saman árið 1906
þegar hann fór til Berlínar, en þau
gátu ekki hætt saman, þeim var
greinilega ætlað að vera saman.“
Vildi losna við vonbiðlana
Anna var elst tólf systkina og
einhvers staðar kemur fram að
pabba hennar hafi litist mjög vel á
Einar þegar þau voru að draga sig
saman. „Því þá losnaði hann við alla
vonbiðlana sem voru að þvælast í
kringum hana. Hún hefur því verið
vinsæl, enda segir sagan að hún
hafi verið mjög félagslynd mann-
eskja. Aftur á móti var Einar ein-
fari. Anna segir á einum stað að þau
Einar hafi ávallt talað kjark hvort í
annað þegar á móti blés.“
Einar og Anna giftu sig árið
1917, kvöldið áður en þau sigldu til
Bandaríkjanna, þar sem þau dvöldu
í tvö ár og Einar vann að stóru
verkefni sem hann fékk vel greitt
fyrir, Þorfinn karlsefni, sem reist
var í Fairmont Park í Fíladelfíu.
„Þau sáu því fram á betri daga og í
beinu framhaldi fluttu þau til Ís-
lands, vorið 1920. Þjóðin og velunn-
arar byggðu Einarssafn og þar í
turninunum var og er litla íbúðin
þeirra þar sem þau bjuggu í tuttugu
ár, en þá fluttu þau í hús á jarðhæð í
garðinu, því Einar gat ekki lengur
gengið upp og niður bratta stigana.
Hann dó 1954, þau búa því saman í
safninu í turninum í 20 ár.“ Anna
lifði Einar í meira en tvo áratugi
eftir að hann dó. „Þegar hún var á
níræðisaldri gekk hún í að end-
urgera íbúðina þeirra í turninum í
sinni upprunalegu mynd, til minn-
ingar um Einar og þeirra líf þar.“
Saga þeirra
er rómantísk
Anna Jørgensen og Einar Jónsson myndhöggvari
kynntust þegar hún var aðeins sextán ára og voru
saman upp frá því. Anna geymdi jólakort sem þeim
bárust í sjö áratugi og nú er hægt að sjá eitt kort úr
því safni á degi hverjum fram að jólum á vef safnsins.
Kortin segja sögu liðins tíma í lífi hjónanna.
Ung og ástfangin Anna og Einar á Kaupmannahafnarárunum.
Sigríður Melrós
Vefsíða safnsins þar sem gömlu
kortin birtast í jóladagatalinu:
www.lej.is
Tónlistarmaðurinn Stefán Hilm-
arsson er iðinn við kolann, hann
söng sína fyrstu jólatónleika þetta
árið af fjórum um liðna helgi og
þar söng sonur hans Birgir Steinn
m.a. með honum. Á tónleikunum
var Stefáni afhent gullplata til
merkis um að fyrri jólaplata hans,
Ein handa þér, hefur selst í yfir
5.000 eintökum.
Þar sem seldist upp á ferna tón-
leika var afráðið að bæta við auka-
tónleikum 19. des. Þar verður Guð-
rún Gunnarsdóttir sérstakur
gestur, en auk þess syngur þar
sonurinn Birgir Steinn, líkt og á
fyrri tónleikunum. Á dögunum kom
út ný jólaplata, Í desember, og á
tónleikunum verða flutt lög af
henni auk laga af fyrri jólaplötunni,
í bland við sígild jóla- og hátíð-
arnúmer.
Miðasala á aukatónleikana er
hafin á vefsíðunni salurinn.is.
Guðrún Gunnars verður sérstakur gestur
Gaman Stefán og Birgir Steinn sonur hans syngja á nýliðnum tónleikum.
Stefán bætir við tónleikum
Ljósmyndir/Mummi Lú
Gull Stebbi hampar gullplötunni.