Morgunblaðið - 11.12.2014, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
VITA
Skógarhlíð 12
Sími 570 4444
Flogið með Icelandair
Lukkulíf á Kanarí
5. - 17. janúar
Verð frá99.900 kr.*
og 12.500 Vildarpunktar
á mann m.v. 2 í íbúð í 12 nætur
*Verð án Vildarpunkta 109.900 kr.
Síðustu sætin
í sólina í janúar
Þó margir tengi brimbrettaiðkun við hvítar
strendur, sólríkt veður og volgan sjó segir Bjarki
Þorláksson, framkvæmdastjóri Surf.is, marga er-
lenda brimbrettaiðkendur hafa augastað á Ís-
landi. „Hér höfum við svartar strendur, kolbrjálað
veður og flottar öldur. Það er allt sem þarf,“ segir
Bjarki en áhuginn erlendis stafar m.a. af þessari
„heimsskautsupplifun“ sem margir vilja öðlast á
brimbrettinu að sögn Bjarka. Það skal látið ósagt
hvort ofurhuginn sem ljósmyndari Morgunblaðs-
ins myndaði í óveðrinu á þriðjudag er erlendur
ferðamaður eða ekki, en hann lét vonskuveðrið
ekki stöðva sig í því að stíga dansinn á öldunum
utan við Seltjarnarnes á meðan flestir landsmenn
héldu sig inni í hlýjunni. ash@mbl.is
Brunað á öldum Atlantshafsins í vonskuveðri
Morgunblaðið/Ómar
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
„Það voru margir sem vissu ekki af
verkfallinu. Í þessum seinni lotum
höfum við orðið vör við meiri pirring
hjá fólki,“ segir Oddur Steinarsson
framkvæmdastjóri lækningasviðs á
Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.
Heilsugæslulæknar voru í verkfalli á
mánudaginn og þriðjudaginn.
Bráðatilfellum var þó sinnt eins og
undanfarið.
Oddur áætlar að yfir 2.000 lækna-
viðtöl hafi fallið niður báða dagana.
Þá hafi langar biðraðir myndast á
læknamóttökum. „Þetta er ekki gott,
vægast sagt. Ég vona innilega að til
hennar [næstu verkfallslotu lækna]
komi ekki. Ég held að það sé mjög
varhugavert að fara með þessa deilu
yfir áramótin.“
Í þessu samhengi bendir hann á að
unga fólkið sem er í sérnámi hafi lýst
því yfir að það muni fara til baka.
„Það getur verið mjög erfitt að fá
þetta fólk aftur til baka,“ segir Odd-
ur og lýsir þungum áhyggjum af
stöðu heilsugæslunnar, sem fékk
sáralitla viðbótarfjárveitingu nú.
Hann segir mikilvægi þeirra fyrir-
byggjandi aðgerða sem eru í heilsu-
gæslunni ekki nægilega sýnilegt og á
þar m.a. við forvarnir og bólusetn-
ingar. Þá hafi rannsóknir sýnt að
lönd sem búi að sterkri heilsugæslu
nái betri árangri hvað varðar heil-
brigði almennings og séu með hag-
kvæmari heilbrigðiskerfi en saman-
burðarlönd.
„Eins og staðan er núna er að
fjara undan heilsugæslunni og t.d.
vantar 70-80 sérfræðinga í heimilis-
lækningum á landsvísu.“
Síðasti dagur verkfallslotunnar
Í dag er síðasti dagur verkfallslotu
lækna fyrir jól. Verkfallið nær til
flæðisviðs, lyflækningasviðs, geð-
sviðs og skurðlækningasviðs á Land-
spítalanum, auk sjúkrahússins á Ak-
ureyri.
Auk lækna á heilsugæslum höf-
uðborgarsvæðisins og heilbrigðis-
stofnunum á landsbyggðinni voru
læknar á kvenna-, barna-, aðgerða-
og rannsóknasviðum Landspítalans
í verkfalli á mánudaginn og þriðju-
daginn. Læknafélag Íslands og
Skurðlæknafélag Íslands hafa sam-
þykkt verkfallslotu sem hefst eftir
áramót.
Leysist deilan ekki fyrir 5. janúar
verða skipulagðar skurðaðgerðir á
Landspítalanum einn dag í viku, á
föstudögum frá og með þeim tíma, en
næsta verkfallslota, sem læknar sam-
þykktu fyrr í vikunni með yfirgnæf-
andi meirihluta, er skipulögð í 4 vikur
og nær fram í mars. Hún verður mun
víðtækari en sú sem nú stendur yfir.
Sem dæmi má nefna að þá verða
skurðlæknar og svæfingalæknar til
skiptis í verkfalli. Þetta hefur þær af-
leiðingar í för með sér að einn dag í
viku verður hægt að vera með skipu-
lagðar aðgerðir. Að meðaltali eru
skipulögðu aðgerðirnar um 40 á dag.
Þrátt fyrir verkfall eru fram-
kvæmdar allar bráðaaðgerðir sem
eru um tuttugu talsins og biðlistarn-
ir lengjast sífellt.
Alma Möller framkvæmdastjóri
aðgerðasviðs Landspítalans reiknar
með að nú þegar hafi um 700 aðgerð-
um verið frestað. Ef af næstu verk-
fallslotu verður þá munu 160 aðgerð-
ir frestast í hverri viku. Ljóst er að
róðurinn þyngist þar sem biðlistinn
lengist.
Vissu ekki af læknaverkfalli
Aukinn pirringur sjúklinga yfir verkfalli lækna, segir heilsugæslulæknir
Skurðaðgerðir einn dag í viku eftir áramót ef verkfall lækna heldur áfram
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Á annað hundrað þúsund rafræn
skilríki eru komin í hendur fólks til
virkjunar. Vel á fjórða tug þúsunda
Íslendinga hafa nú þegar virkjað
skilríki sín.
Árni Sigfússon, verkefnisstjóri
innleiðingar rafrænna skilríkja,
sagði að undanfarið hefðu um eitt
þúsund rafræn skilríki verið virkjuð
á degi hverjum. Búast má við ör-
tröð á afgreiðslustöðum þegar nær
dregur því að fólk geti farið að
samþykkja leiðréttinguna. Að öllum
líkindum verður opnað fyrir það nú
um miðjan mánuðinn.
Langflestir hafa valið að nýta
rafræn skilríki í farsíma. Til að nota
þau þarf hver og einn notandi að
leggja á minnið nokkrar lykiltölur.
Síðan getur hann notað skilríkin til
að fara inn á fjölmargar síður sem
tilheyra honum einum á öruggari
hátt en áður hefur verið í boði, að
sögn Árna.
„Okkur sýnist augljóst að mjög
margir séu að undirbúa sig í tíma
fyrir að ganga frá rafrænni und-
irritun sinni vegna leiðréttingarinn-
ar en einnig eru fjölmargir sem
óháð því vilja nýjustu tækni og nýta
sér þessa einföldu og öruggu leið á
netsíðum. Stöðugt fleiri þjónustu-
veitendur bætast nú við sem bjóða
fleiri netsíður fyrir rafræn skilríki,
m.a. bankar, tryggingafélög, Land-
læknisembættið, Ríkisskattstjóri,
og sveitarfélög. Að auki eru margir
einkaaðilar að huga að möguleik-
unum,“ sagði Árni .
Um þúsund rafræn skilríki
eru virkjuð á hverjum degi
Morgunblaðið/Rósa Braga
Rafræn skilríki Á annað hundrað
skilríki eru komin í hendur fólks.
Búist við örtröð
á afgreiðslustöðum
Mjög vel gekk að
tryggja bráða-
þjónustu lækna á
verkfallsdögum í
annarri verkfalls-
lotu lækna frá 17.
-27. nóvember.
Þetta er meðal
þess sem fram
kom í könnun
sem embætti
Landlæknis stóð
fyrir í byrjun desember á meðal yf-
irmanna á sjúkrahúsum og öðrum
stofnunum í heilbrigðiskerfinu þar
sem þeir voru beðnir um að meta
áhrif annarrar verkfallslotunnar.
Svöruðu þeir níu spurningum um
bráðaþjónustu, meðgönguvernd,
ung- og smábarnavernd, skóla-
heilsugæslu, heimaþjónustu, al-
menna þjónustu, óvænt vandamál og
atvik sem tengjast verkfalls-
aðgerðum. Niðurstöður sýna að í
heild hefur gengið vel að sinna heil-
brigðisþjónustu þrátt fyrir verkfalls-
aðgerðir. Þó segir að örfá óvænt
vandamál hafi komið upp í verkfalls-
lotunni auk þess sem nokkur væg at-
vik hafi komið upp sem stjórnendur
telja tengjast verkfallsaðgerðum.
Verkefnin hrannast upp
Verkfallsaðgerðir lækna héldu
áfram í gær. Þá lögðu læknar af
flæðisviði, geðsviði, skurðlækn-
ingasviði og lyflækningasviði LSH
niður störf auk lækna á sjúkrahús-
inu á Akureyri. Ólafur Baldursson,
framkvæmdastjóri lækninga á
Landspítalanum segir að aðgerð-
irnar leiði til síversnandi ástands.
„Það hrannast upp verkefnin og í
raun er tvennt nýtt sem við höfum
áhyggjur af og það eru harðari að-
gerðir í janúar og viðbrögð lækna-
nema. Ég skil vel áhyggjur þeirra og
deili þeim. Ef unga fólkið kemur
ekki á Landspítalann þá er framtíðin
í hættu. Þegar horft er fram á vorið
þá er ljóst að ef ekki verður sótt um
kandídatastöður þá fáum við ekki
um 40 unga lækna,“ segir Ólafur.
vidar@mbl.is
Vel gekk
í verk-
fallslotu
Gekk mjög vel að
sinna bráðaþjónustu
Morgunblaðið/Ómar
Ólafur
Baldursson
Landspítali Heilbrigðisþjónusta
gekk vel í annarri verkfallslotu.
Enginn fund-
ur hefur ver-
ið boðaður í
læknadeil-
unni; hvorki
á milli
Skurðlækna-
félags Ís-
lands og rík-
isins né
Læknafélags
Íslands og ríkisins. Í gær var
fundi Læknafélagsins við rík-
issáttasemjara, sem átti að
hefjast klukkan tvö, frestað.
„Ég veit það ekki ef ég á að
vera hreinskilinn,“ segir Þor-
björn Jónsson, formaður
Læknafélags Íslands, spurður
hvort hann sé bjartsýnn á að
samningar náist fyrir áramót.
Engir fundir
á dagskrá
KJARADEILA LÆKNA
Þorbjörn Jónsson