Morgunblaðið - 11.12.2014, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | veggsport.is
Ketilbjöllur
þriðjud. og fimmtu
d. kl 12:00
Cross train Extre
me XTX
Mánud. þriðjud. o
g fimmtud. kl. 17.
15
Laugardagar kl.10
.00
Spinning
mánudaga, miðvik
udaga og
föstudaga kl. 12:0
0 og 17:15
Opnir
tímar:
Frír prufutími
Persónulegt þjónusta og
vinalegt umhverfi
VILT ÞÚ ÖÐLAST
STARFSRÉTTINDI ?
FINNDU ÞÍNA FRAMTÍÐ
Í SKEMMTILEGUM OG
PERSÓNULEGUM SKÓLA
Opið er fyrir innritun
frá 1. nóv. til 20. des.
í gegnum menntagatt.is
Flatahrauni 12
220 Hafnarfirði
sími 585 3600
www.idnskolinn.is
Eftirfarandi námsleiðir í boði:
Almennt nám
Grunnnám bíliðna
Grunnnám rafiðna
Grunnnám bygg. og mannvirkja
Hársnyrtibraut 2. 3. 4. og 5. önn
Húsasmíði
Húsgagnasmíði
Listnám hönnun og handverk
Málmiðngreinar fyrri hluti
Pípulagnir
Rafvirkjun
Rennismíði
Stálsmíði
Tækniteiknun
Vélvirkjun
ALLIR ALDURSHÓPAR
ERU VELKOMNIR
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Póst- og fjarskiptastofnun sam-
þykkti í byrjun desember beiðni Ís-
landspósts um heimild til að loka
póstafgreiðslu í Sandgerði. Þess í
stað mun Íslandspóstur nota póst-
bíla til að sinna þjónustu við íbúa
bæjarfélagsins.
Liðin eru 35 ár síðan þar voru
framin tvö rán með stuttu millibili.
Komst ræninginn í bæði skiptin af
vettvangi með tæpa hálfa milljón
króna. Var fyrra ránið framið í
byrjun febrúar árið 1979 og hið síð-
ara í ársbyrjun 1980.
John Earl Kort Hill, fyrrverandi
rannsóknarlögreglumaður hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum, var fyrst-
ur á vettvang eftir ránin og fór fyr-
ir rannsókninni. Í samtali við
Morgunblaðið segir John að
málið hafi aldrei upplýst að
fullu.
Sannanir skorti
„Ræninginn hefur aldrei
fundist, en þrátt fyrir það
hefur ákveðinn aðili allt-
af legið undir grun.
Ekki náðist þó að sanna
að hann hefði framið
brotið,“ segir John og
bætir við að líklega hafi
sá sami verið að verki í
bæði skiptin.
„Aðeins tæpt ár var á
milli þessara rána og
mér þótti þau keimlík á
sínum tíma. Hvarflaði
því sterklega að mér að um
sama aðilann hefði verið að
ræða,“ segir John.
Old Spice rakspírinn var
áberandi í fréttum af fyrra
ráninu, þar sem póstmeist-
arinn, Unnur Þorsteins-
dóttir, sagði að megna lykt
af rakspíranum hefði lagt
frá ræningjanum. Birtust í
kjölfarið fréttir þess efnis
að sala rakspírans hefði
dottið niður úr öllu valdi í Sand-
gerði og nágrenni eftir póstránið.
Hafði blaðamaður Morgunblaðs-
ins þá samband við Lydiu Egils-
dóttur í versluninni Öldunni í Sand-
gerði til að kanna málið. Sagði
Lydia þá að þessi saga gæti ekki
staðist þar sem rakspírinn hefði
ekki fengist í plássinu síðan fyrir
jól og bætti við: „Líklega hefur
ræninginn fengið rakspírann í jóla-
gjöf.“
Ránið var aldrei upplýst
Þjófurinn angaði af Old Spice Rændi hálfri milljón úr
pósthúsinu í Sandgerði í tvígang Nú á að loka pósthúsinu
Morgunblaðið/Emilía
Glæpavettvangur Pósthúsið í Sandgerði, sem reyndar kallaðist af-
greiðsla Pósts og Síma þegar ránin voru framin. Þau upplýstust ekki.
„Það er tilfinning allra sem komu að
þessu að það hafi verið góður árang-
ur,“ segir Siv Friðleifsdóttir, fyrrum
alþingismaður, um árangur Velferð-
arvaktarinnar á árunum 2009-2013
en matsskýrsla um störf nefndarinn-
ar var kynnt á Háskólatorgi í gær.
Siv, sem gegnir formennsku í nýrri
Velferðarvakt, tekur sem dæmi um
störf fyrri vaktar að það hafi tekist
að koma upp mjög virkum vinnu-
markaðsaðgerðum sem ekki voru
fyrir hendi fyrir efnahagshrunið og
að þar hafi m.a. vaktin átt hlut að
máli.
„Atvinnuleysi fór í 9,1% í apríl
2009, um það leyti sem vaktin byrjar
að starfa, og þegar maður horfir til
baka þá sjáum við núna að það tókst
að halda uppi frekar mikilli virkni og
setja á laggirnar ýmis góð vinnu-
markaðsúrræði sem við búum að í
dag,“ segir Siv en atvinnuleysi
mældist 5% í október á þessu ári.
Hún bætir við að það sé alltaf erfitt
að sanna hvernig málum væri nú
háttað ef Velferðarvaktin hefði ekki
tekið til starfa á sínum tíma „En mið-
að við það sem ég þekki til mála, þá
skipti vaktin máli. Hún kom að góð-
um notum,“ segir Siv.
Eygló Harðardóttir, félags- og
húsnæðismálaráðherra, tók ákvörð-
un um að ný Velferðarvakt yrði skip-
uð eftir fund hennar með gömlu
vaktinni sem lagði eindregið til að
starfi hennar yrði haldið áfram. Sú
vakt var skipuð í júní síðastliðnum.
Siv segir hlutverk nýju vaktarinnar
vera nokkuð svipað hlutverki gömlu
nefndarinnar, en að í skipunarbréf-
inu hafi Eygló sérstaklega tilgreint
tvo hópa sem vaktin ætti að einbeita
sér að. Annars vegar fátækar barna-
fjölskyldur og hins vegar þá sem búa
við sára fátækt. ash@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Efnahagshrun Velferðarvaktin var sett á laggirnar í kjölfar efnahags-
hrunsins árið 2009 og segir núverandi formaður vaktina hafa skipt máli.
Árangur af starfi
Velferðarvaktar
Ný vakt tekst á við önnur verkefni
Stjórn Landvarðafélags Íslands ger-
ir alvarlegar athugasemdir við notk-
un orðsins „náttúruverðir“ sem heiti
yfir eftirlitsmenn með fyrirhuguðum
náttúrupassa. Orðið sé einungis not-
að í umræðu og fjölmiðlum, en
hvergi í frumvarpi til laga um nátt-
úrupassa né í athugasemdum um
frumvarpið.
„Eftirlitsmenn munu ekki sinna
eiginlegri náttúruvernd, þar með tal-
ið viðhaldi á svæðum, lokun og af-
girðingu svæða, fræðslu og rusla-
tínslu. Því er óheppilegt að kalla
þessa eftirlitsmenn „náttúruverði“
og getur leitt til misskilnings og
ruglings við landverði. Meginhluti
vinnu landvarða er bein eða óbein
náttúruvernd,“ segir í yfirlýsingu frá
stjórn Landvarðafélagsins.
Rangt að kalla eftir-
litsmenn náttúruverði
Morgunblaðið/Golli
Við Geysi Frumvarp til laga um
náttúrupassann er umdeilt.