Morgunblaðið - 11.12.2014, Page 46
46 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
„Við höfum unnið í landbúnaði frá
því við vorum innan við tvítugt og
vildum halda því áfram. Þarna
sáum við tækifæri til að vera áfram
í þessari grein,“ segir Kristinn
Gylfi um upphafið að Brúneggjum
sem hann stofnaði með Birni bróð-
ur sínum í lok árs 2003.
Þá stóðu þeir á tímamótum.
Höfðu verið umsvifamiklir í fram-
leiðslu á svínakjöti, fuglakjöti og
eggjum og ráku stórfyrirtæki í
kjötvinnslu. Höfðu byggt upp mikið
viðskiptaveldi á grunni svínabúsins
í Brautarholti sem þeir tóku við af
föður sínum með kaupum á fyr-
irtækjum í tengdum greinum.
Fyrirtækin lentu í greiðsluerf-
iðleikum, lánardrottnar tóku rekst-
urinn yfir og fyrirtækin urðu gjald-
þrota.
„Ég stóð á fertugu og var búinn
að missa allar mínar eignir,“ segir
Kristinn. Hann er viðskiptafræð-
ingur og segir að það hafi vissu-
lega hvarflað að sér að reyna fyrir
sér á öðrum vettvangi. „Þetta var
það sem ég þekkti og hafði aldrei
unnið hjá öðrum. Það var því nið-
urstaðan að við Björn fórum út í að
flytja inn ljósbrúnar varphænur og
hefja framleiðslu á vistvænum
eggjum,“ segir Kristinn.
Veðjuðu á aukningu
Þessi starfsemi er ekki áhættu-
laus, frekar en annar rekstur. Tíma
tekur að byggja hana upp og komu
fyrstu eggin ekki á markað fyrr en
á árinu 2005. Þeir byrjuðu smátt
en hafa byggt fyrirtækið vel upp á
áratug.
„Það vantaði ekki egg á markaðinn
en við veðjuðum á að meira pláss
væri fyrir vistvæn egg og að eggja-
neysla myndi aukast. Báðar þessar
forsendur stóðust. Við fengum
strax góðar viðtökur hjá kaup-
mönnum og neytendum,“ segir
Kristinn Gylfi. Það hjálpaði til að
eftir bankahrun stórjókst sala á
eggjum og kom það þeim bræðrum
á óvart. Þá hefur heilsubylgjan
hjálpað þeim. Eggin eru ofarlega á
blaði í þeim megrunarkúrum sem
vinsælastir hafa verið síðustu tvö
árin. Svo hefur aukinn ferða-
mannastraumur haft sitt að segja,
einkum á sumrin.
Aðalvandamálið hjá Brúneggjum
hefur verið það að hafa ekki nóg af
eggjum til að selja því við-
skiptavinir vilja geta gengið að vör-
unni vísri þegar þeir þurfa á að
halda. Það breyttist ekki fyrr en í
vor þegar fyrsti áfangi Stafholts-
veggjabúsins var tekinn í notkun.
Brúnegg eru núna talin þriðja
stærsta eggjabú landsins, með um
fimmtungs markaðshlutdeild, og er
með fimmtán manns í vinnu.
Sáum tækifæri í vistvænum eggjum
STÓÐU Á TÍMAMÓTUM EFTIR GJALDÞROT
Fjölskyldufyrirtæki Kristinn Gylfi og Björn Jónssynir og Herdís Þórðardóttir kona
Björns, öll vinna þau hjá Brúneggjum. Fleiri úr fjölskyldunni vinna hjá fyrirtækinu.
ástæðuna. Hann nefnir fyrst að mun
færri hænsni séu á hvern fermetra í
húsunum, miðað við eggjabú þar
sem hænurnar eru hafðar í búrum.
Meiri afföll verði á afurðunum þegar
hænurnar eru frjálsar á gólfi og
komist í egg sem verpt er á gólfið.
Þá nýti brúni stofninn sem Brúnegg
eru með fóðrið ekki eins vel og hvíti
hænsnastofninn. Fóðurkostnaður á
hvert egg sé því meiri.
Tákn um vistvæna framleiðslu
Brúnu eggin eru heldur stærri en
þau hvítu og mörgum finnst þau
bragðbetri. Annars er litið svo á í
Evrópu að liturinn á eggjunum sé
frekar tákn um að þau komi úr vist-
vænni framleiðslu.
Vel var tekið á móti framleiðsl-
unni á íslenska markaðnum og fleiri
fyrirtæki hafa fylgt í kjölfarið þann-
ig að framleiðsla á vistvænum eggj-
um hefur stóraukist.
„Annars er það þannig að fram-
leiðsla okkar hefur komið inn í rými
sem skapast hefur vegna aukinnar
eggjaneyslu. Öðrum gengur líka vel
og enginn hefur þurft að hætta út af
okkur,“ segir Kristinn.
Stafholtsveggir Húsin sem Brúnegg nota á Stafholtsveggjum voru áður
notuð sem tamningastöð, svínabú og þar áður til sauðfjárræktar.
Friðriksmót
Landsbankans -
Íslandsmótið í
hraðskák - fer
fram í útibúi
Landsbankans
við Austurstræti
11 laugardaginn
13. desember nk.
Mótið hefst kl. 13
og stendur til kl.
16.30. Kepp-
endur verða 104 talsins.
Flestir sterkustu skákmenn
landsins taka þátt og efsti keppandi
mótsins fær titilinn Íslandsmeistari
í hraðskák. Tefldar verða ellefu
umferðir.
Meðal þegar skráðra keppenda
má nefna stórmeistarana Jóhann
Hjartarson, Hjörvar Stein Grét-
arsson, Helga Ólafsson, Stefán
Kristjánsson, Helga Áss Grétarsson
og Þröst Þórhallsson.
Þetta er ellefta árið í röð sem
Landsbankinn og Skáksamband Ís-
lands standa fyrir Friðriksmótinu í
skák, en mótið er haldið til heiðurs
Friðriki Ólafssyni, fyrsta stórmeist-
ara Íslendinga.
„Skákáhugamenn eru hvattir til
að fjölmenna í Landsbankann á
laugardaginn til að upplifa, að
margra mati, skemmtilegasta eins
dags mót ársins,“ segir í tilkynn-
ingu frá Skáksambandinu.
Flestir sterkustu
skákmenn landsins í
Friðriksmótinu
Friðrik
Ólafsson
Jólamarkaður fjölskyldunnar verð-
ur haldinn í frístundamiðstöðinni
Frostaskjóli í dag, fimmtudag, milli
kl. 16:30 og 17:30. Þarna verður
selt jólaskraut og jólagóðgæti sem
börn og unglingar hafa búið til.
Ágóðinn af sölunni rennur óskiptur
til styrktar þróunarstarfi Rauða
kross Íslands fyrir börn í Malaví og
Sómalíu. Aðstoðin sem börnin og
fjölskyldur þeirra veita RKÍ með
þessum hætti hefur sitt að segja við
að bæta aðstöðu barna sem búa við
afar bágar aðstæður.
Einnig bjóða unglingar í Frosta
heitt súkkulaði, piparkökur og
krap til sölu. „Allir eru hvattir til að
koma með pening á jólamarkaðinn
til að börnin fái betri tilfinningu
fyrir sölunni, en það verða posar á
svæðinu fyrir þá sem kjósa það
frekar,“ segir í tilkynningu.
Jólamarkaður í
Frostaskjóli í dag
Brokk-kórinn, undir stjórn Magnúsar Kjartanssonar, mun koma fram á
opnunar- og lokahátíð heimsmeistaramóts íslenska hestsins sem haldið
verður í Herning í Danmörku á næsta ári.
Brokk-kórinn skipa um 40 hestamenn úr öllum hestamannafélögum
Stór-Reykjavíkursvæðisins. Kórinn syngur hestalög í bland við íslensk
þjóðlög og dægurperlur. Í kvöld kl. 20 mun Brokk-kórinn halda aðventu-
tónleika í Seljakirkju. Hestamenn eru sérstaklega hvattir til að mæta en
við sama tækifæri verður kynning á heimsmeistaramótinu í Herning.
Aðgangseyrir er 1.500 kr. en innifalið er heitt kakó og vöfflur.
Brokk-kórinn syngur í Seljakirkju
Klapparstíg 44 • Sími 562 3614
Emma
Bridgewater
Feels like home
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
10%
afsláttur
Fullgreitt fyrir 1. marsÁ ferðum fram og til baka,gildir ekki með öðrum
tilboðum.
Bókaðu
núna!
Taktu
bílinn með
til Færeyja og
Danmerkur 2015