Morgunblaðið - 11.12.2014, Side 56
56 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
FRÉTTASKÝRING
Karl Eskil Pálsson
karlesp@simnet.is
Greiddar staðgreiðslutekjur sveit-
arfélaga landsins og Jöfnunarsjóðs
sveitarfélaga voru á síðasta ári
samtals 141,9 milljarðar króna.
Hluti Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga
var 17,1 milljarður af þeirri fjár-
hæð. Fyrstu ellefu mánuði þessa
árs voru greiddar staðgreiðslu-
tekjur sveitarfélaganna samtals
138,1 milljarður króna og er því
útlit fyrir að tekjurnar aukist um-
talsvert á árinu, miðað við síðasta
ár.
Í fyrra voru tekjurnar í desem-
ber samtals 13 milljarðar króna.
Ef sú verður líka niðurstaðan í
desember á þessu ári aukast þær
um 10 milljarða króna á árinu,
miðað við síðasta ár. Líklegt er að
tekjurnar í desember verði 14
milljarðar, sem þýðir að stað-
greiðslutekjurnar koma til með að
aukast um 11 milljarða króna milli
ára. Endanlegt uppgjör ársins
liggur vitaskuld ekki fyrir fyrr en
við uppgjör ársreikninga.
Þegar talað er um staðgreiðslu-
tekjur er átt við útsvarstekjur sem
innheimtast í staðgreiðslu-
skilakerfi. Álagt meðalútsvar er
14,44% af launatekjum. Frá því
dragast síðan 1,76% stig sem fara
til Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga,
vegna framlags
til grunnskóla og
málefna fatlaðs
fólks. Tekjum
sjóðsins er skipt
á milli sveitarfé-
laganna, sam-
kvæmt sér-
stökum reglum.
Útsvars-
prósentan getur
verið mismun-
andi frá einu sveitarfélagi til ann-
ars. Samkvæmt núgildandi tekju-
stofnalögum getur
útsvarsprósentan hæst verið
14,52% en lægst 12,44%.
Gunnlaugur Júlíusson, hagfræð-
ingur Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segir ekki ólíklegt að stað-
greiðslutekjur sveitarfélaganna
aukist um 10 til 11 milljarða króna
á árinu, enda hafi desember venju-
lega verið nokkuð hár, miðað við
aðra mánuði ársins. Hann segir
ekki ólíklegt að tekjurnar í desem-
ber verði um 14 milljarðar króna.
Því verði staðgreiðslutekjur ársins
um 152 milljarðar króna.
„Við verðum að hafa í huga að
þessar tölur eru á verðlagi hvers
árs. Engu að síður koma tekjurnar
til með að aukast verulega, þegar
tillit hefur verið tekið til verð-
bólgu.
Atvinnuleysi hefur dregist sam-
an á árinu og þar með aukast
launatekjurnar. Þessi staðreynd
vegur nokkuð þungt, þegar leitað
er skýringa á auknum stað-
greiðslutekjum sveitarfélaganna.
Kjarasamningar hafa líka mikið að
segja, með nýjum samningum
hækkuðu laun fólks. Áhrif nýrra
kjarasamninga koma berlega í ljós,
þegar einstakir mánuðir eru skoð-
aðir. Tekjur sveitarfélaganna fóru
að aukast á miðju ári, einmitt þeg-
ar margir samningar tóku gildi. Á
fyrri hluta ársins var aukningin
ekki eins mikil, áhrif kjarasamn-
inganna eru því töluverð. Sömu-
leiðis er rétt að benda á að útsvar-
sprósentan hækkaði að jafnaði um
0,04% á þessu ári vegna breytinga
á samkomulagi við ríkið um fjár-
mögnun á yfirfærslu á mál-
Útsvarstekjur sveitarfélaga
aukast um 10 til 11 milljarða
Tekjurnar aukast þegar dregur úr atvinnuleysi Nýir kjarasamningar skapa auknar tekjur
Morgunblaðið/Kristinn
Akureyri í vetrarskrúða Höfuðstaður Norðurlands er fjórði stærsti kaupstaður landsins og íbúum hefur fjölgað hægt og örugglega. Tilkoma Vaðlaheiðarganga mun hafa jákvæð áhrif.
Gunnlaugur
V. Júlíusson
Ásgeir Einarsson
hönnuður
Sindrastólsins
(1927 – 2001)
Íslensk hönnun og framleiðsla
www.facebook.com/solohusgogn Gylfaflöt 16-18 •112 Reykjavik • Sími 553 5200 • solo.is
Skammel
52.000 kr.
Hábaksstóll
með snúning
245.000 kr.
Sófi
249.000 kr.
Borð
hannað af Sturlu Má Jónssyni
69.000 kr.