Morgunblaðið - 11.12.2014, Síða 90
90
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. DESEMBER 2014
JÓLAMATUR
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Nanna Rögnvaldardóttir mat-
reiðslubókahöfundur segist hafa
verið ung að árum þegar hún ein-
setti sér að binda sig ekki við hefð-
ir þegar kæmi að jólamatnum. Hún
segist hafa tekið þessa ákvörðun
því hún hafi séð að jólahefðirnar
geta svo hæglega breyst í jólakvað-
ir og að fólki finnist jólin ónýt ef
það fær ekki alltaf nákvæmlega
sama matinn. Lengi vel eldaði
Nanna því aldrei sömu jólaréttina
tvö ár í röð.
Hefð fyrir barnabörnin
En viti menn, þegar barnbörnin
komu til sögunnar og fóru að hafa
sterkar skoðanir á mat myndaðist
þrýstingur sem dugði til að vikið
var frá gömlu reglunni. „Eins og
gengur og gerist er maður eft-
irlátssamur við barnabörnin en þau
reyndust halda mikið upp á anda-
bringurnar mínar. Ég hef þess
vegna matreitt andabringur á að-
fangadag síðustu átta eða níu árin.
Þessi jólin verð ég ekki á landinu
og lendir það því á dóttur minni að
elda „andabringurnar hennar
ömmu“ fyrir fjölskyldu sína.“
Sjálf mun Nanna athuga hvernig
jólin ganga fyrir sig á Madeira.
Segist hún í dag varla geta kallað
sig mikið jólabarn og nú langi sig
að prufa að leggja allt jóla-
tilstandið til hliðar en njóta þess í
stað jólakyrrðarinnar í hlýrra lofts-
lagi. „Við sjáum svo til hvernig mér
líkar við Madeira í desember. Ef
þetta verður alveg ömurlegt þá hef
ég a.m.k. prófað það einu sinni.“
Sérstök skúffa
í frystinum
Andabringurnar kaupir Nanna
oft með löngum fyrirvara ef hún
finnur þær til sölu á góðu verði.
Fara bringurnar svo í sérstaka
skúffu í frystiskápnum, sem geng-
ur undir nafninu andaskúffan og
geymir eingöngu fuglakjöt af ýmsu
tagi, og liggja þar fram að jólum.
Er um að ræða ali-önd og segir
Nanna nokkurn veginn hægt að
ganga að gæðunum vísum svo að
ekki er verið að taka mikla áhættu
með kaupunum. „Þar sem fuglinn
er ræktaður en ekki villtur er ekki
hætta á að maður lendi óvart á
gömlum og seigum fugli, eins og
stundum getur gerst þegar maður
kaupir villibráð eða skýtur hana –
það er meira happdrætti.“
Kjötið er rauðleitt en þó ekki
eins dökkt og á villtum fugli og á
bringunni er fitulag sem gefur
skemmtilegt bragð. „Gott er að
velja bringur sem eru með ágæt-
lega þykku fitulagi en oft getur
verið erfitt að sjá fituna þegar önd-
in er keypt innpökkuð því að þá
eru iðulega tvær bringur í pakka
og liggja fituhliðarnar saman á
meðan kjöthliðarnar snúa út. En
yfirleitt er þetta nú í góðu lagi, ég
hef aldrei fengið andabringur sem
ekki voru góðar.“
Að elda öndina er ekki snúið.
Eftir að kjötið hefur náð herberg-
ishita sker Nanna tígulmynstur í
fituna, kryddar svo bringurnar og
setur þær beint á kalda pönnu en
lætur hitann hækka hratt. „Þá
byrjar fitan að bráðna af kjötinu og
mýkir það um leið. Ég steiki kjötið
á fituhliðinni í nokkrar mínútur,
þar til fituhliðin hefur tekið góðan
lit og fitan runnið vel úr henni, sný
henni svo og steiki í 1-2 mínútur.
Tek hana svo af hitanum og læt
oftast bíða í um fimm minútur áður
en hún fer inn í ofninn og steikist
þar, yfirleitt við 180-200°C í 8-12
mínútur eftir þykkt og eftir því
hvað maður vill hafa hana mikið
steikta.“
Ekki endilega alveg eins
Þótt Nanna hafi eldað anda-
bringur mörg jól í röð, þvert á
fyrri heit, er ekki þar með sagt að
þær séu alltaf eldaðar á nákvæm-
lega sama hátt. Stundum nuddar
hún bringurnar einungis upp úr
pipar og salti, stundum eru þær
kryddaðar meira eða látnar liggja í
kryddlegi, t.d. rauðvínslegi með
kryddjurtum. Einnig hefur hún
marínerað þær í kryddlegi úr púrt-
víni, hunangi og sojasósu.
Nanna segir andabringur hent-
ugan jólarétt m.a. vegna þess hve
stuttan tíma matseldin tekur. Er
gott að losna við það, í amstri
jólanna, að þurfa að standa yfir
pottunum í eldhúsinu svo tímunum
skiptir. „Þá kaupir maður bring-
urnar tilbúnar og snyrtar sem ger-
ir eldamennskuna léttari en ef ver-
ið væri að vinna með heilan fugl.
Þegar bringurnar koma út úr ofn-
inum þarf svo bara að láta þær
standa í nokkrar mínútur, skera
svo í sneiðar, setja á fat og bera
fram.“
Sætleiki og fita
Nönnu þykir koma vel út að hafa
steiktar perur eða epli með önd-
inni, þurrkaðar apríkósur, sveskjur
og aðra ávexti. Sætleikinn í ávöxt-
unum skapi gott mótvægi við fit-
una í öndinni. Ofnbakað rót-
argrænmeti eins og
butternut-grasker og sætar kart-
öflur henta líka vel með andar-
bringum. „Rauðvín fer vel með
andarbringu en ekki spyrja mig
um tegundir. Ég bið einfaldlega
um leiðsögn í vínbúðinni og finn
þannig gott rauðvín með öndinni ár
hvert.“
En hversu mikið þarf að kaupa
inn? Nanna mælir með að gera
ekki ráð fyrir minna en einni
bringu á hvern fullorðinn gest.
„Dóttir mín mun elda andabringu
fyrir fjóra í ár og var einmitt að
spyrja mig út í þetta. Við vorum
sammála um að best væri að elda
eina bringu á mann og svo eina til
viðbótar. Það sakar ekki þótt eitt-
hvað verði afgangs af bringunum,
enda eru þær góðar kaldar og líka
fínar í salöt af ýmsu tagi.“
Andabringur henta vel í amstri jólanna
Matreiðslan tekur ekki langan tíma og öndin bragðast vel hvort sem hún er heit eða köld Nanna Rögnvaldar
segir gott að hafa sæta ávexti með öndinni, s.s. steiktar perur eða epli, til að skapa mótvægi við fituna
Ómótstæðilegt Andabringan hentar mjög vel köld með salatréttum og upplagt að nota þannig afgangana úr veislunni, ef einhverjir eru.