Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.12. 2014
Í vikunni sýndi Sjónvarpið heimildarmyndinaÞrumusál en hún fjallar um afrekstónlist-arkennara nokkurn við Kashmere Gardens-
skólann í Houston í Texas í Bandaríkjunum. Skól-
inn er hverfisskóli í hverfi svartra og mátti skilja að
félagslegt og efnahagslegt bakland nemenda væri
ekki upp á marga fiska.
Umræddur kennari, Conrad O. Johnson að nafni,
sem gekk undir gæluheitinu prófessorinn, prof, var
sagður hafa sótt tónleika Otis Reddings, sálar-
söngvarans ástsæla, árið 1967, hrifist mjög og feng-
ið þá hugsýn sem síðar varð að staðföstum ásetn-
ingi, nefnilega að nýta þá umgjörð sem hann þóttist
greina um tónleikahald Reddings, sem skapandi
fyrirmynd í tónlistarkennslu við Kashmere Gar-
dens-skólann. Hann hófst strax handa og stofnaði
skólahljómsveitina Kashmere Stage Band. Hún
sótti fljótlega í sig veðrið og varð þekkt um öll
Bandaríkin sem afburðagóð djasssveit enda vann
hún ítrekað til verðlauna í keppnum millum skóla.
Brátt skapaðist það orðspor að Kashmere Stage
Band væri ósigrandi í slíkum keppnum.
Á bak við sveitina stóð skapari hennar, stjórn-
andi, lagahöfundur og útsetjari, sjálf Þrumusálin,
prof. Conrad O. Johnson. Hugmynd hans var sú að
með þátttöku í hljómsveitinni myndu nemendum
opnast leiðir inn í tónlistarlífið. Þeir myndu finna þá
tónlistarhæfileika sem byggju með þeim. Þetta
gekk eftir. En ekki nóg með það. Það merkilega var
að nemendurnir fundu ekki aðeins tónlistartaugina
sem í þeim bjó heldur sjálfa sig í víðari merkingu.
Eftir því sem Kashmere Stage Band óx ásmegin
varð sjálfstraust hinna ungu tónlistarmanna meira.
En ekki aðeins fór meðlimum hljómsveitarinnar að
ganga betur. Það átti almennt við um nemendur í
hinum sigursæla skóla. Námsárangur í Kashmer
Gardens-skólanum tók nú að batna á öllum sviðum!
Skyldi vera einhvern lærdóm að draga af þessari
sögu? Í mínum huga er svo. Í fyrsta lagi, að þegar
sá sem ekki býr við sjálfstraust öðlast trú á sjálfan
sig, virkjast orka sem hæglega getur orðið að miklu
afli. Í öðru lagi, að þegar fólk finnur fyrir jákvæðni
og uppbyggjandi anda í umhverfinu þá hefur það
smitandi áhrif. Í þriðja lagi, að listirnar búa yfir
undraafli.
Þegar þjóð lendir í þrengingum þá á hún að efla
tónlistarfræðslu og þegar hópur þarf að ná saman
þá á hann að spila og syngja. Þegar þjóð vill lyfta
andanum þá greiðir hún götu bókmenntanna og
þegar hún vill læra að hugsa utan ramma auk innan
hans, þá eflir hún myndlistina.
Þess vegna gladdist ég þegar samið var við tón-
listarkennara á dögunum þótt eflaust megi gera
betur við þá. Þess vegna hef ég tekið undir með
þeim sem vilja lága skattlagningu, ef þá nokkra, á
bækur og þess vegna tek ég undir með þeim sem
vilja ekki láta skerða framlög ríkisins til mynd-
listar. Þvert á móti eigi að auka þau.
Listirnar efla alla dáð engu síður en vísindin.
Ekki bara við Kashmer Gardens-skólann í Hou-
ston. Þær gera það alls staðar!
Sjálfstraust
* Þess vegna hef ég tekið undirmeð þeim sem vilja lágaskattlagningu, ef þá nokkra, á bæk-
ur og þess vegna tek ég undir með
þeim sem vilja ekki láta skerða
framlög ríkisins til myndlistar
ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM
Ögmundur Jónasson
ogmundur@althingi.is
Tónlist Fleetwood Mac virðist
hafa átt sérstaklega upp á pall-
borðið í ár hérlendis en í lok
október voru meðal annars
haldnir tónleikar þar sem íslenskir
tónlistarmenn fluttu tónlist sveit-
arinnar. Bergur
Ebbi Benedikts-
son, lögfræðingur
og uppistandari,
skrifar svo um
þetta æði á Twit-
ter: „Rökrétt framhald Fleetwood
Mac hipstera appreciation-ins er
Eurythmics. Og það er svo sem
alveg að gerast meðal premium
hipstera.“
Fjölmiðla- og
kvikmyndagerð-
armaðurinn Þor-
steinn J. Vil-
hjálmsson átti
sitt innlegg um
náttúrupassann í vikunni á Face-
book: „Ef ríkið ætlar að rukka inn
á náttúru Íslands, þá vil ég fá
endurgreitt fyrir þetta rok, ríkið
strax í rjúkandi skuld.“
Björk Vil-
helmsdóttir,
borgarfulltrúi
Samfylkingar hjá
Reykjavíkurborg,
skrifaði á Facebo-
ok um mál málanna síðustu daga:
„Jólin og Jesús eru óaðskiljanleg.
Við menntum ekki börn og fólk
með því að halda einhverju frá
þeim, heldur með fræðslu, kynn-
ingu og umræðu. Trúboð er ekki
hluti af skólastarfi en á jólunum
fögnum við fæðingu Jesú.“
Edda Sif Páls-
dóttir, fjölmiðla-
kona hjá 365
miðlum, ritaði á
Twitter í gær:
„Tók kjól með
mér í vinnuna sem ég hef ekki far-
ið í síðan ég las síðast fréttir á
RÚV. Núna er búið að boða til
starfsmannafundar.“ Eftir þessa
klausu skrifaði Edda Sif fjögurra
stafa orð; Fxxx.
Og Ásdís Rán
fyrirsæta á loka-
orð vikunnar: „Í
framhaldi af öllum
þessum glæsilegu
matreiðslubókum
og þar sem eru ekki til fleiri upp-
skriftir ætla ég að gefa út nýtt
concept fyrir næstu jól – 20 ways
to make your husband happy in
the kitchen!“
AF NETINU
Eldurinn; landið, fólkið, lögin: Gullmolar úr
gríðarmiklu safni Ómars Ragnarssonar á
Ríkisútvarpinu eru komnir út á fjórum disk-
um. Ómar hefur fylgst með öllum eldgosum
sem geisað hafa á Íslandi frá því Sjónvarpið
hóf göngu sína. Á diskunum eru einnig við-
talsþættir Ómars og þættir um náttúru
landsins. Brot úr einum vinsælasta spurn-
ingaþætti Sjónvarpsins; auk tónlistar Ómars
í flutningi þekktra söngvara.
Önnur útgáfa er Laddinn – eins og hann
leggur sig. Fjórir áratugir af gríni á fjórum
diskum. Stútfullir diskar af gríni úr gullkistu
RÚV. Grínistinn, þáttaröðin um feril Ladda.
Krakkagrín úr Stundinni okkar. Fyrstu
skrefin og gamlir vinir! Og öll myndböndin
við vinsælustu lögin.
Stundarkassinn er fjórir diskar með efni
úr Stundinni okkar. Á þessum diskum eru
allir þættir Stundarinnar síðan Gói byrjaði
að vinna í Stundarleikhúsinu. „Að auki læt
ég fylgja með smá aukaefni,“ segir Gói. „Því
auk þáttanna eru öll lögin á einum disk, þú
getur kíkt bak við tjöldin við gerð Stund-
arinnar. Þetta er okkar góða stund, yndis-
lega stundin okkar.“
Loks eru Vesturfarar, þættir Egils Helga-
sonar um afdrif og afkomendur Íslendinga í
Vesturheimi, komnir út á mynddiskum.
Þriggja diska útgáfa með ítarefni, þátt-
unum Vestur-Íslendingar eftir Ólaf Ragn-
arsson frá 1976 og heimildarmyndinni Ísland
á sléttum Kanada frá 1941. Allt myndefnið
er með enskum texta. Sérstök útgáfa fáanleg
fyrir Bandaríkin og Kanada.
Morgunblaðið/Eggert
Fjölbreytt útgáfa RÚV
ÓMAR RAGNARSSON, LADDI, STUNDIN OKKAR OG VESTURFARAR ERU Í
AÐALHLUTVERKUM Í DISKAÚTGÁFU RÍKISÚTVARPSINS FYRIR JÓLIN.
Laddi Egill
Helgason
Ómar
Ragnarsson
Kristín Þóra Haralds-
dóttir og Guðjón
Davíð Karlsson,
öðru nafni Gloría og
Gói, hafa umsjón
með Stundinni okkar.
Vettvangur