Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 48

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 48
Í snoturri íbúð í Garðabænum tekur á móti blaðamanni brosandi andlit hins fjölhæfa poppsöngvara Jóns Jónssonar. Ilmurinn úr íbúðinni er svo lokkandi. „Þetta er eitthvert kerti sem Hafdís keypti í Bandaríkjunum,“ segir Jón en kertið leikur á lyktarskynið og virðist sem svo að eitthvað gómsætt sé í ofninum. Jón og fjölskylda hans eru nýkomin úr fríi frá Orlando í Bandaríkjunum og sjá fram á notalegan desember sem er ansi velkomið í ljósi þess að annasömum tíma er nú lokið eft- ir að splunkuný plata kom í heiminn. Í raun hafa síðustu tvö ár verið mjög anna- söm hjá fjölskyldunni og óhætt að segja að Jón hafi staðið í tvenns konar útgáfu, því auk plötunnar hafa tvö falleg börn komið í heim- inn, Jón Tryggvi, 18 mánaða og Mjöll, 11 vikna. Í miðjum barneignum útskrifaðist Haf- dís Björk Jónsdóttir, unnusta og barnsmóðir Jóns, sem tannlæknir í vor. Jón tók sér þá feðraorlof eftir að Jón Tryggvi fæddist svo að Hafdís gæti klárað skólann. „Það er svolítið skondið að hugsa til þess að Mjöll er núna á þeim aldri sem Jón Tryggvi var á þegar Hafdís fór í skólann eftir barnsburð. Hún kom iðulega heim og gaf honum brjóst eða þá að ég skaust upp í skóla. Hún hafði líka verið dugleg um sum- arið að byggja upp góðan lager svo Jón Tryggvi fengi sína brjóstamjólk,“ segir Jón. „Það voru allir í kringum okkur tilbúnir til þess að hjálpa okkur svo að þetta gengi upp, þar á meðal ég. Mér fannst sjálfsagt að fara í orlof og vera með syni mínum. Áður en hann fæddist hugsaði ég hins vegar að við mynd- um bara fá einhvern til að passa Jón Tryggva en þegar hann kom í heiminn og ég upplifði þessa foreldraást þá var það það allra síðasta sem ég vildi gera, að láta hann í hendurnar á einhverjum öðrum.“ Engin vandamál, bara lausnir Jón tók son sinn með sér í ýmsar erinda- gjörðir og segir líklegt að Jón Tryggvi hafi sett Íslandsmet í að fara í útvarpsviðtöl. „Ég tók hann með mér út um allt og það var ótrúlega gaman. Hann var svo vær og hefur líklega tekið meðvitaða ákvörðun um að taka tillit til aðstæðna,“ segir Jón og hlær. Jón Tryggvi var um það bil 7 mánaða þeg- ar parið áttaði sig á því að annar erfingi væri á leiðinni. Það var óvænt en afar velkomið. „Ég hugsaði með mér, er þetta eitthvert grín? Jón Tryggvi var nýfæddur! En þegar við vorum búin að melta fréttirnar þá vorum við alsæl. Þetta er ekkert sjálfgefið. Ég tala nú ekki um þegar það kom í ljós að barnið væri stelpa, þá vorum við komin með eitt af hvoru og fannst okkur lánið leika við okkur,“ segir hann einlægur. „Ég er svo endalaust þakklátur Hafdísi, hvað hún lætur allt líta út fyrir að vera auðvelt. Hún lætur ekkert stoppa sig og var með Jón Tryggva á brjósti og ólétt í námi. Hún gjörsamlega rúllaði þessu námi upp og útskrifaðist með prýði sem tannlæknir. Það eru engin vandamál hjá henni, bara lausnir,“ segir Jón sem er aug- ljóslega stoltur af sinni. „Það er mjög gaman að fá að heyra frá fólki: „Ég fór til konunnar þinnar, alveg dýrðleg! Mér leið svo vel í stólnum.“ Mér finnst æðislegt að heyra þetta og trúi þessu vel, því mér líður vel með henni alla daga.“ Jón segir það dásamlegt að upplifa það að verða foreldri. Eitthvað breytist hið innra. „Ég áttaði mig ekki á því hversu stór tilfinn- ing þetta væri fyrr en ég upplifði það sjálfur að eignast börn. Þá fer maður líka að hugsa um foreldra sína og verður þakklátur fyrir hvað þau hafa gert fyrir mann. Þetta er klár- lega, þó að ég sé í mörgum verkefnum, stærsta og skemmtilegasta verkefnið.“ Ferlið ævintýri líkast Eins og mörgum er kunnugt þá landaði Jón Jónsson samningi við útgáfufyrirtækið Epic Records sem tilheyrir Sony-samsteypunni ár- ið 2012. Jón útskrifaðist úr Boston University árið 2009 og hafði félagi hans úr skólanum komið honum í samband við Bryant Reid, sem er bróðir L.A. Reid, stjórnarformanns Epic Records, og fyrrverandi dómari raun- veruleikaþáttarins X-Factor. Eftir að hafa fengið tölvupóst um að vera boðaður í ein- hversskonar áheyrnarprufu voru Jón og Kristján Sturla Bjarnason, vinur hans og hljómsveitarfélagi, á leið til New York. Þeir spiluðu fyrir Reid-bræðurna og aðra sem varð til þess að L.A. Reid sagði þá eft- irminnilegu setningu: I want to carry you on my shoulders for the world to see. Það var ekki verið að skafa af hlutunum og tónlist- armógúllinn augljóslega virkilega hrifinn af þeim félögum og tónlistinni. Óhætt er að segja að ferðin hafi verið súrrealísk og minnti helst á atriði úr bíómynd. Stuttu síðar var skrifað var undir samaning sem hljóðaði upp á nokkrar plötur. Þetta var í ágúst 2012. Rifti samningnum við Sony Það er ekki á hverjum degi sem poppsöngv- ari frá Íslandi tekur sig til og riftir samningi við risa á borð við Sony. Það þarf kjark til þess að binda enda á tækifæri eins og Jón Jónsson hafði fengið og hefði getað endað með heimsfrægð. „Maður þarf að vera þakk- látur fyrir það sem maður hefur í stað þess að vera alltaf að bíða eftir einhverju stærra og meira og halda að grasið sé grænna hin- um megin,“ segir Jón. Ástæðan fyrir samningsslitum var sú að lít- ið var um hreyfingu og segir Jón það ekki hafa verið fullnægjandi að fá ekki að gera það sem honum þykir skemmtilegt, að semja tónlist. „Við vorum samningsbundnir og máttum því ekki gefa neitt út. Með tímanum fær maður leiða því á að vera að spila alltaf sömu lögin. Það er ekki hægt að gera hlé á sköpunargáfunni, hún gæti þess vegna verið horfin á morgun og því þarf að njóta hennar á meðan hún er til staðar.“ Viðurkenningin var mikil Jón segir upphafið að samningnum hafa verið ótrúlegt. „Við fengum strax að spila fyrir Lífið er söngleikur ÞAÐ ER EKKI Á HVERJUM DEGI SEM POPPSÖNGVARI FRÁ ÍSLANDI RIFTIR SAMNINGI VIÐ RISA Á BORÐ VIÐ SONY. JÓN JÓNSSON ER HINS VEGAR SAMKVÆMUR SJÁLFUM SÉR OG VILDI FREKAR LEYFA SKÖPUNARGÁFUNNI AÐ BLÓMSTRA HÉR HEIMA EN AÐ ELTAST VIÐ HEIMSFRÆGÐ. GLÆNÝ PLATA HEFUR LITIÐ DAGSINS LJÓS EN JÓN HEFUR EINNIG STAÐIÐ Í ANN- ARS KONAR „ÚTGÁFU“ OG EIGNAST TVÖ BÖRN Á TVEIMUR ÁRUM. Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@mbl.is * Maður þarf að vera þakk-látur fyrir það sem maðurhefur í stað þess að vera alltaf að bíða eftir einhverju stærra og meira og halda að grasið sé grænna hinum megin. Viðtal 48 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.12. 2014 Þegar Jón og fjölskylda voru stödd úti á Flórída fyrir stuttu fékk Jón símtal frá Los Angeles. Honum var boðið að taka þátt í skemmtilegu alþjóðlegu verkefni, að syngja lag heimsmeist- aramótsins í handbolta ásamt öðrum poppstjörnum. Jón tók tilboðinu og var flogið með alla fjölskylduna til Madrid á Spáni dag- inn eftir og dvöldu þau þar í nokkra daga áður en ferðinni var heitið aftur heim. Jón segir það hafa verið lyginni líkast hvað vel gekk að ferðast með fjölskylduna og þar á meðal litlu börn- in sín tvö frá Bandaríkjunum til Spánar. „Það var virkilega gaman að fá þetta verkefni. Ég þekkti þó engan þarna en ákvað að gúggla nokkra, t.d. sænska gæjann sem ég spjallaði mikið við. Þá var hann með yfir 19 milljón áhorf á Youtube. Svo prófaði ég að gúggla franska náungann, Mani Hoffman, sem var orðinn mikill vinur minn. Hann samdi meðal annars lagið Starlight sem sló í gegn í kringum aldamótin.“ Í janúar mun Jón síðan ferðast til Katar og syngja lagið með hópnum í beinni útsendingu fyrir framan alheim en heimsmeistaramótið í handbolta hefst 15. janúar. Syngur á heimsmeistaramótinu Jón, Hafdís Björk og börnin þeirra, Jón Tryggvi og Mjöll, nutu sín afar vel á Flórída.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.