Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.12.2014, Page 59
14.12. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 59
Síðasti galdrameistarinn er æv-
intýrasaga eftir Ármann Jak-
obsson og þar er fjallað um
hugrekki og vináttu, undirferli
og svik. Þetta er fyrsta barna-
bók Ármanns og hún er til-
nefnd til Íslensku barnabóka-
verðlaunanna. Bergrún Íris
Sævarsdóttir myndskreytir.
Þegar síðasta félaga Dreka-
sérsveitarinnar mistekst að
drepa síðasta drekann í ríkinu
er Kári kallaður til. Hann á að
verða galdrameistari konungs-
ins en þarf að glíma við þrjár
þrautir til að sanna kunnáttu
sína. Gallinn er sá að hann kann
alls ekkert að galdra. Á meðan
vofir yfir innrás Skuldar drottn-
ingar sem er sögð bæði grimm
og göldrótt.
Galdrameistari
Ármanns
Kok er ljóðabók eftir Kristínu Eiríksdóttur.
Kristín hefur unnið jöfnum höndum að rit-
störfum og myndlist og nýtir hér hvort tveggja í
einu í fyrsta sinn. Hún tvinnar saman ljóðaflokk
og teikningar og til verður bók þar sem fjallað
er um samband og sambandsleysi, ást og and-
úð, þrá og skeytingarleysi. Bókin er tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Ljóð og teikningar
Örn Sigurðsson er höfundur bókarinnar
Króm og hvítir hringir en þar rekur hann
sögu helstu bílategunda liðinnar aldar. Þró-
un þeirra birtist á rúmlega 700 myndum
sem sýna glæsilega bíla, einstæðar línur
þeirra, fjölbreytt mælaborð og marg-
víslegar vélar. Bók fyrir alla bílaáhugamenn.
Bók bílaáhugamannsins
DNA, nýjasta bók Yrsu Sigurð-
ardóttur, er ofarlega á met-
sölulistum eins og vænta mátti,
enda á Yrsa stóran og stað-
fastan lesendahóp. Frést hefur
að hjón hér í bæ hafi fyrir sið
að kaupa tvö eintök á hverju
ári og komi sér síðan þægilega
fyrir og lesi í sitt hvoru lagi.
Bókin hefst á því að kona er
myrt á hryllilegan hátt og eina
vitnið er ung dóttir hennar.
Skömmu síðar lætur morðing-
inn aftur til skarar skríða.
Óhugguleg
morð og ungt
vitni
Lolita, Yrsa,
galdrar, sveit,
haf og bílar
NÝJAR BÆKUR
NÝ BÓK FRÁ YRSU SIGURÐARDÓTTUR ER OFAR-
LEGA Á METSÖLULISTA. FJALLAÐ ER UM BÚSKAP
Í REYKJAVÍK Í NÝRRI BÓK OG ÖNNUR BÓK
FJALLAR UM BÍLA OG SÚ ÞRIÐJA UM SLYS Á HAFI
ÚTI. BARNABÆKUR ERU Á SÍNUM STAÐ OG
SÖMULEIÐIS LJÓÐIN. SVO ER HIN FRÁBÆRA
SKÁLDSAGA LOLITA KOMIN ÚT Á ÍSLENSKU.
Bjarni Bjarnason er höfundur skáld-
sögunnar Hálfsnert stúlka. Ung
kona finnst illa til reika eftir ellefu
ára dvöl í afskekktum skógi í Ástr-
alíu. Sálgreinandi fær það flókna
verkefni að komast að því hvað
gerðist. Í samtölum þeirra hverfur
hún inn í draumkennda frásögn sem
hann þarf að túlka og vinna úr. Þeg-
ar í ljós kemur hvað gerðist fer af
stað óvænt arburðarás.
Draumkennd
frásögn
Eggert Þór Bernharðsson, sagnfræðingur og pró-
fessor, er tilnefndur til Íslensku bókmenntaverð-
launanna fyrir bók sína Sveitin í sálinni - Búskapur í
Reykjavík og myndun borgar. Þar er rakið í texta og
rúmlega 550 ljósmyndum hvernig ásýnd Reykjavíkur
tók stakkaskiptum á 20. öld. Varpað er ljósi á vöxt
og þróun höfuðborgarinnar þar sem saman flétt-
uðust fornir hættir og ný viðhorf.
Fornir hættir og ný viðhorf
*Menning sem leyfir fólkinu ekki að lifaán ótta er engin menning. Karen Blixen BÓKSALA 3.-9. DESEMBER
Allar bækur
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1 LjónatemjarinnCamilla Läckberg
2 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
3 DNAYrsa Sigurðardóttir
4 Þín eigin þjóðsagaÆvar Þór Benediktsson
5 NáðarstundHannah Kent
6 Gula spjaldið í GautaborgGunnar Helgason
7 Sveitin í sálinniEggert Þór Bernharðsson
8 Saga þeirra, sagan mínHelga Guðrún Johnson
9 SkálmöldEinar Kárason
10 Vísindabók Villa 2Vilhelm Anton Jónsson
Innbundin skáldverk &
hljóðbækur
1 Kamp KnoxArnaldur Indriðason
2 DNAYrsa Sigurðardóttir
3 ÖræfiÓfeigur Sigurðsson
4 NáðarstundHannah Kent
5 SkálmöldEinar Kárason
6 VonarlandiðKristín Steinsdóttir
7 KoparakurGyrðir Elíasson
8 KataSteinar Bragi
9 Þrír sneru afturGuðbergur Bergsson
10 TáningabókSigurður Pálsson
MÁLSHÁTTUR VIKUNNAR
Trúin flytur fjöll.
Ein frægasta skáldsaga 20. aldar, Lolita eftir Vla-
dimir Nabokov, er komin út í íslenskri þýðingu
Árna Óskarssonar og með eftirmála Hallgríms
Helgasonar. Sannarlega mikill fengur fyrir bók-
menntaáhugamenn. Aðalpersóna bókarinnar er
Humbert Humbert sem er gagntekinn af barn-
ungri stúlku. Nabokov skrifar meistaralega um
eldfimt efni í bók sem er bæði fyndin og áhrifa-
mikil - og reynar ennþá líkleg til að hneyksla ein-
hverja.
Meistaraverk Nabokovs
Háski í hafi II - Sjóslys við Ísland í byrjun 20. aldar
er framhald vinsællar bókar Illuga Jökulssonar sem
kom út í fyrra. Sem fyrr segir Illugi sannar sögur af
sjóslysum og björgunarafrekum. Hann segir með-
al annars frá Hannesi matrós sem ólst upp í sárri
fátækt en bjargaði síðar skipsfélögum sínum. Einn-
ig er sagt frá hrakningum erlendra sjómanna við
landið og frá uppvöðslusömum enskum skipstjóra
og dularfullu slysi þegar togari fórst með leyni-
legan farm – og fleiri magnaðar sögur er að finna.
Hörmungar á hafi úti