Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 45

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 45
Ofsa klár. Alveg eins og þegar mamma var lítil, þá hélt hún að væri pínulítið fólk inni í útvarpinu og Bíbí glápti bara á járnplötuna og hélt að fólkið ætti að vera inni í götunum. Hún sá ekkert. Fattaði ekki að loka öðru auganu og kíkja. Reyndu að loka öðru auganu og kíkja, sagði ég. Annars sleppi ég þér. En hún sá ekkert. Og auðvitað sá hún ekkert. Með bæði augun lokuð. Ég var að verða soldið þreytt á henni. Samt reyndi ég að lyfta henni betur og halda fyrir annað augað á henni svo að hún gæti kíkt. En þá hélt hún auðvitað að ég ætlaði ekki að leyfa henni að sjá neitt. Hún var svo vitlaus og fattaði ekki að maður getur ekkert séð ef maður er með bæði augun opin. Maður verður að loka öðru auganu til að geta kíkt í gegnum lítið gat. Hún kunni það ekki. Þetta var vonlaust. Og mér fannst ekkert þægilegt að standa þarna svo ég lét hana niður. En þá byrjaði hún að væla. Ég vil sjá pabba, ég vil sjá pabba. Þú getur ekkert séð hann. En þú sagðir að við færum að sjá hann. Ég sagði það ekkert, ég sagði bara að við færum að sjá hvernig pabbi er, afþví pabbi dó. En þú getur ekki kíkt nema þú kunnir að loka öðru auganu. Þá geturðu séð. En það er ekki pabbi. Fólkið er bara eins og hann er núna. Afþví hann dó. Það heita lík. Það er dáið fólk. Stundum verður maður soldið þreyttur á henni. Ég sagði auðvitað aldrei að við færum að sjá pabba. En það var vonlaust að tala við hana. Ég vil ekki að pabbi dó, sagði hún. Þú getur ekkert sagt það, sagði ég, þú getur ekkert ráðið því. Ég vil ekki heldur að hann sé dáinn, en ég get ekkert ráðið því, ekki lét ég hann deyja. Jú, sagði hún þá. Ég hefði getað lamið hana. Jæja, lét ég hann deyja? Já, og þú átt að láta mig sjá hann, þú sagðist ætla að gera það. Ég gafst sko upp á því að tala við hana. Ég sagði henni að við myndum bara labba heim. Þá varð hún brjáluð, kastaði sér niður á stéttina og grenjaði og heimtaði að fá að sjá pabba. Sama hvað ég gerði, hún neitaði að hlusta á mig. Hann er ekkert hérna, sagði ég þá, ég hélt það bara. Hvað átti ég að gera? Það var kona í hvítum slopp að horfa á okkur hjá bílastæðinu. Ekki gat ég farið að láta Bíbí liggja þarna. Hún hefði aldrei ratað heim. Og kannski máttum við ekki vera þarna svo ég sagði henni bara að ef hún hætti að hugsa um þetta þá væri pabbi kannski heima. Ég vildi ekkert hafa hana liggjandi þarna. Ef þú hættir að hugsa um það að hann sé dáinn, þá er hann kannski ekkert dáinn. Og verður kannski heima þegar við komum þangað. Eigum við að prófa það? sagði ég. Nei. Alltaf sama frekjan. Nei. En hún fór samt að velta því fyrir sér. Að minnsta kosti TMM 1996:1 35
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.