Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 59

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 59
kann að hljóma, er sjónarhorn Aimé Césaire í frægum ljóðabálki, Cahierd’un retour au pays nataU, þar sem hann fordæmir nýlendustefnuna, hið sama og sjónarhorn Vesturlandabúa. Fylgi maður honum línu fyrir línu á leið hans aftur heim til fæðingareyjar sinnar, Martinique í Antillaeyjaklasanum, rekst maður fyrst á það að hann lýsir heimasvæði sínu sem „ ... örsmárri bungu sem titrar nokkraþumlunga yfir sjónarröndinni...“. Síðan,þegar hann fer að tala um okkur, eyjarskeggjana samlanda sína, sér hann „... nokkrarþúsund- ir dauðvona fólks sem eigrar um á kúptri skel eyjarinnar...“ Hið örsmáa og þrönga. Lokuð skel. En aftar í þessu langa og magnaða ljóði klippir hann hins vegar hastarlega á hefðina um suðrænu, sykursætu ímyndina þegar hann lýsir Antillaeyjun- um: „ ... eyjar ör hafsins, eyjar sönnun um sár, þöglar eyjar, formlausar eyjar, eyjar pappírssnifsi sem sáldrað hefur verið yfir hafið...“. Skáldin sem aðhylltust Negrahyggjuna svokölluðu, taglhnýtingar og skrifar- ar-staglarar, átu síðar þessa sýn á eyna upp eftir Césaire. Enda þótt þau reyni að gefa eyjunum sínum nýtt og aukið gildi eru þau stöðugt að kvarta yfir því hversu litlar þær séu, hversu mjög þær séu reyrðar í fjötra örlaganna, hvað þær séu þröngar, hversu mjög skorti þar súrefni. .., í stuttu máli sagt: um hina háskalegu einangrun-fjarlægð frá heiminum. Og öllu heila klabbinu var á sínum tíma troðið í allsherjarsekkinn mikla sem gekk út á að fordæma nýlendustefnuna og okkur var á sínum tíma uppálagt að axla þann sekk án þess að við vissum almennilega hvað af þessu væri eigin úrkynjun og hvað eldingum nýlendustefnunnar að kenna. Nú getum við hins vegar lagt sekk- inn frá okkur, farið í gegnum innihaldið og valið úr. Negrahyggjan hristi upp í ýmsu í fari okkar sem átti rætur að rekja til aðdáunar okkar á sigurvegurum Vesturlandanna og firrts undirlægjuháttar gagnvart hugmyndum íbúa þeirra um heiminn. En sýn Negrahyggjunnar á eyna, hugmynd hennar um eyjamenninguna, var áfram vesturlensk: eyjan er enn lokuð, þröng, kæfandi, fjarri öllu.2 Menn láta sér nægja að hafna paradísarsýninni. Byltingin hafði aðeins tekist að hluta til. Saint-John Perse byrjar hins vegar að hreyfa við hlutunum. Gagnrýnend- ur hafa sýnt fram á það hversu djúpum rótum (öfugt við þá sem vegsömuðu Negrahyggjuna) bleiknefjinn Perse, sem var afkomandi fyrstu landnemanna, stendur í kreólamenningu sinni. Alkunna er að skáldasýn hans er mjög lituð af þessum kreólska eyjaheimi. Þar sem Saint-John Perse var bleiknefji og sem slíkur í valdastöðu hafði hann algerlega frjálsar hendur gagnvart menningu kreóla. Hann þurfti ekki að sanna neitt, ekki að ákæra neinn, ekki að afneita TMM 1996:1 49
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.