Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 77

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 77
3. Bréf til samlanda Pólverji nokkur sagði einu sinni við mig að Mickiewicz (1798-1855) — skáldjöfur Pólverja— væri mun merkara skáld en Púskín. Ég varð alveg forviða, horfði á hann furðu lostinn, hann sá hvaða spurning brann á vörum mér og flýtti sér því að bæta við: „Pólverjar eru þeir einu sem geta skilið hann til fulls.“ Þú ert eflaust líka að velta fyrir þér hvaða mælikvarða þessi ágæti Pólverji hafi notað til að bera saman skáldin tvö og setja samlanda sinn skör ofar. Það er einfalt mál: hann þjáðist af heiftarlegri þjóðrembu. Fyrir tvö hundruð árum fylgdist Goethe með því hvernig skipaskurðum fjölgaði, byggðir voru nýir vegir og fleiri siglingaleiðir voru opnaðar og taldi réttilega að fyrst og fremst rithöfundar nytu góðs af þessum stórbættu samskipta- og samgöngubótum; það var að ég held ástæðan fyrir því að hann bætti því við að tími þjóðlegra bókmennta væri liðinn og að skeið heims- bókmenntanna væri runnið upp. En hann gat ekki séð fyrir þann sjúkdóm sem herjar á samtíma okkar og gerir það að verkum að jafnvel ágætustu rithöfundar eru reyrðir í bönd þjóðernisins, eru einungis taldir hafa gildi fyrir innfædda, eru gerðir að þjóðgörðum. Ég er auðvitað að hugsa um Papadíamandis, og upp í huga minn kemur Pólverjinn minn með sinn Mickiewicz, því þetta ástand ríkir víða og það er alvarlegra en svo að við tveir getum axlað það. En höldum okkur við það sem að okkur snýr. Afreksmenn okkar í íþróttum mega keppa hvar sem er í heiminum, ríka fólkið okkar má spóka sig í París og London, og hvers vegna, hvers vegna í ósköpunum má hann Papadíamandis okkar þá ekki reka nefið út fyrir landamæri Grikklands og vera á boðstólum í bókabúðum og á bókasöfnum erlendis? Því miður er raunveruleikinn erlendis honum átak- anlega andsnúinn: framámenn í nokkrum menningarklúbbum muna eftir honum þegar þeir skipuleggja sínar hundleiðinlegu samkomur; nokkrir prófessorar í nýgrískum fræðum sinna honum eitthvað —enda verða þeir jú að sinna einhverjum rithöfundum; þá sjaldan verk hans eru þýdd er þeim ævinlega fylgt úr hlaði frá mjög grísku sjónarhorni. Hingað til hef ég ekki rekist á nokkurn einasta erlendan rithöfund, ekki nokkurn einasta góðan lesanda heimsbókmennta sem hefur heyrt verka Papadíamandis getið. Er Papadíamandis þá ekki mikill höfundur? Jú, en bókmenntagagnrýnin okkar er smá í sér, skammsýn. Og svo þverstæðukennt sem það kann að hljóma, þá er þessi smæð gagnrýninnar tengd aldeilis óendanlegri útþenslu á öðru sviði: Papadíamandisfræðunum. Ýmiskonar skrif um Papadíamandis sem nú eru orðin gríðarleg að umfangi — ein blaðsíða eftir Papadíamandis á móti tuttugu blaðsíðum túlkenda hans — hún þenst út af sjálfri sér, tútnar út, nærist á sjálfri sér, breytist smám saman í æxli sem dregur allan mátt úr TMM 1996:1 67
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.