Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 107

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Side 107
Geirlaugur Magnússon Gamall vöndur Þegar daginn styttir og nýtt lesmál flæðir yfir búðarborð jafnt í menningar- auðugum bókahöllum sem menningarsnauðum stórmörkuðum vaknar sú spurning hvert gagn sé að ritdómum. Þeir eru svo margir og svo misjafnir, svo misvel grundaðir og oft óljóst af hvaða hvötum eru sprottnir. Sumir virðast hrein auglýsing eða vinargreiði, aðrir upplýsandi, sumir hvetjandi og stundum hvarflar að manni að skammdegismyrkrið hafi vakið upp forynjur öfundar og illvilja. En allt slíkt eru vitanlega getsakir einar. Og svo eru einnig til fleiri forynjur. Til að mynda forynjur vana, forheimskunar og affurhalds. En nóg um það. Einstaka sinnum hendir það einnig að ritdómar íjalla um eitthvað allt annað en þeir gefa sig út fyrir. Ekki síst þegar ritdómarar svona rétt eins og við aðrir dauðlegir og breyskir menn finna hjá sér hvöt til að betrumbæta heiminn. Ekki mun af veita. Hið furðulega er að í slíkum tilfellum verður viðkomandi oftast hendi næst að hverfa aftur til fortíðarinnar um fyrir- myndir. Þó er mér tjáð að einnig í þeirri gylltu fortíð hafi verið uppi þeirra líkar sem lofuðu gyllta fortíð og þannig koll af kolli. Minnir þetta óneitanlega á ágæta sögu um þá Einbjörn, Tvíbjörn, kerlinguna og rófuna. Ekki hirði ég um að rekja þá sögu alla. í skammdegishefti TMM ritar Haukur nokkur Hannesson um ljóðabók ísaks Harðarsonar, Stokkseyri. Slíkt telst vart til tíðinda og enn síður andmæla væri um ritdóm að ræða. En því fer fjarri að svo sé. Hauki er allt annað í hug og eflaust að eigin áliti þarfara viðfangsefni. Tekst ekki lítið í fang og hefur rifið upp hrís til að hirta yngstu kynslóð ljóðskálda, gítarkynslóðina sem hann nefnir svo. Slíkt telst heldur vart til nýmæla, það hefur gjarnan þótt þarft að hirta þá yngstu, líklega í þeirri von að frá þeim væri nokkurrar betrunar von. Ekki verður þó sagt að Haukur hafi rifið upp úr nýræktinni í því skyni þegar hann batt vöndinn. Er einna líkast að ritdómarinn hafi lent inn í tímavél sem hafi varpað honum aftur á bak í tíma, mér er tjáð að slík brögð tíðkist mjög í unglingaframleiðslu draumafabrikkunnar í Hollywood og má segja að sé við hæfí þegar ráðist er gegn unglingadrekanum. En þetta veldur því að öll verður ritsmíð Hauks hin undarlegasta. Þegar TMM 1996:1 97
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.