Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.03.1996, Page 108
hann hefur borið saman strengjahljóðfæri eftir samanburðarreglunni því eldri, því betri, tekur hann til við að sannfæra lesendur TMM um að yngri skáld geti ekki ort. í það minnsta ekki í augum þeirra er kunna að lesa. Því til sönnunar nefnir hann tvö ungskáld sem hafi gloprað því út úr sér að Ijóð séu þeim grafísk fyrirbæri, „mislangar ræmur niður síðurnar“. Nú er það svo að á þessum síðustu og eflaust verstu þegar flestir, þ.á.m. Haukur, lesa frekar ljóð en hlýða á þau, verða ljóð líkt og aðrir textar grafísk mynd á blaði. Það eitt getur ekki talist sönnun þess að yngri skáldin geti ekki ort né heldur „að flest yngri skálda ráði ekki við formið“. Eins og Haukur bendir réttilega á hafa vond skáld ævinlega verið og verða sennilega um ókomna tíð fjölmenn- ari góðskáldunum og þeim fyrrnefndu hefur æ verið og verður mishægt um form, hvort sem það telst bundið eða nefhist því misvísandi og mótsagna- kennda heiti „óbundið form“. En er þá ekki mest um vert að ryðja burt þeim vondu og lítt formkunnandi skáldum? Má vera en þó er það úr þeim grýtta jarðvegi sem spretta skrautblóm skáldskaparins. Þetta hygg ég að Hauki sé mætavel ljóst enda er hann ekki að spúla út leirskáldum heldur flengja einn þann „frambærilegasta af síðari mönnum“ að eigin sögn. ísak Harðarson og hans ágæta bók Stokkseyri verður því að ósekju blóraböggull grundvallar- vandlætingarinnar. Það er því ástæðulaust og gengur reyndar í berhögg við allan málflutning ritdómarans Hauks Hannessonar, að hann skuli harma að skáldskapur ísaks Harðarsonar og eflaust annarra af sömu kynslóð, nái ekki að festa rætur í hugskoti sínu. Þess er engin von að í jarðvegi jafn þétttroðn- um fordómum nái nokkuð að festa rætur enda þrifist þar varla nokkur rót fyrir kjúkum góðskáldanna. Steinn Steinarr skáld hélt allfræga ræðu á deilufundi um nýmæli í ljóða- gerð árið 1952 og komst m.a. svo að orði: „Hvert tímabil finnur listform við sitt hæfi, sem vex, þróast, hrörn- ar og deyr að lokum, án þess að nokkur geti hindrað að svo fari. Á öllum öðrum öldum er þetta listform ófært til sjálfstúlkunar og ekki er ffemur hægt að endurtaka list hins liðna, en jarðarför, sama hve vel hefur heppnast." Það væri óskandi að Haukur Hannesson kæmi fram í fullum útfararskrúða fremur en í sauðargæru ritdómarans næst þegar hann rífur upp hrís til hirtingar ungmennum. Eflaust í dauðans alvöru, hann getur huggað sig við að hún er í senn klassísk og hæfir skrúðanum. 98 TMM 1996:1
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.