Fréttatíminn - 27.03.2015, Page 6
Erlendir
ferðamenn
eyddu
rúmum 600
milljónum í
að leigja sér
bíla á Íslandi
í febrúar.
Ferðamannaiðnaður mikil greiðslukortavelta í Febrúar
Svisslendingar eyddu mestu
Erlendir ferðamenn eyddu næstum 7,9 millj-
örðum króna með greiðslukortum sínum
hér á landi í febrúar. Það er 39,1% hærri upp-
hæð en í sama mánuði í fyrra. Þetta kemur
fram í tölum Rannsóknarseturs verslunar-
innar.
Af áðurnefndri upphæð vörðu ferðamenn-
irnir rúmum tveimur milljörðum króna í
skipulegar ferðir á vegum ferðaþjónustuað-
ila sem tengjast náttúruskoðun en mikil
aukning hefur orðið í þeim geira. Þannig
var erlend kortavelta í skipulagðar ferðir
87,3% meiri í febrúar en í sama mánuði í
fyrra.
Íslensk verslun nýtur einnig góðs af veltu-
aukningu erlendra ferðamanna og jókst um
næstum þriðjung í febrúar frá sama mán-
uði í fyrra og nam rúmum einum milljarði
króna. Útlendingar keyptu útivistarfatnað
fyrir 205 milljónir króna og matvöru fyrir
184 milljónir. 604 milljónir fóru aftur á móti
til bílaleiga sem er 49% aukning frá í fyrra.
Hver erlendur ferðamaður greiddi að
jafnaði með greiðslukorti sínu fyrir um 112
þús. kr. í febrúar sem er 3,5% hærri upphæð
en í febrúar í fyrra. Ferðamenn frá Sviss
keyptu að jafnaði fyrir hæstu upphæðir með
greiðslukortum eða 234 þús. kr. á hvern
ferðamann að jafnaði. Spánverjar fylgja þar
fast á eftir með 217 þús. kr.
s amstarfið í Neskirkju í vetur gefur tilefni til að ætla að kristni og íslam geti þrifist vel saman,“ segir Agnes
M. Sigurðardóttir, biskup Íslands. Í vetur
hafa æskulýðsfélag Neskirkju - NeDó - sem
er í umsjá séra Sigurvins Lárusar Jóns-
sonar æskulýðsprests, séra Toshiki Toma
sem er prestur innflytjenda, og
Horizon - félag múslima á Íslandi
unnið saman í þeim tilgangi að
efla virðingu fyrir ólíkum trúar-
hópum og eyða fordómum.
Fyrr í þessum mánuði tók
félagi úr Horizon, Muhammed
Emin Kizilkaya, til að mynda
þátt í guðsþjónustu á RÚV sem
var send út frá Neskirkju og bað
bænir með þeim Sigurvin og
Toshiki. „Tilgangur samstarfs-
ins er að efna til og auka samtal
menningar- og trúarhefða í
samfélaginu. Þátttaka múslima
í guðsþjónustunni var á þeim
forsendum og eðlileg sem slík,“
segir séra Agnes.
Hún bendir á að frá árinu 2006
hafi starfað á Íslandi Samráðsvettvangur
trúfélaga, lífsskoðunarfélaga um trúarleg
efni og annarra samstarfsaðila. Markmið
hans er að stuðla að umburðarlyndi og
virðingu milli fólks með ólík lífsviðhorf og
af ólíkum trúarhópum og trúarbrögðum og
standa vörð um trúfrelsi og önnur mann-
réttindi. Í stefnuyfirlýsingu samráðsvett-
vangsins segir að hann „veiti leiðtogum og
fulltrúum trúfélaga og lífsskoðunarfélaga
um trúarleg efni tækifæri til að kynnast,
stuðli að málefnalegum samskiptum milli
þeirra, liðki fyrir miðlun upplýsinga og
hjálpi þeim að ræða sameiginleg hags-
munamál á borð við aðgengi að trúarlegri
þjónustu á opinberum vettvangi og taka á
vandamálum sem upp kunna að koma, svo
sem í tengslum við einelti, óeirðir, styrjald-
ir, náttúruhamfarir eða slys.“
Spurð um álit biskups á samstarfi Þjóð-
kirkjunnar við múslima, hvort sem það eru
trúfélög þeirra eða einstaka múslimar, seg-
ir Agnes: „Þjóðkirkjan á aðild að samráðs-
vettvanginum. Hann er afar mikilvægur
vettvangur fyrir samstarf trúfélaga á Ís-
landi. Það er jafnframt mikilvægt að stuðla
að auknu samtali um trúmál í landinu sem
draga úr fordómum. Þjóðkirkjan hefur lagt
áherslu á þetta og hefur átt gott samtal og
samstarf við fjölda trúfélaga.“
Agnes segir reynsluna af samráðsvett-
vangnum, rétt eins og samstarfið í Nes-
kirkju í vetur, gefa til kynna að kristni og
íslam geti þrifist hér á landi í sátt og sam-
lyndi. Spurð um hugmyndir um hvernig
best megi stuðla að því segir hún að fræðsla
og samtal sé forsenda aukins skilnings sem
leiði til umburðarlyndis. „Við eigum því að
gera það sem er hægt til að stuðla að auknu
samtali og samstarfi á þessu sviði.“
Laugardaginn 11. apríl standa NeDó og
Horizon að brennómóti sem haldið verður
í íþróttahúsi KHÍ þar sem þau munu skora
á ýmsa hópa og starfsstéttir í samfélaginu
en með því að leika saman segja þau hægt
að minnka fordóma og ótta og stuðla að
vináttu í afslöppuðu umhverfi.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
trúmál múslimar og kristnir haFa unnið saman í neskirkju í vetur
Toshiki Toma prestur innflytjenda, Muhammed Emin Kizilkaya félagi í Horizon, Ersan Koyuncu formaður Horizon og Sigurvin
Lárus Jónsson æskulýðsprestur fyrir framan Neskirkju. Ljósmynd/Hari
Kristni og íslam
geta vel þrifist saman
Æskulýðsfélag Neskirkju, prestur innflytjenda og félag múslima á Íslandi - Horizon - hafa unnið
saman í vetur í þeim tilgangi að auka samtal milli menningar- og trúarhefða í samfélaginu. Agnes
M. Sigurðardóttir, biskup Íslands, segir samstarfið gefa tilefni til að ætla að kristni og íslam geti
vel þrifist saman. Hún segir ennfremur mikilvægt að stuðla að auknu samtali um trúmál til að
draga úr fordómum.
Agnes M. Sig-
urðardóttir, biskup
Íslands, segir
samstarf krist-
inna og múslima í
Neskirkju í vetur,
auk reynslunnar af
samráðsvettvangi
trúfélaga, gefi til-
efni til að ætla að
kristni og íslam geti
þrifist vel saman.
Ljósmynd/Hari
6 fréttir Helgin 27.-29. mars 2015
R E Y K J AV Í K | A K U R E Y R I
TAXFREE
ALLIR SÓFAR Á TAXFREE TILBOÐI*
CLEVELAND TUNGUSÓFI
Stærð: 231 x 140 H 81 cm.
Hægri eða vinsti tunga.
Ljós- eða dökk grátt
slitsterkt áklæði.
Höfuðpúði ekki innifalinn
í verði.
KLINT 3JA SÆTA SÓFI
Litir: Koníaksbrúnt, dökkbrúnt
og svart. Vandað ekta leður.
Stærð: 3ja 193 x 80 H: 81 cm.
2ja sæta 138 x 80 H: 81 cm.
TAX
FRE
E
AÐEINS
KRÓNUR
169.347
FULLT VERÐ:
209.990
3JA SÆTA TAX
FRE
E
AÐEINS
KRÓNUR
137.089
FULLT VERÐ:
169.990
2JA SÆTA
DENVER 3JA OG 2JA SÆTA SÓFAR
TAX
FRE
E
AÐEINS
KRÓNUR
96.766
FULLT VERÐ:
119.990
2JA SÆTA TAX
FRE
E
AÐEINS
KRÓNUR
112.895
FULLT VERÐ:
139.990
3JA SÆTA
Brúnt microfiber áklæði.
Stærðir: 2ja sæta 168 x 98 H 88 cm.
3ja sæta: 218 x 98 H 88 cm.
TAX
FRE
EAÐEINS
KRÓNUR
96.766
FULLT VERÐ:
119.990
*TAXFREE TILBOÐIÐ GILDIR BARA Á SÓFUM OG JAFNGILDIR 19,35% AFSLÆTTI.
Að sjálfsögðu fær ríkissjóður virðisaukaskatt af söluverði.
Afslátturinn er alfarið á kostnað Húsgagnahallarinnar.