Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.03.2015, Page 18

Fréttatíminn - 27.03.2015, Page 18
ÓSKUM EFTIR BÓKARA Í FULLT STARF Lifandi fyrirtæki með öflugan hóp starfsmanna leitar að nýjum liðsmanni. VERK OG ÁBYRGÐARSVIÐ Innsláttur og merking fjárhagsbókhalds Afstemmingar Reikningagerð Færsla innborgana Innheimta Ýmis önnur verkefni Reynsla af færslu bókhalds skilyrði Góð tölvukunnátta og þekking á TOK+ eða Axapta kostur en ekki skilyrði Skipulagshæfni og nákvæm vinnubrögð Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Geta til að vinna undir álagi HÆFNISKRÖFUR Vinsamlegast sendið umsóknina á atvinna@forlagid.is fyrir 14. apríl nk. Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál. www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu Skítt með lóuna- „lóferinn“ kemur með vorið L óferinn“ er þó langt frá því eitthvað nýtt af nálinni. Allir eiga frænda sem klæðist ein- göngu stutterma skyrtum og setur ekkert annað en lungamjúka gamla mokkasínu á fæturna. „Lóferinn“ á nefnilega líka fjöl- skyldumeðlimi sem allir kannast við. Auk mokkasínunnar eru þar klass- ísku flókainniskórnir og Vans striga- skórnir til að nefna dæmi. Allt eru þetta útgáfur af „lófernum“ og ákjós- anlegt val á sumarskóm. Bestur fer „lóferinn“ á fæti ef sokkalaus við upp- brettar tiltölulega þröngar kakí- eða flottar gallabuxur. Stuttbuxur, aftur sokkalaus, fara einkar vel með lun- gamjúkum rúskinns-„lófer“. Það má meira að segja nú orðið klæðast fal- legum leður-„lófer“ við jakkaföt. En þá er farið í sokkaskúffuna og fal- legt, jafn vel mynstrað par dregið alla leið upp á kálfa. Enga hælasokka með „lófernum“ takk! Þeir hugrökku fara yfir í pils-„- lóferinn“. Það er skór, sem eins og nafnið bendir til, eru með hálfgert pils yfir ristina. Margir rugla pils-„- lófernum“ gjarnan við bátaskó enda svipaðir útlits. Bátaskórinn auk þess líka „lófer“-frændi og virkar jafn vel með stuttbuxum og fal- legum uppbrettum buxum. En það ætti þó enginn að brúka bátaskó með jakkafötum. Það er ennþá bannað. Haraldur Jónasson hari@frettatiminn.is Fínlegheitin finnast í tungunni „Lóferinn“ fer allt frá strigaskó upp í rándýra fína leðurskó. En hvernig hvernig hann situr á fæti fer allt eftir því hve tungan nær hátt upp. Þannig eru opnir skór með lága tungu hversdagslegri. Þá ætti helst ekki að brúka með sokkum og þar af leiðandi virka þeir ekki með jakkafötum. En því hærra sem tungan nær upp því sparilegri verður skórinn. Þá er líka óhætt að sokka sig vel upp. En – og þetta er stórt en – fínasta lóferinn í skápnum má líka brúka með bleikum uppábrettum „chinós“. Það er nefni- lega að koma vor. Vorið er rétt handan hornsins – vonandi. Þá er líka tími til kominn að leggja vetrastígvélunum og byrja loksins að klæðast skóm aftur. En ekki bara hvaða gömlu skóm sem er. Nei, nú er tími „lófersins“ upp runninn. Leður, rúskinn eða blanda beggja, það skiptir ekki öllu. Það eina sem skiptir máli er að lóferinn er kominn aftur. Lófers, yfirleitt óreimuð skótegund oftast kennd við mokkasínur hér á landi. Ættin er þó stærri en svo og má segja að henni tilheyra allt frá gömlu góðu kínaskónum upp í Gucci leðurmokkasínur. Með millibili í Vans strigaskóm og gömlu góðu mokkasín- unum hans frænda. 18 vorboði Helgin 27.-29. mars 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.