Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.03.2015, Side 24

Fréttatíminn - 27.03.2015, Side 24
 Þegar ég fór í þetta skipti upp á bráðamóttöku var ég búin að skaða sjálfa mig með því að skera í fótleggina á mér Missti soninn eftir að ég féll Glódís Tara Fannarsdóttir byrjaði að reykja hass áður en hún smakkaði áfengi. Hún er fíkill með geðhvörf, með svokallaðan tvíþættan vanda en lengi hefur verið kallað eftir sérstökum úrræðum fyrir þennan hóp. Glódís Tara segist hafa horft upp á margt slæmt en það versta hafi verið þegar ungar vinkonur hennar seldu sig fyrir fíkniefnum. Hún upplifði sjálfsvígs- hugsanir þegar eldri sonur hennar var þriggja ára, byrjaði aftur í neyslu og missti soninn tímabundið en hefur nú fengi hann aftur. Hún hefur nú verið edrú í rúmt ár og er heima í fæðingarorlofi með yngri son sinn. É g byrjað að reykja hass áður en ég byrjaði að drekka. Þegar ég er spurð í hvernig neyslu ég hafi verið á ég erfitt með að svara því ég tók alltaf bara það sem bauðst. Ég gleypti allt sem mér var rétt og vonaði bara að það yrði gaman,“ segir Glódís Tara Fannarsdóttir, 25 ára gömul tveggja barna móðir, fíkill með geðhvörf sem er búin að vera edrú í rúmt ár. Glódís Tara ber afar sérstakt nafn og vegna þess laug hún stundum til um nafn þegar hún var í neyslu og nálægt fólki sem hún treysti ekki. „Ég hef lent í því að hitta fólk á 12-spora fund- um sem heldur að ég heiti Guð- rún eða Sara og þá verð ég mjög vandræðaleg og þarf að segja þeim að ég hafi logið því hvað ég heiti.“ Það stendur stórum stöfum „Glódís Tara“ á útidyra- hurðinni við heimili hennar í Breiðholtinu. Hún er í fæðing- arorlofi með rétt um mánaðar gamlan son sinn sem skiptist á að sofa, gráta og drekka á meðan Glódís Tara er fíkill og með geðhvörf. Hún byrjaði í neyslu aðeins 14 ára en var ekki greind með geðhvörf fyrr en rúmlega tvítug, en þegar ungmenni eru í neyslu er oft erfitt að greina hvað eru afleiðingar fíkniefnaneyslu og hvað eru afleiðingar geðsjúkdóma. Mynd/Hari www.sgs.is SAMEINUÐ BERJUMST VIÐ! KJÓSTU JÁ 24 viðtal Helgin 27.-29. mars 2015

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.