Fréttatíminn - 27.03.2015, Side 28
Maður lenti
í mörgum
skrautlegum
karakterum
úr undirheim-
unum sem
hótuðu manni
lífláti og þar
fram eftir göt-
unum.
É g hitti Valla á skrifstofum PIPAR\TBWA sem í dag er með rúmlega sextíu starfs-menn og greinilegt að nóg er að gera þar.
Bæði við leik og störf. Siggi Hlö spilar billjard og
segir mér að láta Valla segja allt. Þeir félagarnir
eru samvaxið tvíeyki sem hefur unnið mjög náið
saman í rúmlega tvo áratugi. Valli mætir, sport-
legur að vanda, með myndarlega mottu í tilefni
af mottu-mars, nýkominn frá París þar sem
hann var ásamt eiginkonu sinni í heimboði Ulu
Weesendangers, eins eiganda TBWA keðjunnar.
Ég spyr Valla hvort það hafi komið honum á
óvart að stofan hafi fengið þá viðurkenningu
sem hún fékk á nýafstaðinni ÍMARK hátíð. „Já,“
segir hann strax. „Ég hafði vonast til þess að við
hefðum ekki lækkað okkur úr þriðja sætinu sem
við vorum í síðast. Draumurinn var að fara upp
um eitt sæti, en að vera stofa ársins kom mér á
óvart. Í fyrsta sinn á ævinni varð ég málhaltur,
þegar þetta gerðist,“ segir Valli.
Fór að selja Sigga Hlö út
Valli og Siggi kynntust árið 1994 þar sem þeir
voru að vinna á Stöð 2. „Ég tók eftir því að Siggi
var með fullt af verkefnum utan vinnunnar sem
hann rukkaði aldrei fyrir. Mér fannst þetta
skrýtið því ég var að vinna um kvöld og helgar
við það að rétta og sprauta bíla. Þetta er á þeim
tíma sem maður er að koma sér upp húsnæði og
slíkt, þar sem daglaunin duga ekki,“ segir Valli.
„Ég segi við Sigga hvort við ættum ekki að fara
að rukka fyrir þetta, við förum að fikta saman
og ég fer að selja hann út,“ segir Valli. „Þannig
byrjar þetta, undir nafninu Hausverk. Ég fór
af Stöð 2 yfir á FM957, vann hjá Myndmark og
Firðinum. Svo stofnaði ég fyrirtækið Völustein
ásamt móður minni þegar ég var í háskólanum
og var alltaf viðloðinn þann rekstur og kenndi
meðal annars á saumavélar. Alltaf vorum við
Siggi samt að framleiða auglýsingaefni,“ segir
Valli. „Svo árið 1998 sagði ég við Sigga sem var
þá markaðsstjóri ACO: „Við erum að velta 30
milljónum í aukavinnunni okkar, ættum við ekki
að byrja að vinna við þetta?“ Þá byrjum við í
þessu í fullu starfi og fórum að ráða fólk.“
Með hausverk um helgar var auglýsingatrix
Árið 1999 byrjuðu þeir félagarnir með sjón-
varpsþáttinn Með hausverk um helgar og eftir
það vissu allir af Sigga Hlö og Valla sport. Í þætt-
inum, sem var alræmdur, drukku stjórnendurn-
ir bjór og fengu gesti til að gera eitt og annað,
svo sem að vaxa sig og húðflúra í beinni.
Eina sem stoppar
mig er ég sjálfur
Auglýsingastofan PIPAR\TBWA
var á dögunum kjörin áhrifamesta
auglýsingastofa landsins. Saga stofunnar
er dæmigerð Öskubuskusaga sem
hófst fyrir um tuttugu árum þegar
framkvæmdastjóri hennar, Valgeir
Magnússon, og Sigurður Hlöðversson,
Siggi Hlö tóku höndum saman. Þeir
hafa ekki alltaf þótt flottustu gaur-
arnir í bransanum en saga stofunnar
er dæmigerð fyrir drífandi menn með
stórar hugmyndir. Valli sport, eins og
Valgeir er jafnan kallaður, hefur fengist
við eitt og annað á sínum 46 árum;
rekið útvarpsstöðvar og veitingastaði,
gert við bíla, kennt á saumavélar, komið
fram sem plötusnúður og markaðssett
íslensk Eurovisionlög. Þar fyrir utan eru
það áhugamálin sem hafa leitt hann í
að keppa á seglskútum, í badminton og
fitness svo fátt eitt sé nefnt. Meðfram
þessu öllu hefur Valli verið með sömu
konunni í 29 ár, Silju Ósvaldsdóttur, og
saman eiga þau tvö börn. Valli segir að
stærsta hlutverk sitt í lífinu hafi verið að
búa sér og sínum gott líf.
„Þátturinn átti að vera trix til þess að auglýsa stof-
una,“ segir Valli. „Þarna vorum við komnir með 10-
12 manns í vinnu og það gekk allt vel. Svo kom smá
sjokk árið 2001, sem var litla kreppan,“ segir Valli.
„Þegar „dot-com“ bólan sprakk töpuðum við mikið
af kröfum á stuttum tíma sem varð til þess að við
þurftum að endurhugsa stöðuna og byrja upp á nýtt.“
Valli og Siggi ákváðu að fara aftur í útvarp og
byrjuðu með morgunþátt á stöðinni Steríó til þess
að drýgja tekjurnar, en stöðin gat svo ekki borgað
laun svo það endaði með því að félagarnir eignuðust
stöðina. Á þremur árum byggðu þeir upp nokkrar
stöðvar og árið 2006 keypti Síminn stöðina þar sem
þeir ætluðu í samkeppni við fjölmiðlafyrirtækið
365 sem þá hét Norðurljós, í samstarfi við Morgun-
blaðið.
„Þeir lögðu mjög hart að okkur að selja stöðvarnar,
sem voru að ná betri hlustun en svipaðar stöðvar hjá
365 á þeim tíma,“ segir Valli, en þetta voru stöðvarn-
ar KissFM og XFM. „Við vorum bara í stuði og lang-
aði ekkert að selja en við gerðum það samt, þar sem
það var það skynsama í stöðunni. Á sama tíma vorum
við líka að reka veitingastaði og tískuvöruverslanir í
Kringlunni og losuðum okkur út úr þessu öllu,“ segir
Valli.
Þóttu ekki töff innan auglýsingabransans
Auglýsingastofan Hausverk óx og dafnaði með hverju
árinu en aldrei fékk hún inngöngu í Samtök íslenskra
auglýsingastofa (SÍA). Valli segir ástæðuna vera að
mörgum innan geirans fannst þeir ekki töff. Á endan-
um var stofan tekin inn í SÍA. Þá var Þormóður Jóns-
son hjá Fíton formaður SÍA og hann sá að tölurnar töl-
uðu sínu máli. Á sama tíma flutti stofan í húsnæði við
Tryggvagötu þar sem stofan breytti um ímynd og fór
í mikla naflaskoðun, sem leiddi til þess að þeir endur-
skírðu stofuna PIPAR. En héldu sömu kennitölunni.
„Við urðum að sýna breiddina,“ segir Valli. „Sýna
að við værum meira en bara Valli og Siggi. Við yfir-
tókum stofu sem hét Mixa, og þar fengum við gott
hönnunarteymi til liðs við okkur. Síðan sameinumst
við TBWA/Reykjavík og með því fólki kom gríðarleg
reynsla og vinnubrögð fólks sem hafði verið lengi í
þessum bransa. Þá byrjar þessi alvöru vöxtur sem er
enn í gangi. Guðmundur Pálsson sem rekur stofuna
með mér í dag, kom einnig í þeim breytingum,“ segir
Valli. „Þá var fólk farið að taka okkur alvarlega, og í
dag er ég formaður SÍA.“
Árið 2010 þegar þjóðfélagið var í varnargír eftir
hrunið tók PIPAR\TBWA til sinna ráða og réðst til
sóknar. Valli var búinn að átta sig á því að samfélags-
Valgeir
Magnússon
framkvæmdarstjóri
PIPAR\TBWA
Aldur: 46 ára.
Maki: Silja Ósvalds-
dóttir.
Börn: Hildur Eva og
Gunnar Ingi
Helstu afrek:
Hjólaviðgerðir
Bílaréttingar
Útvarpsmaður
Íþróttalýsandi
Framkvæmdarstjóri
Myndmark
Framkvæmdarstjóri
Fjarðarins
Markaðsfulltrúi
Höfundur tveggja
unglingaskáldsagna.
Sölumaður auglýsinga.
Saumavélakennari
Keppnismaður í Bad-
minton, fallhlífarstökki,
svifdrekaflugi, sjóskíðum,
seglbrettum, skútusigl-
ingum og fitness.
Skemmtanastjóri
Bókfærslukennari
Upplýsingafulltrúi
Umboðsmaður
Uppáhaldslið í enska
boltanum: Arsenal
Uppáhalds Euro-
visionlag: All Kinds Of
Everything með Dana.
Ég hef alltaf verið veikur fyrir áskorunum. Þær verða samt að vera skemmtilegar, segir Valgeir Magnússon. Ljósmynd/Hari
28 viðtal Helgin 27.-29. mars 2015