Fréttatíminn - 27.03.2015, Page 30
Gunnar Smári skrifar um
þjóðmálin og hefur tekið
upp þráðinn við matarskrif
Nýr vefur Fréttatímans
er kominn í loftið
www.frettatiminn.is
miðlarnir væru framtíðin og stofan
auglýsti stöðu sem átti að sinna
þeim miðli. Ein staða var auglýst
og 1017 manns sóttu um starfið.
Fjórir voru ráðnir og samfélags-
deild opnuð. „Allir héldu að við
værum geðveik, en við gerðum
þetta greinilega á hárréttum tíma,“
segir Valli. „Það varð alger spreng-
ing á þessum markaði sem ennþá
er í gangi.“
Á síðasta ári sameinaðist
PIPAR\TBWA auglýsingastofunni
Fíton og í dag er hún sú stærsta og
áhrifamesta á íslenskum markaði.
Með sömu konunni í 29 ár
Þrátt fyrir að Valli sé ólíkindatól
og tekur að sér stundum mun fleiri
verkefni en hann ætti að gera, þá
er hann mikill prinsipp maður og
stendur mjög fast á sínu. Hann er
kvæntur Silju Ósvaldsdóttur og
eiga þau tvö börn. Þau hafa verið
saman í 29 ár og Valli segir að sitt
stærsta hlutverk hafi verið að búa
sér og sínum til gott líf.
Hann er fæddur árið 1968 í
Reykjavík. Alinn upp í Fossvogin-
um og fór í Verslunarskólann og
þaðan í Háskólann þar sem hann
nam viðskiptafræði. Eftir nám fór
hann að vinna sem rekstrarráðgjafi
fyrir sveitarfélög meðal annars.
„Þarna var ég bara Excel nörd,“
segir Valli, „en um leið tók ég að
mér að selja allar auglýsingarnar
á veltiskiltin á Laugaveginum.
Ég hef alltaf unnið mikið,“ segir
Valli. „Meira að segja þegar ég
var í barnaskóla – þá ákvað ég
ásamt vini mínum að fara að gera
upp reiðhjól fyrir fólk. Það gekk
ekkert vel en við ætluðum að gera
stóra hluti,“ segir Valli kíminn.
„Seinna fór ég að gera upp bíla
með þessum sama vini mínum. Ég
keypti klessta bíla og við gerðum
upp. Pabbi hans var bifreiðasmiður
og ég lærði hjá honum. Það er alltaf
hægt að gera eitthvað,“ segir Valli.
Rak skemmtistaðinn Tunglið
Eitt af því sem Valli hefur tekið sér
fyrir hendur er að reka skemmti-
staðinn Tunglið, sem var gríðar-
lega vinsæll skemmtistaður á
tíunda áratugnum. „Ég hafði verið
mikið að skipuleggja og halda alls-
kyns kvöld og keppnir á skemmti-
stöðunum og fyllti Tunglið marg-
oft,“ segir Valli. „Svo stingur félagi
minn þessari hugmynd að mér,
að taka yfir Tunglið þar sem það
hafði farið á hausinn stuttu áður.
Ég var nú ekki á þeim buxunum á
þessum tíma, en lét til leiðast. Það
hefur oft háð mér hvað ég á það til
að spennast upp og gleyma mér í
fjörinu,“ segir Valli. „Áður en ég
vissi af þá vorum við búnir að gera
leigusamning um að leigja stærsta
næturklúbb Norður-Evrópu. Ég
hélt að þetta væri leikur einn þar
sem ég hafði fyllt hann svo oft, en
að fylla hann tvisvar í viku var smá
áskorun.“
Þarna lenti Valli í hamstrahjóli
sem erfitt var að sleppa úr. „Þetta
var mjög erfitt, sérstaklega vegna
þess að maður var í öðrum verk-
efnum um leið. En ég hefði ekki
viljað sleppa þessu,“ segir Valli.
„Þetta gekk í eitt ár og ég man
hvaða dag þetta hrundi hjá okkur.
Það var þegar snjóflóðin skullu á
Flateyri. Sá hræðilegi atburður
varð til þess að fólk fór ekki út að
skemmta sér í nokkrar helgar, og
Tunglið mátti ekki við því,“ segir
Valli. „Við vorum farnir að elta
skottið á okkur þangað til að við
náðum að selja reksturinn. Þetta
hætti að vera gaman,“ segir Valli.
„En það var gaman meðan á því
stóð. Maður lenti í mörgum skraut-
legum karakterum úr undirheim-
unum sem hótuðu manni lífláti og
þar fram eftir götunum, ég hefði
ekki viljað sleppa því fyrst ég slapp
frá því,“ segir Valli.
Keppti í fitness með sex
mánaða fyrirvara
Hefur aldrei komið að því að konan
spyrji þig hvort sum verkefni séu
alveg málið? „Oft,“ segir Valli strax.
„En í gegnum allt það sem ég hef
verið að gera er kjölfestan alltaf í
sambandinu. Fjölskyldan er fyrir
mér heilög stofnun og það er mér
mikið mál að öllum líði vel og lífið
sé skemmtilegt,“ segir Valli. „Vera
til staðar, þó það hafi stundum
klikkað.“
Valli og Silja eru miklir félagar
og hún er aldrei langt undan þegar
Valli er að sinna öllum sínum verk-
efnum. „Við gerum mikið saman,
en við gerum líka fullt í sitt hvoru
laginu,“ segir Valli. „Við höfum
ekkert þurft að gera allt saman. Við
höfum líka unnið mikið saman, þar
sem hún rekur bókhaldsfyrirtæki
sem sér um öll mál stofunnar, og
hefur gert alla tíð.“
Hvað gerirðu í þessum litla frí-
tíma þínum? „Ég keppi á seglskútu,“
segir Valli án þess að blikna. „Það
byrjaði sem tækifæri. Björn Jörund-
ur vinur minn átti hlut í skútu og ég
datt bara inn í það. Ég hafði keppt
á seglbrettum, fallhlífarstökki og
á svifdrekum svo ég þurfti líka að
prufa að keppa á skútum,“ segir
Valli. „Ég er bara þannig.“
Valli hefur keppt í hinum ýmsu
jaðarsportgreinum í gegnum tíðina
og fékk þannig á sig viðurnefnið
Sport, sem enn er fast við hann.
Hann situr í stjórn Badminton-
sambandsins og eitt sinn tók hann
sig til og keppti í fitness, með sex
mánaða fyrirvara en hann hafði
ekki komið nálægt því sporti áður.
„Það var áskorun,“ segir Valli. „Ég
er veikur fyrir áskorunum, ef ég
tek áskorun fer ég alla leið. Andrés
Guðmundsson kraftajötunn skoraði
á mig gegn því að hann keppti líka,
og ég fór bara í massífa þjálfun í sex
mánuði. Ég lenti í einhversstaðar í
miðju móti, en Andrés mætti ekki
til leiks,“ segir Valli og glottir. „Ef
hugmyndin er skemmtileg þá er ég
til. Það verður að vera skemmtilegt.
Ég ákvað það þegar ég var fram-
kvæmdarstjóri í Firðinum, sem mér
fannst leiðinlegt starf, að hætta að
gera eitthvað sem er leiðinlegt. Þó
svo að launin séu góð. Laun eru
bara afleiðing,“ segir Valli. „Ef mað-
ur gerir vel það sem er skemmti-
legt, þá kemur vonandi peningur.“
Markaðssetur íslensk Euro-
visionlög
Undanfarin ár hefur Valli verið
áberandi þegar söngvakeppni
evrópskra sjónvarpsstöðva nálgast.
Hann hefur komið að, á einn eða
annan hátt, öllum sigurlögunum
undanfarin fimm ár. Hann er orð-
inn mjög sjóaður í öllu kynningar-
og markaðsstarfi fyrir íslensku
atriðin og árið í ár er engin undan-
teking. Valli er á leiðinni til Vínar.
„Þetta byrjaði allt árið 2008
þegar ég bjó til Merzedes Club í
samstarfi við Barða Jóhannsson
tónlistarmann. Hann var beðinn
um að taka þátt í þessari keppni
og vissi ekkert hvað hann ætti að
gera. Hann kom með hugmynd og
það var mitt að finna þetta fólk,“
segir Valli. „Árið eftir var ég með
stelpuhópinn Elektra sem tók þátt
og í það skiptið áttaði ég mig á því
að til þess að svona atriði gangi upp
þá þurfa að vera gæði og reynsla
til staðar, í flytjendunum. Árið
2010 fór ég svo með Heru Björk og
Örlygi Smára, og þar hófst sam-
starf sem enn er í miklum blóma,“
segir Valli.
„Það sem ég kom með í þessa
keppni sem hafði ekki verið til
staðar áður, var markaðssetning og
að gera atriðið að konsepti,“ segir
Valli. „Þetta er enn eitt áhugamálið
sem vatt upp á sig. Ég stofnaði
útgáfu ásamt Örlygi Smára, sem
kallast HandsUp Music sem hefur
haldið utan um útgáfu flestra lag-
anna sem ég hef unnið með,“ segir
Valli. „Samstarf okkar Heru hefur
verið gæfuríkt í mörg ár og ég hef
ferðast með henni heimsálfa á milli,
sem og kynnst gríðarlega mikið af
fólki eins og maltnesku söngkon-
unni Ciara sem ég hef unnið með
að undanförnu, svo þetta er mjög
skemmtilegt og vindur alltaf upp á
sig,“ segir Valli, sem einnig kemur
fram sem plötusnúður og hefur
gert í mörg ár. „Allt stækkar sem
maður sinnir.“
Skemmtilegt fólk mikilvægast
Hafði þig órað fyrir því að þetta
yrði útkoman fyrir 20 árum þegar
þið Siggi voruð að baksa við að búa
til auglýsingar í aukavinnu?
„Já, ég var búinn að ákveða að
keppa við þá stóru,“ segir Valli.
„En ég hefði ekki getað ímyndað
mér allt bröltið á leiðinni. Það sem
ég hef lært á leiðinni er það að
þetta byggir allt á fólki. Að velja
rétta fólkið til þess að vinna með.
Klárt fólk, helst klárara en maður
sjálfur. Það er mikilvægara að fólk
sé skemmtilegt en að það séu snill-
ingar,“ segir Valli. „Það er hægt
að fá skemmtilegt fólk til þess að
gera margt, en það er ekki hægt
að kenna fólki að vera skemmti-
legt. Það er líka mikilvægt að gera
vinnustaðinn eftirsóttan,“ segir
Valli. „Gera umhverfið þannig að
fólki langi til þess að vinna með
manni. Það er það sem við leggjum
hvað mest upp úr. Ég er líka mjög
stoltur af því að hér er jafnt hlutfall
kynja í stjórnunarstöðum. Stelpur
eru duglegri að bögga mann ef
þær eru ekki sammála manni. Það
eru bara tveir kvenkyns „creative
directors“ á Íslandi og þær vinna
báðar á PIPAR\TBWA.“
Er ekkert hægt að stoppa Valla
sport?
„Nei það er erfitt, eina sem stopp-
ar mig er ég sjálfur. Stundum veður
maður framúr sér, en maður lendir
á löppunum og þrífur upp sinn skít.
Ég er samt búinn að átta mig á því
að til þess að ganga vel í því sem
maður er að gera þá þarf maður að
hafa gaman af því,“ segir Valgeir
Magnússon, Valli sport.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
Gengur í kvartbuxum hálft árið
Valli hefur í mörg ár
klæðst kvartbuxum frá
vori fram á haust. Alveg
sama hvernig viðrar.
Hann segir það bara fara
eftir stemmingu hvenær
hann byrji kvartbuxna-
tímabilið, en segir það
yfirleitt byrja í apríl. Oft
er kalt í veðri yfir íslenskt
sumar, en Valli lætur það
ekki slá sig út af laginu.
Fyrir Eurovisionkeppnina í
Malmö árið 2013, þar sem
Valli starfaði með Eyþóri
Inga lét hann sauma á sig
kvartbuxna-jakkaföt, til
þess að geta sótt gala-
kvöld hátíðarinnar án þess
að bregða út af vananum.
„Ég fékk mér einhvern
tímann kvartbuxur og fíl-
aði að ganga í þeim, bætti
svo við og áður en ég vissi
þá var ég í kvartbuxum
alla daga og langt fram á
haust,“ segir Valli. „Svo fór
ég að fara snemma í þær
á vorin og fólk fór að taka
eftir því að ég væri oft
kominn á kvartbuxurnar
á páskum. Fólk fór þá að
pæla í því hvernig reglan á
þessu er, en það er engin
regla. Þegar vorið kemur
í mitt hjarta, þá fer ég í
kvartbuxurnar og svo úr
þeim þegar mér finnst
vera kominn vetur. Ef vorið
kemur snemma og svo
kólnar aftur, þá er ekki
aftur snúið.“
Það er Valla ekkert óviðkomandi. Hvort sem það er að vera plötusnúður eða hárgreiðslumaður. Kjölfestuna finnur hann hjá Silju eiginkonu sinni og börnum þeirra.
30 viðtal Helgin 27.-29. mars 2015