Fréttatíminn - 27.03.2015, Side 48
48 heilsa Helgin 27.-29. mars 2015
NÝTT
fyrir börn
Fyrir börn 3ja mánaða og eldri.
Sölustaðir: Flest apótek
og heilsubúðir
20%
KKKKKKKKK
KKKKKKKKK
Þurr húð og exem
Fljótandi farði sem hylur,
nærir og verndar
Án parabena - án ilmefna - án rotvarnarefna
Fæst í Lyaveri, Lyf og heilsu og Apótekaranum.
Ræktum
sambandið
við okkur sjálf
Hugleiðsla er tækni sem miðar að því að kyrra hugann með því að
losa hann frá venjulegum hugsunum í ákveðinn tíma. Hugleiðsla
er eitthvað fyrir alla, það hafa allir gott af því að kúpla sig út úr
amstri hversdagsins, þótt það sé ekki nema í örstutta stund.
É g hugleiði daglega og hug-leiðslan gefur mér undir-stöðu fyrir daginn,“ segir
Guðrún Darshan Arnalds, jóga-
kennari, hómópati og stofnandi
jóga- og heilsustöðvarinnar Andar-
taks. „Þegar ég hugleiði finnst mér
ég hafa meira rými. Það hljómar
kannski skringilega en þegar ég
næ að dýpka andardráttinn tekst
mér um leið að skynja dýptina í
mér. Um leið og ég anda dýpra næ
ég dýpra sambandi við minn innri
mann.“
Hugleiðsla er fyrir alla
Guðrún segir að hugleiðsla sé fyrst
og fremst tími með okkur sjálfum
sem við getum nýtt til að endur-
nærast, finna kyrrðina hið innra
og hlusta á sálina. „Með því að
hugleiða gefum við okkur tíma til
að hlusta, finna aftur taktinn innra
með okkur og gefa heiminum fyrir
utan frí á meðan.“
Hugleiðsla hentar öllum og segir
Guðrún að það sé mjög mikilvægt
að kenna fólki að eiga samband við
sjálft sig. „Það geta allir hugleitt.
Ég, maðurinn minn, sem er mjög
virkur og á fullu alla daga, og sonur
okkar sem er sjö ára hugleiðum oft
öll saman. Hugleiðsla er eitthvað
sem við getum gert á hverjum degi,
nært okkur og komist í samband
við eigin visku. Það getur einnig
verið gott að hugleiða með ein-
hverjum, við þurfum ekki alltaf að
tala saman. Það er oft gott að þegja
saman líka.“
Hugleiðsla úr brunni Kundal-
ini jóga
Guðrún Darshan kennir meðal
annars hugleiðslu fyrir byrjend-
ur. Hér er dæmi um hugleiðslu
úr brunni Kundalini jógafræð-
anna sem er fullkomin fyrir byrj-
endur. Hún opnar fyrir meðvit-
und gagnvart önduninni, styrkir
og nærir lungun og gefur okkur
frið í hjarta. Áður en við hugleið-
um í kundalini jóga tengjum við
alltaf inn með möntrunni „ong
namo gurudev namo.“ Nánari
leiðbeiningar má finna á heima-
síðu andartaks: www.andartak.
is/kundalini-yoga/hugleidsla-i-
dagsins-onn
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Guðrún Darshan Arnalds,
jógakennari, hugleiðir dag-
lega og öðlast þannig góða
undirstöðu fyrir daginn.
Hugleiðsla fyrir
byrjendur
Augun/fókus: Sittu með krosslagða
fætur og hálsloku á – þ.e.a.s. hökuna
að bringu án þess að horfa niður.
Lokaðu augunum eða horfðu beint
fram með augun 1/10 opin.
Mudra (handastaða): Settu vinstri
höndina á hjartað, lófann flatan upp
við brjóstið og fingurna lárétt við
gólf – í átt til hægri. Hægri hendin
er í Gyan mudra (fingurgómar
vísifingurs og þumalfingurs snertast
og hinir vísa beint upp). Lyftu hægri
hönd upp til hægri við þig eins og
þú værir að sverja eið. Lófinn snýr
fram. Olnboginn slakur við síðuna.
Öndun: Einbeittu þér að önduninni.
Andaðu meðvitað alla leið inn og
alla leið út. Andaðu hægt og djúpt
inn um nefið, lyftu brjóstinu og haltu
loftinu inni eins lengi og þú getur.
Andaðu þá frá, mjúkt, hægt og alveg
út. Þegar þú hefur andað alveg frá,
haltu þá loftinu úti eins lengi og þú
getur.
Tími og lok hugleiðslu: Haltu
þessari löngu djúpu öndun áfram
í 3-31 mínútu. Ljúktu hugleiðslunni
með því að anda djúpt og kröftugt
inn þrisvar sinnum. Slakaðu á.
Minnisleysi
Þ etta á við um karlmenn sem eru 40 ára og eldri þegar þeir eru bornir saman við
jafnöldrur sínar, samkvæmt rann-
sókn sem framkvæmd var á Mayo
Clinic í Bandaríkjunum og greint
er frá á fréttasíðu CNN. Tæplega
1300 manns á aldrinum 30 til 95
ára tóku þátt í rannsókninni sem
sýndi að minnið byrjar að versna
upp úr þrítugu hjá báðum kynjum,
en minni karlmanna er mun verra
þegar fram líða stundir og þá sér-
staklega eftir að þeir hafa náð fer-
tugsaldri. Jafnframt er drekinn,
eða það kallast sá hluti heilans sem
stýrir minninu hlutfallslega mun
smærri hjá karlmönnum, sérstak-
lega eftir sextugt.
Estrógen hormónið er ástæða
þess að konur hafa þetta forskot
á karla þegar árin færast yfir. Það
hefur sýnt sig að estrógen ver
konur áður en þær fara á breyt-
ingaskeiðið fyrir beinþynningu
og hjartasjúkdómum og jafnvel
þvagfærasýkingum. Þó estrógen
magn minnki talsvert hjá konum
eftir fimmtugt þá gætir áhrifa þess
í mörg ár.
Karlmenn hafa verra minni og heilar þeirra eru jafnframt minni,
að minnsta kosti sá hluti sem stjórnar minninu.
Minni karla verri en kvenna
Karlar eiga
erfiðara
að muna
heldur
en konur
þegar þeir
koma á
efri ár.
Estrógen
hormónið er
ástæða þess
að konur
hafa þetta
forskot á
karla þegar
árin færast
yfir.