Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.03.2015, Síða 82

Fréttatíminn - 27.03.2015, Síða 82
brúðkaup Helgin 27.-29. mars 201510 Klassísk fegurð Klassískur brúðar- vöndur með fallegum rauðum rósum og brúðarslöri. Blómabúðin Upplifun í Hörpu. S: 561-2100 Fallegir brúðarvendir Rokk og rósir Rómantískur, nátt- úrulegur og villtur brúðarvöndur með fallegum rósum. Blómabúðin Upplifun í Hörpu. S: 561-2100 Flottur í sveitabrúðkaupið Náttúrulegur og fallegur vöndur sem er fullkominn í sveitabrúðkaupið. Marsala-litaðar Dalíur koma sterkar inn í brúðarvendi sumarsins. Garðheimar, Stekkjarbakka sími: 540 3300 www.gardheimar.is/blomabud Fölbleikur og rómantískur vöndur Fölbleikur og rómantískur vöndur með þykkblöðungum. Vinsælasti vöndur ársins 2014. Garðheimar, Stekkjabakka S: 540 3300 www.gardheimar.is/blomabud  Boðskort Þér er boðið í brúðkaup Þ ótt boðskort séu í sjálfu sér einföld geta þau reynst mikill höfuðverkur þegar kemur að því að hanna útlit og velja orðalag. Boðskort þurfa að berast til veislugesta ekki seinna en tveimur mánuðum fyrir sjálfan brúðkaupsdaginn og því þarf að gefa sér góðan tíma til að búa þau til. Orðlag Byrja þarf á því að negla niður orðalag- ið og þá þarf að sjálfsögðu að hafa allar nauðsynlegar upplýsingar tilbúnar, svo sem staðsetningu athafnarinnar og veislunnar, auk þess sem nöfn brúð- hjónanna þurfa að koma fram og upp- lýsingar um hvernig tilkynna eigi forföll. Ágætt dæmi um orðalag á boðskorti er eftirfarandi: Þann 15. júní 2015 kl. 16. 30 verða Guðrún Björt og Arnar Páll gefin saman í Dómkirkjunni. Okkur væri sönn ánægja ef þú/þið sæjuð ykkur fært að gleðjast með okkur og þiggja veitingar að athöfn lokinni. Þá er stað- setning veislunnar næst tilgreind og upplýsingar um hvert eigi að tilkynna forföll og innan hvaða tíma. Útlit Þá er það næst að huga að útliti og þá er gott að byrja á því að hugsa hvort þið viljið hafa mynd eða myndir á kortinu eða einfaldan texta. Ætlið þið að láta prenta þetta fyrir ykkur eða ætlið þið að prenta kortin heima? Mikið af forritum eru til sem innihalda skapalón sem hægt er að fylla út í, auk þess margar myndprentþjónustur bjóða upp á slíkt. Hönnun á kortinu getur endur- speglað heildaryfirbragð brúðkaupsins, svo sem litirnir sem notaðir eru í veislusalnum eða blómin í brúðarvend- inum. Það er einnig hægt að koma fyrir uppáhalds ljóði brúðhjónanna eða birta myndir af þeim þegar þau voru börn. Umslög Ekki má gleyma umslögum utan um boðskortin og þar er hægt að leyfa sér að vera frumlegur. Þau geta verið í sama lit og bindi brúðgumans eða blómaskreytingarnar. Það er líka hægt að ráða skrautskrifara til að handskrifa á kortin til að gefa þeim hátíðlegt útlit eða loka þeim með innsigli. Prófarkalestur Ekki gleyma að lesa kortið yfir áður en það fer í prentun. Ein lítil stafsetningar- villa getur eyðilagt mikið og mikilvægt er að dagsetningar, staðsetningar og tímasetningar séu hárréttar. Hvítur og klassískur Klassískur og stílhreinn brúðarvöndur. Hvítar og bleikar bóndarósir, hvítar nellikur og bleikar rósir 18 rauðar rósir Hamraborg Kópavogi S:554 4818 Falleg sérverslun með vandaðar gjafavörur Verslunin Kúnígúnd á Lauga- vegi og Kringlunni býður upp á fallega gjafavöru fyrir öll tilefni. k únígúnd er gjafavöruverslun sem hefur verið starfrækt frá árinu 1982. Í upphafi var búðin staðsett í Hafnarstræti 9 en vöruúrval hefur breyst mikið síðan þá. Verslunin var til að byrja með þekktust fyrir svarta potta og íslenskan leir. Nú setja þekktustu framleiðendur Evrópu sterkan svip sinn á verslunina. Verslunin er bæði á Laugavegi 53 og í Kringlunni en var nýverið færð um set og er nú á fyrstu hæð, beint á móti Kaffitári. Gjafavara fyrir öll tilefni Kúnígúnd býður upp á mikið úrval af fallegri gjafavöru frá mörgum framleiðendum á borð við Georg Jensen, Holmegaard, Rosendahl, Wusthof, Royal Copenhagen, Kosta Boda, Villeroy & Boch, WMF og Schott Zwiesel og er markmiðið að vera með bæði klassíska vöru og það nýjasta hverju sinni. Mikil áhersla er lögð á árstíðarvörur og um þessar mundir er mikið úrval af fallegri páskavöru og má þar nefna páskaeggin frá Royal Copenhagen sem eru mjög vinsæl ár hvert. Ný lína frá Georg Jensen Cobra frá Georg Jensen hefur ver- ið mjög vinsæl lína gegnum árin enda hönnunin falleg og einstök. Cobra porcelain er ný lína sem er beðið eftir með mikilli eftirvænt- ingu. Hún er væntanleg í verslanir Kúnígúnd á næstunni en hún er úr postulíni eins og nafnið gefur til kynna og fetar Georg Jensen þar inn á nýjar brautir og býður upp á glæsilega hannað matarstell í hæsta gæðaflokki. Fleiri nýjar vörur eru að koma í Cobra línunni og má þar einnig nefna glæsilegan lampa sem mun koma í tveimur stærðum. Fallegar brúðargjafir Brúðargjafir eru að sjálfsögðu í miklu úrvali hjá Kúnígúnd og mik- ið úrval af matarstellum, hágæða kristalsglösum, hnífaparasettum og fjölda annarra glæsilegra hluta sem fegra öll heimili. Tilvonandi brúðhjónum stendur til boða að koma í verslanir Kúnígúnd og setja saman gjafalista og á komandi vik- um mun nýr vefur fara í loftið með öllu vöruúrvali verslunarinnar og stendur brúðhjónum þá einnig til boða að velja og setja saman sinn óskalista á www.kunigund.is. Það hefur sýnt sig að tilvonandi veislu- gestum þykir gott að fá ábendingar og gjafahugmyndir frá brúðhjónum. Starfsfólk pakkar svo inn vörunum í fallegar gjafapakkningar sé þess óskað. Gott vöruúrval og fallegur frágangur til viðskiptavina er aðals- merki verslunarinnar og starfsfólk Kúnígúnd býður viðskiptavini vel- komna og leggur sig fram við að bjóða upp á góða þjónustu. Unnið í samstarfi við Kúnígúnd Kúnígúnd var nýverið fært um set í Kringlunni og er nú staðsett á fyrstu hæð, beint á móti Kaffitári.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.