Fréttatíminn - 27.03.2015, Síða 84
V ið staðfestum samvist okk-ar hjá Sýslumanninum í Reykjavík á laun, af prakt-
ískum ástæðum. Ætlunin var svo að
hafa veislu og blessun um sumarið,“
segir Sigurður. „Móðir mín lést svo
um vorið og því var öllu veisluhaldi
frestað. Svo fannst einhvern veg-
inn aldrei rétti tíminn.“ Síðastliðið
haust áttaði Sigurður sig svo á því
að síðan höfðu liðið nærri tíu ár.
„Ég ákvað því að það væri kominn
tími til þess að láta verða af þessu
og ákvað að biðja Kristjáns upp á
nýtt. Ég fór til Önnu Maríu skart-
gripasmiðs sem er með verslun á
móti veitingastaðnum okkar, Núð-
luskálinni, á Skólavörðustíg. Hún
gerði ofboðslega fallega hringa og
hálsnisti í stíl fyrir dóttur okkar.“
Sama dag og Sigurður fékk hring-
ana í hendurnar bað hann Kristján
að keyra út í Gróttu þar sem hann
bað hans upp á nýtt.
Athöfn innblásin af búddhisma
Þar sem Sigurður og Kristján voru
búnir staðfesta samvist sína þurfti
ekki lögaðila til þess að sjá um at-
höfnina. „Við ákváðum því að gef-
ast hvor öðrum milliliðalaust með
okkar eigin athöfn. Þegar við vorum
að ákveða formið litum við meðal
annars til búddhískra athafna þar
sem ég er Búddhisti, en enduðum
á því að semja okkar eigið form,“
segir Sigurður.
Karlakór og brúðkaupsheit í
fjórum liðum
Athöfnin fór fram laugardaginn
17. janúar síðastliðinn, utandyra í
heiðna reitnum í Öskjuhlíð. „Við
stefndum öllum gestunum í and-
dyrið á Nauthól í Öskjuhlíð og
gengum svo fremstir í fylkingu í
heiðna reitinn þar. Karlakórinn Esja
kom sér svo fyrir og hóf athöfnin á
því að syngja „Ég fann þig“. Að því
loknu fórum við með heitin okkar í
fjórum liðum til skiptis og innsigl-
uðum hvert heit með einu tákni sem
fjölskyldumeðlimir réttu okkur til
skiptis,“ segir Sigurður. Eftir koss-
inn hefðbundna söng svo karlakór-
inn „Ég er kominn heim“ auk nokk-
urra laga þegar gengið var til baka
til veislu í Nauthóli.
Hvítir kjólar fyrir alla fjöl-
skyldumeðlimi
Alls tók um einn mánuð að skipu-
leggja stóra daginn. Mestan tíma
tók þá að ákveða klæðnaðinn og
finna hann. „Við vildum ekki hafa
fötin hefðbundin og tók það okkur
því dálítinn tíma að finna föt sem
okkur fannst henta. Eftir að hafa
flett í gegnum mikinn fjölda af gift-
ingarmyndum á netinu duttum við
niður á hvít indversk hör Pathani
jakkafötum og urðum strax sam-
mála um að þarna væru fötin sem
við höfðum verið að leita að. Þannig
gátum við öll í fjölskyldunni klæðst
hvítum kjól á giftingardaginn eins
og ein vinkona mín orðaði það, án
þess þó að það tæki í karlmennsk-
una,“ segir Sigurður, en þeir Krist-
ján eiga þriggja ára gamla dóttur
sem hafði mjög gaman af athöfn-
inni og veislunni. Aðspurðir hvort
brúðkaupsferð hafi fylgt í kjölfar
athafnarinnar segir Sigurður að
þeir hafi ekki mátt vera að því í
janúar. „Við eigum hana eftir. Við
erum reyndar ekki einu sinni búnir
að ákveða áfangastað, en vonandi
mun það ekki taka tíu ár eins brúð-
kaupsveislan.“
Erla María Markúsdóttir
erlamaria@frettatiminn.is
Helgin 27.-29. mars 201512
Kristján Jörgen Hannesson og Sigurður
Jónas Eysteinsson staðfestu samvist
sína árið 2005. Veislan fór hins vegar
ekki fram fyrr en tíu árum seinna,
þegar Sigurður greip tækifærið og bað
Kristjáns aftur. Athöfnin og veislan fóru
fram í Öskjuhlíð á fallegum, sólríkum
vetrardegi.
Tók tíu ár að
skipuleggja veisluna
Kristján Jörgen Hannesson og Sigurður Jónas Eysteinsson staðfestu samvist sína árið 2005, einir fyrir
framan sýslumanni.Tíu árum seinna skipulögðu þeir síðan fallega athöfn í Öskjuhlíð, þar sem þeir
gengu að eiga hvorn annan, umkringdir vinum og fjölskyldu. Einkennislitur dagsins var við hvítur, en
snjór var yfir öllu, auk þess sem brúðgumarnir og dóttir þeirra klæddust hvítu frá toppi til táar.
Fuss púði
13.990.-
The Oak Men bakki
17.500.-
Finnsdottir krukka
14.900.-
Bjóðum brúðhjónum upp á að gera
brúðargjafalista.
Brúðhjónin frá 10% inneign í
versluninni af heildarúttekt listans og
fallega gjöf frá okkur.
Brúðargestir geta svo sent okkur e-mail
og gengið frá pöntun á netinu og fengið
sent til sín eða sótt í búðina.
Einfaldara getur það ekki verið!
Síðumúla 21
S: 537-5101
snuran.is