Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 6

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Side 6
heimi. Evrópumeistaranum í tug- þraut, Frakkanum Ignace Hein- rich, var boðið til íslands að heyja einvígi við Örn í þeirri erfiðu íþróttagrein. í fyrra háðu þeir harða baráttu um EM-titilinn, sem féll að lokum Heinrich í skaut, og var þessarar keppni því beðið með mikilli eftirvæntingu, þar sem lít- ill munur var á þeim, en aðeins 67 stig skildu á milli. Áhorfendur urðu heldur ekki fyrir vonbrigðum, og er það mál manna, að aldrei hafi farið fram jafn skemmtileg íþróttakeppni á íslandi. Kappamir voru nú enn jafnari en í fyrra og skildu aðeins 23 stig, en Heinrich hafði aftur sigur. Öm setti aftur á móti ísl. met, 7453 stig, sem er bezti árang- ur Norðurlandabúa, og ekki nóg með það, heldur setti hann einnig met í grindahlaupinu á 14.7 sek., sem skipar honum í röð fremstu grindahlaupara Evrópu. — Hann keppti skömmu síðar í þessari uppáhaldsgrein sinni í Grikklandi, en þangað hafði honum verið boð- ið til keppni, og fór hann með sig- ur af hólmi. Einnig þáði hann boð um að keppa í Frakklandi og tók hann þátt í ýmsum greinum og hafði oftast sigur. Það liggur í augum uppi, að undirrót sigra og stórkostlegra af- reka Arnar, er frábært viljaþrek, þolinmæði og iðni við æfingar, sem krefjast venjulega mikils tíma. Þótt líkamsvöxtur hans sé einkar vel til þess fallinn að gera honum kleift að vinna íþróttaafrek, þá gera sér fáir Ijóst, hve mikla kost- gæfni og tíma þjálfunin tekur. En þessi ungi maður hefur samt tíma til að sinna öðrum hugðarefnum. Hann stundar háskólanám og er verðandi lögfræðingur. Öm Clausen er sérlega myndar- legur maður, hár, þrekvaxinn og há-norrænn yfirlitum, enda vekur hann hvarvetna athygli á mótum erlendis og er ekki ósjaldan minnzt á útlit hans í blöðum og tímarit- um, sem fjalla um íþróttir. Við Örn eru tengdar miklar von- ir á næstu Ólympíuleikum, en hann er álitinn hafa möguleika á að sigra í tugþrautarkeppninni. Um leið og við óskum Erni til hamingju með að vera kjörinn íþróttamaður ársins, óskum við þess einnig, að hann megi verða fyrstur íslendinga til þess að hljóta titilinn, sem milljónir æsku- manna dreymir um að bera: — Ólympíu-sigurvegari. 364 IÞRÓTTIR

x

Allt um íþróttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.