Allt um íþróttir - 01.12.1951, Síða 12
ur Ó. Sigurðsson er þriðji þátttak-
andinn, og geti einhver þessara
þriggja af einhverjum ástæðum
ekki komizt út, þá mun Magnús
Brynjólfsson frá Akureyri hlaupa
í skarðið.
Það þarf ekki að reikna með því,
að frammistaða þessara keppenda
verði „sensasjon"; til þess eru ís-
lenzkir skíðamenn of langt á eftir
ennþá. En meiri reynsla og keppni
á erlendum mótum mun vafalaust
lyfta getu þeirra í þessum grein-
um á hærra stig.
Aðeins einn stökkmaður.
Meiningin er, að aðeins einn
stökkmaður keppi á leikum þess-
um, Ari Guðmundsson frá Siglu-
firði. Ari stundar nám í Stokk-
hólmi og mun sú vera ástæðan,
að stökkmaður var sendur til
keppni, þ. e. hann getur notið þjálf-
unar í stærri og betri brautum en
til eru hérlendis. Annars hefur
Haraldur Pálsson, Siglufirði, sótt
um það til Ólympíunefndar, að fá
að taka þátt í tvíkeppninni, og hef-
ur hann boðizt til að kosta för
sína sjálfur. Þegar þetta er ritað,
er ekki búið að taka ákvörðun um
það, en vonandi fær hann leyfið,
og er í rauninni sjálfsagt að veita
honum það, ekki sízt, þar sem SKÍ
hefur mælt með því. Haraldur mun
án efa standa sig mjög sómasam-
lega.
Þessum keppendum okkar á hin-
um VI. Vetrar-Ólympíuleikum
fylgja beztu ámaðaróskir, og þótt
þeir vinni ekki sérstök afrek, þá
er víst, að þátttaka þeirra og
frammistaða í þeim mun staðfesta,
að íslendingar eru sæmilega lið-
tækir í skíðaíþróttinni, sem svo
mörgum öðrum íþróttagreinum.
Og víst er, að móttökur fá þeir
góðar, þar sem frændur okkar,
Norðmenn, eru annars vegar.
SPREYTTU ÞIG —!
Sá, sem getur svarað 8 spum-
ingum rétt, hefur góða þekkingu
á íþróttum og íþróttamálum.
1. Hvað stökk Finnbjöm langt
í undankeppni langsstökksins
á Ólympíuleikunum 1948?
2. Hver á pólskt met í 200 m.
hlaupi?
3. Hver var fyrsti formaður
íþróttabandalags framhalds-
skólanna í Reykjavík og ná-
grenni?
4. Hvaða íslendingur keppti í
stökki á Holmenkollenmótinu
í fyrra?
5. Hvemig fór fyrsti leikurinn
á grasvelli K.R.?
6. í hvaða félagi er Hjálmar
Torfason?
7. Hvað sigmðu Svíar Kóreu með
mörgum mörkum í knatt-
spymu á Ól.leikunum í Lon-
don 1948?
8. Hvaða félag er Austurlands-
meistari í knattspymu?
9. Hver er Ólympíumeistari í
1500 m. skriðsundi?
10. Hver varð Reykjavíkurmeist-
ari í 100 m. hlaupi 1944?
Svör á bls. 408.
370
IÞRÖTTIR