Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 25

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 25
XV. Olympíuleikar 1952: Bandaríkjamenn verða sigursœlir í spretthlaupunum og styttri milli- vegalengdum. Þó að nú sé rúmlega hálft ár til ÓL í Helsingfors, eru erlend tíma- rit þegar farin að ræða um vænt- anleg úrslit þeirra í einstökum greinum. „Allt um íþróttir“ mun frá og með þessu hefti birta þætti, þar sem við gerum samanburð á beztu afrekum frjálsíþróttamanna heimsins s.l. sumar, og reynum síðan að gizka á, hverjir verða fremstir, þegar á hólminn kemur. Fyrst skulum við ræða um spretthlaupin, en þar hafa Banda- ríkjamenn verið fremstir á flest- um Ólympíuleikum til þessa, og þannig verður það víst einnig á sumri komanda. Á afrekaskránni 1951 er það samt MacDonald Bai- ley, sem er fremstur, bæði í 100 m. 10.2 og 200 m. 20.5 (bein braut). Bandaríkjamennirnir Andy Stan- field og Jim Golliday verða samt erfiðir, sérstaklega Stanfield. Það má reikna með þrem Bandaríkja- mönnum í úrslit allra vegalengd- anna frá 100 upp í 800 m. Þjóð- verjar og Rússar verða samt harð- ir í hom að taka í 100 m. og þeir fyrr nefndu einnig á hinum vega- lengdunum. í 800 m. er Roscoe Brown (USA) beztur 1951 með 1:49.3 mín., síðan Wint 1:49.6, U. Cleve, Þýzkal. 1:50.0, E1 Mabrouk, Frakkl. 1:50.1, Heinz Ulzheimer, Þýzkal. 1:50.1 og Audun Boysen, Noregi 1:50.4, ásamt Lars-Erik Wolfbrandt, og loks Robert Cham- bers, sem hér var í sumar, hann hljóp á 1:50.5. Þegar við lítum yfir þennan lista, hljótum við að álykta, að keppnin í þessari grein, eins og reyndar í flestum greinum, verður geysihörð. Um möguleika okkar íslendinga í þessum umræddu greinum er ýmislegt hægt að segja, en þetta verður látið nægja að sinni: í 100 og 200 m. eru undanúrslit það lengsta, sem við getum búizt við að okkar menn komist. Sama er að segja um 400 m., en í 800 m. er reiknað með Guðmundi jafnvel í úrslit. í fyrsta lagi eru fleiri í úrslitum þar en í 100, 200 og 400 m., eða 8 til 9 í stað 6 í hinum greinunum, og í öðru lagi er það endaspretturinn í undanrásum millivegalengdanna, sem sker úr um, hverjir komast áfram í úrslit. Eins og við vitum er Guðmundur oftast sterkastur síðustu 100 m. og þess vegna er ekki ósanngjamt að reikna með þessu. í næsta blaði verður rætt um lengri hlaupin. IÞRÓTTIR 383

x

Allt um íþróttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.