Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 28
íslenzkir íþróttamenn — XIV:
JÓN ARNÞÓRSSON
íþróttimar eru, hafa verið og
munu verða sá nægtabrunnur, sem
seint mun verða þurrausinn, um
það vitna jafnt ungir sem gamlir.
Þær hafa aukið hreysti og atgjörfi
unglinganna. Þær hafa orðið snar
þáttur í tómstundum hinna full-
vöxnu, og íþróttirnar hafa orðið
ómetanleg uppspretta og orkugjafi
þeim, sem nálgast óðfluga þá stað-
reynd, að kerling ELLI kemur öll-
um á kné um síðir.
Staðreyndirnar sýna og sanna,
að íþróttimar eiga sterk ítök í
hinni íslenzku þjóð, ítök sem sanna
tilveru og framþróun sína bezt, ef
brugðið er upp af þeim nokkrum
leifturmyndum.
Ég ber þá að sjálfsögðu niður
þar sem ég er kunnugastur, en
það er á Akureyri, þar sem ég er
félagi í Knattspyrnufélagi Akur-
eyrar. Félagatala íþróttafélag-
anna þar hefur vaxið um % nú á
skömmu árabili, félögin hafa stöð-
'ugt staðið fyrir þróttmeira starfi
og íþróttaframkvæmdir allar
margfaldazt. Allur þessi vöxtur á
sínar orsakir, orsakir, sem svo oft
vilja gleymast í stundarhrifningu
unninna íþróttasigra; orsakir, sem
eru þó grunnurinn undir íþrótta-
getu þeirra, sem hæst bera í dag.
T. d. verður erfitt að minnast
skíðaíþróttarinnar án þess að Her-
manns Stefánssonar íþróttakenn-
ara sé þar að nokkru getið. Ég
minnist þess fyrir 8 ámmu, þegar
við strákarnir í eldri bekkjum
barnaskólans hópuðumst saman
með rauða borða á öxlinni, sem
nemendur á skíðanámskeiði hjá
Hermanni. Það var kátra drengja
flokkur, sem þarna lærði undir-
stöðuatriði skíðalistarinnar undir
stjóm hins færasta kennara. Her-
mann sér nú árangur verka sinna
í mörgum gömlum nemendum, því
að þeir standa nú og hafa staðið
í fylkingarbrjósti íslenzkra skíða-
manna. Honum var líka sýndur
verðskuldaður heiður, er honum
var falin þjálfun hinna íslenzku
skíðamanna fyrir Ólympíuleikina
1948. Ég hafði nokkur kynni af
þeirri þjálfun, sem var að allra
386
IÞRÓTTIR