Allt um íþróttir - 01.12.1951, Page 34

Allt um íþróttir - 01.12.1951, Page 34
6 sterkustu skákmeistara heims- ins í New York, til að skera úr um, hver hljóta skyldi rétt til að skora á heimsmeistarann, Capablanca, til einvígis. Capablanca sigraði sjálfur í mótinu með 14 vinning- um, en næstir urðu Alekhine (IIV2) °g Nimzowitch (10%). Var því komið á einvígi milli Alekhine og Capablanca í Buenos Ayres síð- ar sama ár. Fram að einvíginu hafði Alek- hine aldrei tekizt að sigra heims- meistarann, sem sigrað hafði í 7 skákum, en 6 orðið jafnar. Það má því segja, að úrslit fyrstu skák- arinnar hafi haft afdrifarík áhrif á hin endanlegu úrslit einvígisins. Alekhine bar nú sigur úr býtum í fyrsta skipti og fylltist auknu sjálfstrausti við þá reynslu sína, að Capablanca væri ekki ósigrandi. Eftir harða og tvísýna baráttu bar hann loks sigur úr býtum í 34. skákinni ( + 6, -=-3, =25) og hlaut þar með heimsmeistaratitilinn. Næstu árin tók Alekhine ekki mikinn þátt í skákmótum, en lagði land undir fót og tefldi sýningar- skákir um allan heim, allt frá ís- landi til Japan. Hann varði þó tit- ilinn 1929 í einvígi við Bogolju- boff, sem hann sigraði með 15!/2 —9Ví>. Árið eftir vann hann einn sinn glæsilegasta sigur, er hann sigraði í skákmóti í San Remo án taps, með 14 v., 3V2 á undan Nim- zowitch og öðrum sterkustu skák- mönnum heims að undanskildum Capablanca. Þetta endurtók sig í Bled næsta ár, er hann varð 5V2 v. á undan næsta manni. Bogolju- bow skoraði á ný á hann til ein- vígis 1934 og allt fór á sömu lund sem áður. Alekhine sigraði með 15i/2_ i0i/2. Alekhine hefur ætíð verið fund- ið það til foráttu, að hann skyldi taka Bogoljubov fram yfir Nimzo- witch og Capablanca. En hafði Lasker ekki einnig forðazt sterk- ustu keppinauta sína á árunum fyrir styrjöldina? Það er aðeins mannlegt að leggja ekki örugga lífsafkomu í hættu. En frumor- sökin mun þó hafa verið, að á kreppuárunum var erfitt að leggja fram það fé, sem Alekhine krafð- ist. Af Capablanca krafðist hann sömu upphæðar og hann hafði ver- ið krafinn um 1927, eða 10.000 gulldollara. 1 einvíginu 1934 þótti gæta hnignunar hjá Alekhine og varð það til þess, að Hollendingurinn Max Euwe skoraði á hann til ein- vígis 1935, og öllum á óvart sigr- aði Euwe með 15 V2—14%. Nú fór fyrir Alekhine eins og Capablanca, hann vanmat andstæðinginn og var ekki undirbúinn sem skyldi, en að- alorsök ósigursins mun þó hafa verið óhófleg vínneyzla síðustu ár- in. Euwe samþykkti strax að ein- víginu loknu að veita Alekhine tækifæri til að endurheimta titil- inn að nýju að 2 árum liðnum og tókst honum það (15y2—9y2). Tímabil hinna glæstu sigra var liðið, hann varð 6. í Nottingham 1936 á eftir Botvinnik, Capa- blanca, Euwe, Fine og Reshevsky, og aftur 4.—6. í AVRO-mótinu í Hollandi 2 árum síðar, á eftir Ker- 392 IÞRÓTTXR

x

Allt um íþróttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Allt um íþróttir
https://timarit.is/publication/1115

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.