Allt um íþróttir - 01.12.1951, Blaðsíða 39
38. Kh2—h3 Rg4—e3f
39. Kh3—h2 RXHc2
40. BXH Rc2—d4
Ef He2—e3, þá RXBt; 42. HXR, Be6
—<35 lokaþátturinn! Svartur vinnur
mann. — Hvítur gaf.
Frábært dæmi um árásarsnilli
Alekhines og að heita óviðjafnan-
leg vegna hinna mörgu vandfundnu
leikja, sem komu í kjölfar drottn-
ingarskiptanna. Staðan er ótrúlega
flókin og allt hangir á bláþræði,
en með innsýn sinn í stöðuna hef-
ur hann stjóm á rás viðburðanna
og stefnir markvisst til vinnings.
„^4líert l óérfilohhi.
a
Eftirfarandi klausu skrifar Will
Stálbrand, frá París, í sænska
íþróttablaðið, um leik milli Racing
Club de Páris og Nice:
„Vandræðabarnið Albert Guð-
mundsson hreyfði ekki mikið fæt-
urna í fyrri hálfleik. — Ef knött-
urinn kom til hans, gaf hann hann
strax til meðleikmanns og reyndi
ekkert á sig.
En það hefur víst verið erfitt
fyrir „Guð“ að hafa að engu fyr-
irskipanir fyrirliðans, því að eftir
hléið réði hann svo gjörsamlega
á vellinum, að það geta aðeins Ben
Barek og Gunnar Gren leikið eft-
ir honum. — Það er synd, að þessi
stjarna, sem er í sérflokki, skuli
vera svo hræðilega (mis)lynd eða
þver („lynnig“ eller tjurig). Hann
hleypur með knöttinn hraðar en
aðrir án hans; „teknik“ hans er
frábær, og skotmaður er hann
mjög hættulegur.
Allir áhorfendur á „Parc des
Princes" urðu yfir sig hrifnir af
eftirfarandi listrænu atviki: Dom-
ingo, markmaður Nice, hafði
spyrnt út knettinum, er hafnar hjá
„Guð(i)“, er stöðvaði hann þegar
og sá þá Domingo ganga til baka
að markinu. Hann lyfti knettinum
í nokkurra metra hæð, „klippti"
eldsnöggt og knötturinn stefndi
(næstum frá miðju vallarins) í
áttina að marki og virtist ætla að
fara undir slána, er Domingo leit
við og lyfti honum yfir á undra-
verðan hátt.“
IÞRÓTTIR
397