Dagrenning - 01.04.1946, Side 10

Dagrenning - 01.04.1946, Side 10
JÓNAS GUÐMUNDSSON: Uppruni landvættanna. EGAR ísland fékk sjálfstæði sitt 1918, var ákveðið að upp skyldi tekið sérstakt, þjóðlegt íslenzkt ríkisskjaldarmerki. Með konungsúrskurði 12. febrúar 1919 var skjald- armerkið ákveðið og skyldi það vera „krýnd- ur skjöldur og á hann markaður fáni íslands. Skjaldberarnir eru hinar alkunnu landvættir þannig: dreki, gammur, uxi og iisi“, segir í úrskurðinum. Nú, við fullnaðarskilnað íslands frá Dan- rnörku, hefur skjaldarmerkið verið ákveðið á ný og að öllu leyti hið sarna og 1918, nema kórónan er liorfin urn leið og konungs- valdið. Það er nú næsta einkennilegt að svo skyldi til takast, að þessar fjórar gömlu land- vættir skyldu komast í skjaldarmerki íslands. Við vitum fátt um þann átrúnað, er þeim fylgdi til forna, og núlifandi kynslóð lætur sig litlu skipta slíkar kynjasögur og þær, sem frá slíkum landvættum segja. Ýmsir eru þeir þó, sem cnnþá hafa ánægju af því að athuga þessi görnlu, fánýtu fræði, sem oft búa yfir huldum leyndardómum, og er ég einn þeirra. Idef ég því stundum verið að velta þessari landvættasögu fyrir mér og komizt að lok- um þar að niðurstöðu, sem mér þykir þess verð, að segja öðrum frá, svo athyglisverð er hún að mínum dómi. II. A F frásögnum íslendingabókar og Land- námu vitum við, að aðalhöfundur hinna fyrstu laga, er giltu á íslandi, var Úlfljótur, sá er bjó í Lóni á Austurlandi og fyrstu lög íslendinga voru síðan við kennd. Fátt eitt vita menn nú með vissu um, livað í þeim lögum var, því að þau eru ekki lengur til sérstök, og ekki auðgert að sjá, hvað af Grá- gásarlögum er frá Úlfljóti og hvað er þar yngra. í Landnámu geymast örfá, en merki- leg atriði, sem með fullri vissu má telja, að hafi verið í hinum fyrstu lögum. Þar segir m. a. svo: „Það var upphaf enna heiðnu laga, at menn skyldu eigi hafa höíuðskip í hafi, enn ef þeir hefði, þá skyldi þeir af taka höfuð, áður þeir kærni í lands sýn ok sigla eigi at landi með gapandi höfðum ok gínandi trjónum, svá at landvættir fælist við.“ Þar sem ætla má að grein þessi hafi verið upphafsgrein eða byrjun hinnar fyrstu ís- lenzku löggjafar, er það æði athyglisvert, að hið fyrsta, sem þau tiltaka, er að ekki megi styggja landvættirnar. Sýnir þetta, að þegar Úlfljóts-lög voru sett, hefur sá átrúnaður verið almennur, að yfir landinu væri vakað af vættum, sem fyrst og fremst hefðu það hlutverk að gæta þeirra, sem að garði bar. Landsmenn virðast hafa litið á landvættirnar sem eins konar verði — eins konar lífvörð lands og þjóðar. Af þessari grein Úlfljótslaga verður ekkert ráðið urn það; hvers konar „verur“ þessar landvættir voru að dómi fornmanna. Það er fyrst Snorri Sturluson, sem segir frá því í 33. kapítula í sögu Ólags Tryggva- 4 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.