Dagrenning - 01.04.1946, Qupperneq 11

Dagrenning - 01.04.1946, Qupperneq 11
sonar í Heimskringlu. Snorri segir þar frá því, að íslendingar hafi rnjög reiðst Haraldi konungi Gormssyni í Danmörku fyrir það, að liann lét upp taka fé allt, sem íslenzkir menn áttu, er brotið höfðu skip sitt í Dan- mörku, og kölluðu Danir vogrek. Gripu Is- lendingar^ þá, eins og stundum síðar, til þeirrar hefndarinnar, sem ekki er hvað bezt — níðsins, og segir Snorri, að það hafi verið „í lögum haft á íslandi, að yrkja skyldi um Danakonung níðvísu fyrir nef hvert, er á var landinu“, út af þessum atburði. Mjög sýnist nú tilefnið til þessa mikla níð- kveðskapar lítilvægt, en hafi svo verið, að „allir íslendingar hafi Ilarald konung nídd- an“, eins og Snorri kemst að orði, er ekki að undra, þótt hann vildi hefna níðsins. Hann ætlaði líka að gera gagnskör að því eitt sinn, er hann var staddur í Noregi ög herjaði á ríki Hákonar jarls og hafði lagt það svo gersamlega í auðn, að í Sogni stóðu aðeins fimm bæir eftir óbrenndir. Hvort tveggja mun nú hafa verið, að Har- aldi konungi hefur ekki verið vel kunn sjó- leiðin til íslands og að her hans mun ekki liafa verið þess fýsandi að leggja í þá löngu og tvísýnu för. Hann fær því „mann einn fjölkunnugan“ til þess að fara fyrir sig til íslands „í hamförum“, í eins konar njósnar- för til þess að vita hversu örðugt sé að sækja íslendinga heim. Maður þessi brá sér í livals- líki og synti til íslands. Og er nú rétt að Snorri segi sjálfur frá: „En er hann kom til landsins,“ segir Snorri, „þá fór hann vestur fyrir norðan landið. Hann sá að fjö 11 öll og hólar voru fullir af landvættum, sumt stórt, en sumt smátt. En er hann kom fyrir Vopna- fjörð, þá fór hann inn á fjörðinn og ætlaði á land að ganga. Þá fór ofan úr dalnum drcki mikill og fylgdu honum margir ormar, pöddur og eðlur og blésu eitri á hann, en hann lagðist í brott vestur fyrir landið allt fyrir Eyjafjörð, fór hann inn eftir þeim firði, þar fór 4 móti honurn fugl svo mikill, að vængirnir tóku út fjöllin beggja megin, og fjöldi annarra fugla bæði stórir og smáir. Braut fór hann þaðan og vestur um landið og svo suður í Breiðafjörð og stefndi þar inn á fjörð. Þar fór móti honum griðungur rnikill og óð á sæinn út og tók að gclla ógurlega, fjöldi landvætta fylgdi honum. Brott fór hann þaðan og suður um Reykjanes og vildi ganga upp á Vikarskeiði. Þar kom á móti honum bergrisi og liafði járnstaf í hendi, og bar höfuðið hærra en fjöllin, og margir aðrir jötnar með honum. Þaðan fór hann austur með endlöngu landi — „var þá ekki, segir hann, nema sandur og öræfi og brim mikið fyrir utan, en haf svo mikið milli land- anna, segir hann, að ekki er þar fært haf- skipum.“ Þegar Haraldur Gormsson fékk þessar fréttir af landvættum íslendinga og hinu mikla úthafi, leizt honum ekki að leggja í förina,'en sneri aftur frá Noregi heirn til Danmerkur, og hefndi aldrei níðsins. Þegar litið er á þessa sögu, er augljóst, að menn hugsa sér landvættina geysilega marga, heilan her af minni og stærri vættum. En fyrir hverjum her ræður fyrirliði, sem er svo stór og sterkur, að ógn stendur af, jafnvel sjálfum hvalnum, sem þó er stærsta skepna hafsins og ætti því ekki að láta allt á sig fá. Þegar hættan steðjar að, safnar foringinn saman öllum vættum sinnar tegundar — öll- um, sem berjast eiga undir hans merki, — og heldur liðinu á hættustaðinn, albúinn að leggja til orustunnar, ef óvinurinn telur sér þá'ekki hyggilegast að flýja. Ég tel mikils- vert að átta sig vel á þessu atriði með tilliti til þess, sem síðar verður sagt. Hér er ekki ætlunin að ræða til neinnar hlítar hvað landvættirnar upphaflega tákn- uðu eða hvernig þær síðar breytast á ýmsa lund, heldur alveg sérstaklega að athuga þessa einkennilegu sögu, scm okkar frægasti sagnritari, Snorri Sturluson, hefur varðveitt DAGRENN ING 5

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.