Dagrenning - 01.04.1946, Síða 29

Dagrenning - 01.04.1946, Síða 29
ritum nefnd Vanakvísl — og rétt fyrir sunnan Kákasusfjallgarðinn er vatn, senr enn í dag heitir Vanasjór. Við Vanasjó stendur smábærinn Van, og eru þar nriklar fornar rúnaristur, sem ennþá hefur ekki tekizt að ráða til-fulls. Margar þeirra eru þó ráðnar, því að þær eru á ævafornri hebresku. Athygl- isvert er í þessu sambandi, að orðið „van“ eða „vanir“ er af hebreskum uppruna og nrerkir „landlaus", — þ. e. sá, sem hvergi á heima.* Ekki verður það nú sannað, að á sú, sem áður var kölluð Vanakvísl eða Tanakvísl, en nú er kölluð Don, sé dregin af Dans nafni, en ýmislegt bendir til þess, þ. á. m. það, að hjá norrænum þjóðurn verður framburðurin neins á Dana-á og Tanais, þar sem önnur fær nafnið Dóná en hin Don. Norðan Dónár, eða þar sem nú lieitir Rúmenía, bjó á öldunum næstu fyrir og eftir Krists fæðingu harðsnúin þjóðflokkur, sem Rómverjar nefndu Daka eða Dakía. Gerðu þeir oft hinn mesta usla í Rómaríki og loks kom þar að Trajan Rómverjakeisari fór með her á hendur þeim og lagði land þeirra — Dacíu — undir Rómaríki árið 107 e. Kr. Svo virðist sem Dakíar hafi verið Dans ætt- kvísl eða brot af henni. í Encyklopedia Brittanica er að finna athvglisverða athuga- semd urn hermerki Daka. Þar segir í kafl- anum um drekamerkið á þessa leið: „Rómverjar fengu drekamerkið frá Dakíum, er þeir sigruðu á dögurn Traj- ans keisara. Hjá Rómverjum varð dreka- merkið síðan herflokksmerki í her þeirra, en örninn varð herdeildarmerki. Af þessu forna drekamerki Dakíanna eru með * Hér má minna á hina einkennilegu frásögn Snorra Sturlusonar um bardaga Ása og Vana (Hkr. 4. kap.) og viðskipti þeirra og höfðingja skipti. Jangri þróun komin drekamerki nútím- an s.“ Kernur hér dreka- eða ormsmerkið ein- kennilega fram í sögu þessarar fornu þjóðar, sem fátt er annars vitað um og nú er öllum týnd fyrir löngu. Urn íbúa Dacíu er það síð- ast vitað, að þeir hverfa undan Húnurn norður og vestur á bóginn, eins og bæði Saxar og Gotar, og ekki spyrst til þeirra fyrr en löngu síðar og verður á það minnst síðar. Greiðfærasta leiðin úr Dacíu til norðurs og vesturs liggur fram með Karpatafjöllum og niður á Póllandssléttuna. Það einkennilega vill nú til að einmitt þar rekumst við á eitt Dans-nafnið enn, sem sé í borgarheitinu Dan-zig. Hvað þessi borg hefur upprunalega heitið, er ekki hægt að færa fullar sönnur á, því að nöfnin á henni eru tvö og bæði æva forn. Ilitt nafnið er Gdania, svo að af því sést að höfuð stofninn í því er einnig „Dan“ — cins'Og í Danzig. Líklega rnerkir Dan-sig, cða G-dan-ia upphaflega Danaflói eða Dana- ós, en ég mun ekki að þessu sinni fara út í að rökstyðja það. Höfum við þá rakið leið Dansættkvíslar- innar sunnan frá heimkynnum hennar, fyrst í Egyptalandi og svo í Palestínu, til Grikklands og þaðan um Dardanella-sund, eftir Dans-á (eða Dóná) og yfir Dan-íu (eða Dacíu) allt til Dansig (eða Dans-flóa) við Eystrasalt. Margt bendir og til þess að stór hópur af þessari ættkvísl hafi haldið áfram lengra norður með ströndum Svartahafsins og upp Donfljótið í Ukraínu, sem þá hét Skýþía eða Svíþjóð hin mikla, og sest þar að. Allt þetta hcfur gerzt á tímabilinu frá 1600 f. Kr. og til ca. 400 eftir Krists fæðingu. XVI. J^OKS skal þá nefna hér síðasta áfangann, en það er för Dana til Dannrerkur. Um 500 e. Kr. kemur fram á eyjunum rnilli Jót- landsskaga og Svíþjóðar harðsnúin víkinga- DAGRENNING 23

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.