Dagrenning - 01.04.1946, Síða 39

Dagrenning - 01.04.1946, Síða 39
íoinu Sigtúnii, ok geiði þai mikit hoí at siðvenju Ásanna; hann eignaðist þar lönd svo vítt, sern hann lét heita Sigtúnir. Hann gaf bústaði hofgoðunum. Njörður bjó at Nóatúnum, en Freyr at Uppsölum, Heim- dallr at Himnabjörgum, Þórr á Þrúðvangi, Baldr á Breiðabliki; öllum fékk hann þeim goða blótstaði." Það er engum blöðum um það að fletta, að Snorri Sturluson er hér að segja frá raunverulegri för stórs hóps manna austan úr Rússlandi og til Danmerkur og Suður-Svíþjóðar. Merkilegt er að veita því athygli, að það er ekki þessi hópur, sem þó er talinn fyrstur koma til' Danmerkur, sem gefur henni það nafn, er síðar festist við landið. Ilins vegar ber stærsti bærinn á Fjóni ennþá nafnið Óðinsvé og sennilegt er, að Fjón hafi í fyrstu verið nefnt Óðinsey eftir Óðni. Danmerkur-nafríið kemur ekki fyrr en all-lörígu síðar, eða með Dans-ættkvíslinni, eins og bent er á hér að framan. Menn mega á engan hátt láta það rugla sig, þó að Óðinn og helztu höfðingjar hans yrðu síðar að guðum í hugum fólksins. Slíkt er algengt með þjóðum, er trúa aðallega á anda framliðinna feðra sinna. Allt til þessa dags á það sér t. d. stað í kaþólsku kirkjunni, að menn séu „teknir í dýrlingatölu“ og er það í rauninni sama og að gera þá að eins konar guðum. Óðinn og Æsir eru alveg áreiðanlega sann- sögulegar persónur, sem á fyrstu eða annarri öld e. Kr. brutust alla leið austan frá Svarta- hafi og til Norðurlanda. Þeir hafa vafalaust verið ein greinin af hinum mikla ísraels- þjóðaflokki, sem þá bjó í Suður-Rússlandi, á Ar-Sareth-svæðinu, og síðar fluttist allur að kalla vestur að sjó og út á Bretlandseyjar. Snorri segir hiklaust, að Óðinn hafi átt „eign- ir stórar" í Tyrklandi. Staðfestir það og þá skoðun, að Óðinn hafi verið af Skýþa þjóð- flokki þeim, er kom sunnan úr Litlu-Asíu. Að Snorri Sturluson er ekki einn um þessa skoðun, hinna fornu sagnritara, sýnir m. a. ágætlega ættartala Ara fróða, skráð af honum sjálfum aftast í íslendingabók. Ef nokkur ættartala í öllum íslendingasögum ætti að vera rétt, þá er það ættartala Ara fróða. Hann hefur skráð hana sjálfur eftir þeim beztu heimildum, sem þá hafa verið til, og vafalaust hafa gevmzt skrifaðar með rúna- letri á skinn eða steintöflur hjá ættarhöfð- ingjunum kynslóð eftir kynslóð. Ari fróði skammar sín sýnilega ekkert fyrir ætt sína, og það hygg ég, að ef hann mætti upp rísa úr gröf sinni, að hann mundi reka á stampinn þá „vísindamenn“ í þessum fræð- um, sem mest hafa revnt að rangsnúa ættar- tölu hans, sem hanri hefur vafalaust haft hinar beztu heimildir fyrir, og vitað að var hár-rétt. Þar sem einmitt þessi merkilega ættartala Ara fróða er eitt órækasta vitnið um það, að margar stærstu og merkustu ættir á Is- landi til forna voru kornnar austan frá Sví- jrjóð og Danmörku og þangað aftur austan úr Skýþíu eða Suður-Rússlandi og Litlu- Asíu, tel ég rétt að setja ættartölu hans hér eins og hún er í íslendingabók. Þar segir: „Þessi eru nöfn langfeðga Ynglinga og Breiðfirðinga: í. Yngví Tyrkjakonungur. 2. Njörður Svíakonungur. 3. Freyr. 4. Fjölnir, sá er dó að Friðfróða. 5. Sveigðir. 6. Vanlandi. 7. Visburr. 8. Dómaldur. g. Dómarr. 10. Dyggvi. 11. Dagur. 12. Alrekur. 13. Agni. 14. Yngvi. DAGRENNING 29

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.