Dagrenning - 01.04.1946, Síða 40
15. Jörundur.
16. Án hinn gamli.
i']. Egill vendilkráka.
18. Óttarr.
19. Aðils að Uppsölum.
20. Eysteinn.
21. Yngvarr.
22. Braut-Önundur.
23. Ingjaldur hinn illráði.
24. Ólafur trételgja.
25. Halfdán hvítbeinn Upplendingakon-
ungur.
26. Goðröður.
27. Ólafur.
28. Helgi.
29. Ingjaldur, dóttursonur Sigurðar Ragn-
arssonar loðbrókar.
30. Ólafur hinn hvíti.
31. Þorstcinn hinn rauði.
32. Ólafur feilan.
33. Þórður gellir.
34. Eyjólfur, er skírður var í elli sinni, þá
er kristni kom til íslands.
35. Þorkell.
36. Gellir.
37. Þorgils,
38. en ek heita Ari.
XIX.
EGAR hinir fornu landnámsmenn á ís-
landi höfðu um hríð notið hins óskoraða
frelsis, og þegar landið tók mjög að byggj-
ast, kom það í ljós, að nauðsynlegt var að
stofna ríki í landinu, svo að allt endaði ekki
hér í innbyrðis deilum og vígaferlum, er
enginn fengi við ráðið. Þá var það, sem
, hinir beztu menn“ íslenzkir tóku sig til og
stofnuðu allsherjarríki á íslandi árið 930.
Virðist svo sem þetta ríki hafi í fyrstu verið
mjög laust í böndunum og verulegir örðug-
leikar á því að rnenn gætu náð rétti sínum
eða lög væru haldin. Kom þetta æ betur í
ljós, er lengra leið frá stofnun Alþingis.
Mátti ekki svo búið standa og þá er það,
sem einn þeirra höfðingja, sem nefndur er
í landvættasögu Snorra í Heimskringlu, —
Þórður gellir úr Breiðafirði — tekur sér fyrir
hendur að korna fram endurbótum á stjórn-
arskipan landsins. Um þetta farast Konráð
Maurer svo orð í bók hans: „Upphaf alls-
herjarríkis á íslandi“:
„Þá er eigi var liðið lengra en hér um
bil 30 ár frá því er hin fyrstu allsherjar-
lög voru samþykkt á íslandi, varð mikil
breyting á stjórnskipan landsins og rnjög
til framfara. Var hún í því fólgin, að
sett var reglubundin þingaskipun og
fylgdu því talsverðar breytingar á tilhög-
un sjálfs þingsins.“
Þessar breytingar voru fyrst og fremst
skipting landsins í fjórðunga með því, sem
þar af leiddi og of langt yrði að rekja hér.
Sá maðurinn, sem mest gekk fram á því
að fá þessari breytingu komið á, var Þórður
gellir úr Breiðafirði og er ástæðan sögð vera
deila mikil út af Blund-Ketilsbrennu svo-
kallaðri, rnilli höfðingfa í Borgarfirði og
Þórðar gellis. Er því ekki að efa að Þórður
gcllir hefur lagt fram rökstuddar tillögur á
Alþingi um breytingar þessar. Var það til-
laga Þórðar, að því er bezt verður séð, að
landinu skyldi skipt í fjórðunga, en hverjum
fjórðungi aftur í þrjú þing, þannig að alls
vrðu rz höfuðþing í landinu. Fjórðungamir
fengu nafn eftir áttum og voru nefndir:
Austfirðingafjórðungur, Norðlendingafjórð-
ungur, Vestfirðingafjórðungur og Sunnlend-
ingafjórðungur. Hverjum fjórðungi var svo
skipt í þrjú þing. Virðist svo sem þau hafi átt
að vera þessi, samkvæmt fvrstu samþykkt Al-
þingis eða tillögum Þórðar gellis um þinga-
skipunina: Að vestan: Þorskaf/arðarþing á
Vestfjörðum, Þórsnesþing urn Breiðafjörð og
Snæfellsnes og Þverárþing um Borgarfjörð.
(Það þing var líka nefnt Þingnesþing.) Að
sunnan: K/alarnesþing á Reykjanesi og austur
30 DAGRENNING