Dagrenning - 01.04.1946, Qupperneq 45
ADAM RUTHERFORD:
Atomsprengjan og spádómarnir.
(Grein þessi er lauslega þýdd úr mán-
aðarritinu „Pyramidology“ — október-
heftinu 1945 — og er hinn enski titill
greinarinnar þar þessi í ísl. þýðingu:
„A T ÓMSPRENGJAN. Hin mikla
þýðing hennar með tilliti til hinna dá-
samlegu efnda á sþádómsdagsetning-
um Pýramidans mikla i heimsstyrjöld
þeirri, sem stóð yfir frá þvi i júli 1914
og þar til i ágúst 1949.“)
jDlRTING og notkun atomsprengjunnar á
fyrstu dögum ágústmánaðar s.l. eru sér-
staklegastaklega þýðingarmiklir atburðir með
tilliti til efndanna á spádómum Pýramidans
mikla.
Eins og tekið er fram í bók minni: „Boð-
skapur Pýramidans mikla“, er síðasta dag-
setningin í pýramidanum, sem sérstaklega
varðar þá heimsstyrjöld, sem nú hefur geis-
að, sýnd í ágústmánuði 1945. Þessi ákveðna
mæling, sem sýnd er í neðanjarðarsalnum
mikla í pýramidanum, er ekki aðeins síðasta
dagsetningin, sem sýnd er í sambandi við
þessa heimsstyrjöld, heldur er hún loka-dag-
setning alls óíriðai á þessari jörð i þeirrí
mynd, sem við höfum þekkt hann allt tií
þessa tíma.
Jafnvel síðustu daga júlímánaðar (1945)
var það venjulegum, mannlegum skilningi of-
raun að írnynda sér, að langar stvrjaldir, eins
og við höfum þekkt þær síðan 1914, rnundu
hverfa úr sögunni fyrir fullt og allt innan
fárra daga!
En fám dögum eftir að hin dulda atorn-
sprengja var birt heiminum, var endir bund-
inn á Japans-stvrjöldina með óvæntum
skyndileik og fullsannað að langar styrjaldir,
háðar á vígvöllum væri frá þessum degi fyrir-
bæri, sem heyrði sögunni til.
Atomsprengjan olli því einnig, að hinir
mjög svo ósennilegu spádómar Pýramidans
mikla, um stríðslokin, rættust bókstaflega á
hinum tiltekna tíma. Af uppfinningu atom-
sprengjunnar leiðir það, að í framtíðinni
mun sérhver alþjóðleg deila verða jöfnuð á
stuttu mtíma með litlum eða engum ófriði
á gamla vísu. Aðeins nokkur hundruð atom-
sprengjur, sem varpað væri, gætu á fám
klukkustundum brotið niður hina öflugustu
þjóð. Það er undursamleg reynsla, að geta
nú bent á efndirnar á spádómum Pýramid-
ans mikla, sem sýndist ónrögulegt að gætu
orðið á svo skömmum tíma, og sjá, að þegar
hinn ákveðni dagur kemur, tekur rás við-
burðanna svo skyndilegri breytingu, að spá-
dómarnir rætast nákvæmlega á hinum til-
tekna tíma.
Hinir guðlegu spádómar (Biblíunnar) gefa
til kynna, að þriðju heimsstyrjöldinni muni
verða ráðið til lykta mjög skyndilega, og að
fyrir guðlega meðalgöngu muni hiúi verða
„kyrkt í fæðingunni“, Jrví að öðrum kosti
nrundi hinum stóru þjóðunr heimsins verða
gjöreytt. Þetta minnir nrann á spádórn Jesú,
sem talinn hefur verið ýktur mjög, en senr
nú sýnist muni ætla að rætast bókstaflega:
DAGRENNING 35