Dagrenning - 01.04.1946, Qupperneq 46
,,Því þá mun verða svo mikil þrenging, að
engin hefur þvílík verið frá uppliafi heirns
allt til þessa, né heldur mun verða. Og ef
dagar þessir yrðu ekki sty ttir, kæmist eng-
inn maður af; en sakir hinna útvöldu munu
þessir dagar verða stvttir.“ Svo stórfengleg
mun verða framkoma eða birting hins guð-
lega máttar, að þjóðir jarðarinnar munu
verða forviða og skilja að í sannleika er það
máttur hins almáttka, sem gegnum lausn og
frelsun ísraels er að framkvæma frelsun
sjálfra þcirra, cins og sagt er fyrir í spádóms-
bók Ezekiels 39. kap. 21.—22.: „Og ég vil
auglýsa dýrð mína meðal þjóðanna og allar
þjóðir skulu sjá refsidóm minn, þann er ég
hef framkvæmt, og hönd mína, er ég hef
á þá lagt. En ísraelsmenn skulu viðurkenna
að ég, Jahve, er Guð þeirra, upp frá þeirn
degi og framvegis."
Ummæli Ezekiels spámanns: „Þá munt
þú (Góg) brjótast fram sem þrumuveður,
koma sem óveðursský til þess að hylja land-
ið,“ benda ótvírætt til þess að reynd verði
stórkostleg loftárás, vafalaust með atom-
sprengjum, en senr Guð mun brjóta gersam-
lega á bak aftur með því að leysa náttúru-
öflin úr læðingi enn frekar en orðið er. „Og
ég vil ganga í dóm við hann (þ. e. Góg) með
drepsótt og blóðsúthelling, með dynjandi
stevpiregni og haglsteinum; eldi og brenni-
steini vil ég rigna láta yfir hann og yfir
margar þjóðir, sem með honum eru. Og ég
vil auglýsa mig dýrlegan og heilagan og gjöra
mig kunnan í augsýn margra þjóða, til þess
að þær viðurkenni að ég er Jahve."
Þannig mun tilraunin til þess að koma
af stað þriðju heimsstyrjöldinni verða ónýtt
og árásarþjóðirnar brotnar á bak aftur. Saga
yfirstandandi tínra hefur þannig sannað
áþreifanlega, að sú tilgáta hefur reynzt rétt,
að tímatals merkingar Neðanjarðarhvolfsins
mikla í pýramidanum táknuðu samfellt
heimsstyrjaldartímabil frá 1914 til 1945.
Ég hef sýnt fram á það í bók minni: „Boð-
skapur Pýramidans mikla“, að tímabilið,
sem gjöreyðing alls hernaðarmáttar Þýzka-
lands fer fram á, er sýnt að vera frá 5. rnarz
1945 til 2. ágúst 1945.* Þetta rættist líka
upp á dag, eins og tímabilið frá 6. júní til
5. nóvember 1944 varð tímabil hinnar hröðu
innrásar og frelsunar Evrópu undan nazism-
anum. Fjóra mánuðina næstu eftir 5. nóv-
ember varð, alveg óvænt, nær því kyrrstaða
á vesturvígstöðvunum allt til 5. marz 1945,
en þá liófst skyndilega lokaþáttur hins síð-
asta niðurbrots með áberandi hernaðarað-
gerðum. Á þeim degi ruddust Bandamenn
fram á ný. Daginn eftir (6. rnarz) féll Köln
og þar næsta dag (7. rnarz) brutumst vér yfir
llín, og upp frá því varð ekkert lát á sókn-
inni þar til þýzka ríkið hrundi og gafst upp
í maímánuði (1945).
•
TjrlNN 2. ágúst 1945, daginn sem Pýra-
midinn mikli bendir á sem lokadag-
sctningu þessa niðurbrots- eða tortímingar-
* Boðskapur Pýramidans mikla, bls. 76. Þar seg-
ir: „Þessir 5 mánuðir, frá 25. jan. 1941 til 25. júní
1941, eru þannig nákvæmlega samkvæmt spámáli
pýramidans, sá tími, er öfl þau taka að starfa, sem
valda straumhvörfum í lieimsstyrjöldinni, og nú eru
að ráða niðurlögum öxulríkjanna. Hve lengi varir
þetta hrun? Eins og vér höfum séð, er lækkunin
niður að útgangi neðanjarðarsalsins mikla 41 þumh,
sem þýðir 41 mánuð, þrítugnættan, sem sé 1230
daga, sem, taldir frá 5 mánaða tímabilinu, 25. janúar
til 2;. júní 1941, flytja oss að 5 mánaða tímabilinu,
7. júní til 5. nóvember 1944, sem táknar mjög vel
útgöngu og frelsun Evrópu úr gröf nazista harð-
stjórnarinnar, og að nazistarnir voru síðan hraktir
aftur inn í bæli sitt (Þýzkaland). Auk þess liggur
gólf salarins á þessum stað 9 þumlungum neðar en
útgangurinn og komum vér þá að lokum að tíma-
bili 9 mánuðum síðar, þ. e. frá 4. eða 5. marz til
1. eða 2. ágúst 1945, en vér verðum að ætla, að hið
mikla nazistaveidi verði í síðasta lagi þá úr sögunni."
(Leturbr. mín. J. G.)
36 DAGRENNING