Dagrenning - 01.04.1946, Síða 52

Dagrenning - 01.04.1946, Síða 52
Soviet-Rússland, eins og ríki þessi heita á nútíðar máli. Merkur lærdómsmaður í þessurn fræðum lrefur, í einni af bókum sínum, sagt: „Þýðingarmesti þáttur þessa „tímabils liinna síðustu úrslita" mun byr/a, þegar mönnum virðist svo sem nazisminn hafi verið sigraður. Það er nú orðið kunnara en frá þurfi að segja, að þegar á þeirri ráðstefnu, sem gerði út um örlög nazismans og Þýzkalands — Potsdam ráðstefnunni, sem lauk 2. ágúst 1945, kom til fyrsta alvarlega ágreiningsins milli Sovietríkjanna og Engilsaxa. Kröfur Rússa voru svo óheyrilegar, að ekkert viðlit var að ganga að þeim fyrir Breta og Banda- ríkjamenn og eina leiðin til þess að hindra að Rússar glevptu í einu bæði alla Asíu og alla Evrópu var að opinbera það leyndar- mál, að engilsaxnesku þjóðirnar hefðu leyst kjarnorkuna úr læðingi og gert sér slíkt vopn, að ckkert fengi við því staðist. Þegar Stalin var tilkynnt þetta, varð liann „lasinn“ urn skeið og dró sig í hlé frá störf- um þar til í desembermánuði s.l. Potsdam- ráðstefnan var síðasta ráðstefna „hinna þriggja stóru“ og engin ráðstefna þeirra mun framar haldin verða. Utanríkisráðherramir hafa verið látnir korna sarnan til málamynda tvisvar, en allt þeirra samstarf hefur farið í hund og kött. Á þingi „Hinna sameinuðu þjóða“ varð ekki samkomulag um neitt, sem rnáli skiptir, og á fundum í „Örvggisráðinu“ í London gekk allt með ósköpum. Rússar kærðu Breta opin- berlega, bæði út af Grikklandsmálunum og Indónesíu. Blöð kommúnista út um heim hafa síðan birt ákæruræðu sovietfulltrúans, Manuilskis, á hendur Bretum, undir fyrir- sögninni: „Stríð Breta gegn Indónesíu." Og að lokum notaði svo aðalfulltrúi Rússa,'Vish- insky, neitunarvald Rússa í Öryggisráðinu til þess að koma í veg fyrir samþykkt ráðs- ins varðandi Libanon og Sýrland. Nú er Öryggisráðið enn komið á fund í New York. Þar mætir hvorki utanríkisráð- herra Breta né Rússa, heldur staðgenglar þeirra. Strax á fyrsta fundinum kom til alvar- legra árekstra út af íran, sem vonlegt var. Og nú hefur fulltrúi Rússa „gengið af fundi“ og neitar að taka þátt í fundum ráðsins. En íransdeilan verður ekki á þessu stigi tilefni ófriðar. Rússar munu slá undan um sinn og bíða betri tírna. Indland er nógu eldfimt, þegar að því keniur að í þarf að kveikja. III. AÐ er nú orðið greindegt, að Rússar ætl- uðu að snúa síðustu heimsstyrjöld upp í kommúnistabyltingu, sem þá yrði fyrst og fremst beint gegn Bretum, sem alls staðar eiga einhverra „hagsmuna að gæta“. Rússar stóðu vel að vígi. Þeir höfðu tugi milljóna manna undir vopnum og þjóðirnar, sem naz- istar höfðu kúgað, litu á þá sem eins konar „frelsara". Þeir heimtuðu því á Potsdam- ráðstefnunni miklu meiri áhrif en samrýmzt gat hagsmunum Breta og Bandaríkjamanna, og hótuðu að fylgja þeim kröfum sínum fram með vopnavaldi. En þá gripu hinir til atómsprengjunnar eins og fyrr er sagt. En mótleikur Rússa er nú að koma í ljós. Meðan Rússar ráða ekki yfir atómorkunni til hernaðar nota þeir tímann til þess að blása að byltingarglæðunum um alla Asíu. Þeir standa á bak við kínversku kommúnist- ana, sem hafa um helming alls Kína á valdi sínu. Þeir magna andstöðuna í Indónesíu eins og greinilega hefur komið fram síðan þeir kærðu Breta fyrir Ötyggisráðinu. Rúss- neskir kafbátar munu flytja vopn til Indónesa. Þeir hafa minnkað mjög stuðning sinn við kommúnista í Indlandi, en sri'ðja í þess stað af alefli Nehru, annan aðalleiðtoga Kongress- flokksins, en hann er sá, allra indverskra 42 DAGRENNING S

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.