Dagrenning - 01.04.1946, Qupperneq 57
Er þetta satt?
(Undir þessari fyrirsögn mun „Dagrenn-
ing“ flytja stuttar frásagnir um ýmsa atburði,
sem ótrúlegir þykja.)
Vitrun ábótans.
í frásögninni um vitrun þá, er hér getur,
er stuðst við frásögn enskrar bókar, sem
lreitir: „Great Prophecies about The War“.
Sagan gerist í Póllandi og er á þessa leið:
Andrés Bobola var af göfugum pólskum ætt-
um. Hann var fæddur árið 1594 og dó píslar-
vættisdauða í Kósakkauppreisninni í Pól-
landi árið 1657.
Andrés Bobola er talinn sérstaklega merki-
legur dýrlingur og er hans einkum getið í
sambandi við merkilega fyrirburði og krafta-
verk.
Það var árið 1819, eða 101 ári áður en
fyrri heimsstyrjöldinni lauk, að Bobola birt-
ist ábótanum í klaustrinu í Vilna, sem þá
var pólsk borg. Þessi ábóti hét Korzeniecki
og var að sjálfsögðu alltaf nefndur „Faðir
Korzeniecki" eins og kaþólskra manna er
siður. Sagan segir, að faðir Korzeniecki hafi
farið á fætur nótt eina til þess að biðjast
f\'rir. Hann bað lengi og innilega fyrir hinu
hrjáða og sundurtætta föðurlandi sínu, og
beindi bænurn sínum sérstaklega til vernd-
ardýrlingsins Bobola. Er hann hafði lokið
bæninni, gekk hann út að glugganum í lier-
berginu, þar sem liann hafði beðist fyrir,
og opnaði gluggann og horfði út um hann
stundarkorn. Hann lokaði svo glugganum
aftur. En þegar hann snéri sér frá gluggan-
urn, til þess að ganga inn í svefnherbergi
sitt, sá hann sér til mikillar undrunar mann
sitja við borð innar í herberginu. Maður
þessi var í Jesúítabúningi, og er faðir Korz-
eniecki kemur nær honum, segir ókunni
maðurinn:
„Hér er ég, faðir Korzeniecki! Ég er sá,
sem þú beindir bæn þinni til. Opnaðu
gluggann aftur og þú skalt sjá hluti, sem
þú hefur aldrei séð fyrr.“
Titrandi af hræðslu opnaði ábótinn glugg-
ann aftur og er hann leit út var litli klaustur-
garðurinn með múrveggjunum horfinn, en
í hans stað sá ábótinn út yfir sléttu, sem
honum virtist endalaus.
Þá mælti Bobola:
„Þessi slétta, sem þú sérð breiðast út
fyrir framan þig, er sléttan hjá Pinzk,
þar sem ég hlaut þann heiður að vera
líflátinn fyrir trú mína á Jesúm Krist.“
Þegar Bobola fór að tala, hafði ábótinn
litið við og horfði á hann nreðan hann tal-
aði.
Bobola liélt áfram:
„En líttu nú aftur út um glugg-
ann, og þá munt þú fá að sjá það, sem
þig nú langar mest til að vita.“
Faðir Korzeniecki leit nú aftur út um
gluggann og undrun hans verður ekki með
orðum lýst, er hann sér að öll hin mikla
slétta er alþakin óteljandi hersveitum. Hann
sér þar rússneskar, tyrkneskar, franskar, ensk-
ar, austurríkskar og þýzkar hersveitir og auk
þess hersveitir frá mörgum öðrum þjóðurn,
og var háð þama hin grimmilegasta orusta.
Bobola hélt enn áfrarn:
„Þegar ófriðurinn, sem þú sérð Jrarna,
endar, og friður verður saminn, mun
Pólland verða endurreist og þá mun ég
verða viðurkenndur sem einn af fremstu
verndardýrhngum Póllands.“
Faðir Korzeniecki, sem nú var farinn nokk-
uð að jafna sig eftir hina miklu geðshrær-
ingu, sem hann hafði komizt í, sá strax, að
þótt hann segði frá þessum merkilega at-
DAG.RENN I NG 47