Ský - 01.02.2008, Page 10
10 ský | 1. tbl. 2008
Fyrsta hljómsveitin
Þegar Ragnar byrjaði að spila á trommur með vinum sínum
Sigurði Þ. Guðmundssyni, Andrési Ingólfssyni og fleiri
skólafélögum í Ingimarsskóla 1946 dreymdi hann um að verða
frægur tónlistarmaður. Sumarið 1950 hélt RSD-tríóið í sína
fyrstu og einu hljómleikaferð. Vinirnir Raggi, Siggi kanslari og
Drési töldu sig færa í flestan sjó. RSD tríóið spilaði á einu balli
norður á landi en strákarnir voru miklu spenntari fyrir því að
dansa sjálfir en að spila fyrir dansi. Raggi og Siggi skildu Drésa
eftir einan á sviðinu og létu hann spila á meðan þeir brugðu sér
út á gólf til að dansa við sætu stelpurnar í plássinu. Þetta líkaði
heimamönnum illa og upphófust hávær mótmæli því það þótti
heldur þunnskipað á sviðinu. Eftir ballið voru þremenningarnir
heppnir að sleppa óbrotnir heim til Reykjavíkur á biluðum bíl.
Tónlistarheimili
Ragnar á ekki langt að sækja tónlistina. Bjarni Einar Böðvarsson
faðir hans var forgöngumaður um stofnun Félags íslenskra
hljómlistarmanna og fyrsti formaður þess. Hann var þekktur
harmoniku- og kontrabassaleikari en spilaði á fleiri hljóðfæri og
stjórnaði eigin hljómsveit. Bjarni starfaði í Hljómsveit Útvarpsins
og var í hópi fastráðinna starfsmanna á fyrstu árum þess. Hann
hélt úti vinsælum útvarpsþáttum sem landsmenn lágu yfir því
Hljómsveit Bjarna Bö flutti léttleikandi dægurtónlist við íslenska
texta sem hlustendur lögðu sig fram um að læra. Lára Ingibjörg
Magnúsdóttir, móðir Ragnars, kom oft fram í þessum þáttum
ásamt fleiri söngvurum. Hún frumflutti t.d. lagið Vor við sæinn
(Bjartar vonir vakna) eftir Oddgeir Kristjánsson í Útvarpinu
Svona var Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar skipuð í upphafi
haustið 15. Fremstir eru Grettir Björnsson og Ragnar, í
miðið Árni Scheving og Sigurður Þ. Guðmundsson og aftast
Guðmundur Steingrímsson og Ragnar Páll.
Raggi Bjarna