Dagrenning - 01.02.1948, Page 42

Dagrenning - 01.02.1948, Page 42
að bíða, að engil-saxnesk siðmenning nær yfir alla jörðina. • Hinn ósigrandi floti Spánverja og Napo- leon með allt meginland Evrópu að bak- lijarli féllu á steinríki ísraels og moluðust sundur. Á árunurn 1914—1918 brotnaði Þýzkaland á þessu sama ríki. Árið 1940 brotnuðu Mússólini og ítalir á þessu sama ríki. Árið 1940 féll Hitler á þetta ríki og molaðist sundur. Eitt af því, sem Drottinn Jesú sagði um ríki þetta, er sérstaklega athyglisvert. Það veitir mér algert öryggi, þegar að syrtir, og er samhljóða spádómi Daníels. Hann sagði: „Séihvei sá, er íellui á stein þennan, skal sundurmolast, og séihvein þann, ei hann fellui yfii, skal hann í duft mala.“ Orðrétt úr grísku er þetta: „Hann skal geia hann að dufti eins og hismi því, sem sópað ei af gólfi þieskihússins.“ Ef þér vitið hvað þetta þýðir í raun og veru; ef duft þetta hefir setzt í hár yðar, augnabrý'r, nef og eyru, þá vitið þér, hve gersamlega þessi ríki verða að engu gerð. í 2. kap. Dan. er komist þannig að orði: .,eins og sáðir á sumarláfa“. Gamla testamentið var þýtt á grísku Nýja testamentisins og er sú þýðing nefnd Sjö- tíumannaþýðingin, og gríski textinn hjá Daníel er orðréttur eins og gríski textinn á orðum Drottins í Matth. 21., 44.: „skal hann í duft mala“. Ég er livprki kvíðinn né áhyggjufullur vegna úrslitastundarinnar. Spádómurinn er skýlaus um það efni. Mér er það aðal áhuga- og umhugsunarefni, að þér verðið meðal þeirra, sem erfa ríkið; einn hinna „Jifandi steina“ á degi sigursins og verðið nálægur Drottni sem „konungur og prestur", þegar aðal steinninn er settur á sinn stað. Mörgum steinum, sem fluttir voru til Pýramidans mikla við Gizeh, varð að hafna og lienda í úrgangshauginn, vegna þess að þeir voru ekki höggnir svo, að hæfði gerð höfuðsteinsins. Þannig fór um Gyðingana. Þeir vildu ekki veita Drottni viðtöku og laga líferni sitt eftir lögum hans. Látum alla nútímamenn vora verða til- höggna á þann hátt, að vér getum orðið í líkingu við meistarann og búnir til að verða honum gagnlegir. Það krefst kærleika, auð- mýktar og hlýðni við lög líkisins. Það krefst þjáninga og fórnar af tíma vorum, styrk- leika og fjármunum. En ef vér þjáumst með honum, þá ríkjum vér einnig með honum. Vér bíðum með eftirvæntingu eftir þeirri dýrðlegu stjórn, sem lýðum hans hlotnast, er konungurinn tekur við stjórn ríkisins. Því nær lionum sem vér komumst nú, því nær honum verðum vér þá. (Grein þessi er þýdd úr ameríska tímaritínu THE KINGDOM DIGEST, desemberheftínu 1947. Höfundurinn er doktor í guðfræði, og á heima í Los Angeles í Californiu. Hann er mjög þekktur sem rithöfundur og ræðumaður í ísrael-Britain-hreyfingu Vesturheims. — Þýðinguna gerði Kristmundur Þor- leifsson. — J. G.) Leiðrétting. Sú leiða villa hefir slæðzt inn í grein þá, er ég birti í 11. heftí Dagrenmngar um næsta árs útgáfu ritsins, að „ársfjórðungsgjaldið yrði innheimt með fvrsta heftínu, sem út kemur í febrúarbyrjun o. s. frv.“ Vil ég hér með leiðrétta þessa villu, því að nú í ár verður nákvæmlega sama fyrirkomulag lraft á um greiðslu ritsins og áður, að árgjaldið • er greitt fyTÍrfram með póstkröfu, er fylgir fyrsta heftí ársins. J. G. 36 DAGRENN I NG

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.