Dagrenning - 01.02.1948, Page 45

Dagrenning - 01.02.1948, Page 45
GO C Q* C Hr ci OPNA SKRlNIÐ 1 KONUN GSSALNUM ° c ■o o “h *** þá úr liinni miklu yfin'ofancli hættu, sem þeir lröfðu verið í árum saman, meðan sam- vinnan var milli Hitlers og Stalins. Hinn 21. desember 1941 fór Churchill til Bandaríkjanna til þess að treysta sambandið milli Breta og Bandaríkjanna. Þá hófst sú samvinna, sem aldrei framar slitnar milli þessara bræðraþjóða. — (Sjá Dagrenningu, bls. 77-97.) Þegar vér nú \itum þetta og skiljum, er ekki nema eðlilegt að spurt sé: Hvers má þá vænta þessa merkisdaga á árinu 1948, sem nákvæmlega svara til merkisdaganna 25. júní og 21. desember 1941? Því mun ég leitast við að svara mjög rækilega í næsta hefti Dag- renningar. En þeim, sem vilja reyna að at- liuga málið sjálfir eftir þeim gögnum, sem fyrir eru nú, skal bent á þetta: Ytri-skrín-dagsetningarnar svokölluðu, þ. e. 25. júní 1941 og 11. nóvember 1948, virð- ast að ýmsu leyti eiga saman og mætti því búast við áiíka atburðum í kringum 11. nóv. 1948 og þeim, er gerðust í júní 1941. — Hinar svokölluðu innri-skrín-dagsetningar, þ. e. 21. des. 1941 og 17. maí 1948, virðast aftur á móti eiga saman þannig, að þeim undirbúningi, sem hófst 21. des. 1941, yrði að fullu lokið 1948. Það var samstarf hinna engilsaxnesku stórvelda, sem hófst 21. des. 1941, og ýmislegt bendir einnig til þess nú, að einmitt í maímánuði í vor muni til fulln- ustu verða gengið frá framtíðarsamstarfi þess- ara þjóða og annarra frændþjóða þeirra. Hin svonefnda Marshall-áætlun er einn liðurinn í því að tengja þessar þjóðir saman og nú hefir utanríkisráðherra Breta, Bevin, gerzt talsmaður fyrir enn nánari samvinnu ýmsra Evrópuþjóða gegn útþenslu kommúnismans, og auðvitað þýðir slík samvinna bandalag í styrjöld, ef hún skyldi skella á. Nú þegar atburðarásin er að verða svo skýr, að greinilega má sjá, hvert stefnir, er athyglisvert að íhuga eftirfarandi ummæli eins hins þekktasta núlifandi pýramidafræð- ings, sem hann viðhafði fyrir mörgum ár- um. Hann segir: „Tímabil hins mikla bandalags „þjóða Guðs“ (þ. e. engilsaxneskra og norrænna þjóða), sem á að undirbúa hina nýju heimsskipan, á því að hefjast 20. des- ember 1941 og þeim undirbúningi að verða lokið 16. maí 1948.“ DAGRENN I NG 39

x

Dagrenning

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.