Dagrenning - 01.10.1954, Qupperneq 10
tækjum þess, og við aðalblað flokksins,
Tímann.“ (Dagr. 42. h. bls. 29.)
Menn skulu minnast þess, að þetta var
ritað löngu fyrir kosningarnar 1955.
Þessi spá hefur nú rætzt svo greinilega
sem verða má. Fylgi Framsóknarflokks-
ins í kaupstaðakjördæmunum er í mik-
illi hættu. Innan flokksins starfa á laun
hin nýkommúnistísku öfl, sem munu
ríra meira og meira framsóknarfylgið
meðan menn átta sig ekki á öllum að-
stæðum nægilega vel. Greinilegast
kom þetta fram í þeim tveim kaupstöð-
um, þar sem Framsóknarflokkurinn
hefur átt verulegu fylgi að fagna,
Reykjavík og Akureyri. Á Akureyri
hrapar fylgi Framsóknar úr 1071 at-
kvæði 1949, í 787 atkvæði 1953, eða h.
u. b. um 200 atkvæði. Fylgi kommún-
ista minnkar þar hins vegar ekki nema
um 64 atkvæði. Fylgi Alþýðuflokksins
minnkaði ekki og fylgi Sjálfstæðisflokks-
ins óx verulega frá 1949.
Atkvæðatala Þjóðvarnarflokksins á
Akureyri varð 270 eða sem næst alveg
tap Framsóknar og kommúnista saman-
lagt. Hér hafa nýkommúnistarnir því
greinilega verið að verki.
Sé litið til Reykjavíkur verður hið
sama uppi á teningnum. Þar tapar
Framsókn nær 400 atkvæðum, en bæði
Alþýðuflokkur og Sjálfstæðisflokkur
bæta við sig atkvæðum. Aðalfylgi Þjóð-
varnarflokksins þar, kemur þó frá komm-
únistum, sem tapa í Reykjavík 1429 at-
kvæðum frá því 1949, þrátt fyrir hina
miklu kjósendafjölgun í Reykjavík. —
Og í Reykjavík urðu svo þjóðvarnar-
menn til að fella þingmann Framsóknar
í því kjördæmi, og tryggja sér þar móð-
urskip. Vel má svo fara, þegar Framsókn-
armenn í kaupstöðunum sjá, að at-
kvæði þeirra þar koma flokknum að
engu gagni, að ýmsir þeirra freistist þá
til stuðnings við Þjóðvarnarflokkinn
fremur en kommúnista, vegna haturs
þess, sem víða er milli Sjálfstæðis og
Framsóknar í kaupstöðum landsins.
En þetta er þó ekki hættulegast Fram-
sóknarflokknum. Hitt er honum rniklu
hættulegra, að nýkommúnisminn hefur
stungið sér óþægilega niður innan
flokksins einnig í sveitakjördæmunum,
og það er einmitt þar sem Þjóðvarnar-
flokkurinn getur launað liðveizluna og
goldið fósturlaunin, þeim sem þau eiga.
í eftirtöldum kjördæmum er mis-
munurinn á fylgi Sjálfstæðisflokksins
og Framsóknar þessi:
Mýrasýsla ................ 13 atkv.
Dalasýsla ................ 49 —
V.-ísaf jarðarsýsla .... 29 —
V.-Húnavatnssýsla .... 28 —
V.-Skaftafellsýsla .... 47 —
Þingmenn þessara kjördæma tilheyra
nú allir Framsóknarflokknum.
í Norður-Múlasýslu þarf Framsókn
ekki að tapa nema um 70 atkvæðum til
þess að Sjálfstæðismenn nái öðru þing-
sætinu þar, og í því kjördæmi fengu
þjóðvarnarmenn 41 atkvæði, án þess að
hafa þar frambjóðanda. Líklegt er, ef
frambjóðandaskipti verða þar af hálfu
Framsóknar, og þjóðvarnarmenn bjóða
þar fram næst, að henni tapist þar ann-
að þingsætið.
í engu þessara kjördæma hafði þjóð-
varnarflokkurinn menn í kjöri í síð-
ustu kosningum, en hann fékk slangur
atkvæða í þeirn öllum á landlista sinn,
og bjóði hann þar fram næst er ekkert
líklegra en að þau tapist flest yfir til
Sjálfstæðisflokksins.
En mál þetta hefur einnig aðra hlið,
sem ekki er síður vert að gefa gaum.
8 DAGRENNING