Dagrenning - 01.08.1956, Page 4
víns eða annars áfengs drykkjar. Jesús var einnig Nazarei. Og í Postula-
sögunni kemur það greinilega fram, að fylgjendur hans hafa verið kall-
aðir „nazarear“ áður en farið var að kalla þá kristna. I 24. kap. Postula-
sögunnar, þar sem sendinefnd Gyðinga ákærir Pál postula fyrir Felix
landstjóra, segir ákærandinn um Pál, að hann sé „forsprakki villuflokks
Nazareanna.“ 1 Mattheusarguðspjalli er sagt að Jósef hafi fengið bend-
ingu um það í draumi að setjast að í Nazaret, „til þess að það skyldi
rætazt, sem spámennirnir hafa sagt: Nazarei skal hann kallast.“
Samson var dómari í ísrael í tuttugu ár. Líf hans var sífelld barátta
við Filista. Þjóð hans fylgdi honum ekki. Hún skildi hann ekki en batt
hann og afhenti höfðingjum Filista til þess þeir gætu gert við hann, það sem
þeim sýndist. Hann var uppreisnarforinginn, sem um ekkert hirti annað en
það, að koma Filistum á kné. Þjóð hans skildi ekki, að hann var „að byrja
að frelsa Israel af hendi Filista.“ Hennar svar var þetta: „Veizt þú ekki
að Filistar drottna yfir oss?“ Og þeir „bundu hann með tveimur reipum“
og aflientu hann Filistum. Hann varð því að vinna verk sitt fyrir fsrael
aleinn, og yfirgefinn af þjóð sinni, eins og svo margir þjónar Drottins
fyrr og síðar.
Jesú frá Nazaret mætti ekki ósvipuðum örlögum. Hann flutti þjóð
sinni fagnaðarboðskapinn um ríki Guðs. Hún vildi ekki á hann hlusta.
Þeir „bundu hann“ einnig og „framseldu hann Pílatusi landstjóra“ —
— erlendum höfðingja, sem drottnaði yfir þjóðinni, og kröfðust þess að
hann yrði krossfestur.
Þegar litið er til skaplyndis Samsonar og framkomu hans allrar fyrr og
síðar, er greinilegt að hann hefði ekki getað kosið sér æskilegri ævilok
en hann fékk — að fyrirfara í einu átaki öllum höfðingjum Filista. Hin
síðasta bæn hans til Drottins ber þess líka gleggstan vott: „Herra Drott-
inn! minstu mín; styrk mig nú Guð! í þetta eina sinn!“ Og Guð bæn-
heyrði hann. — Sú bænheyrsla varð upphafið að frelsun Israelslýðs frá
áþján Filista — og lokaþátturinn í hruni ríkis Filista.
Samson hvílir í Gasa — þar sem nú eru mestar viðsjár milli Egypta
og Israels — þar er gröf hans enn í dag.
☆
Myndin á kápusíðunni er af einu frægasta málverki, sem til er af þeim
atburði, er Samson glímdi við ljónið. Sú glíma var fyrsta bendingin til
hans um það, að Drottinn hefði gætt hann óvenjulegum styrkleik og út-
valið hann til ákveðins starfs.
>-----------------------------------------------------------------------------
2 DAGRENNING