Dagrenning - 01.08.1956, Side 17
Kort þetta sýnir „gamla heiminn" og skiptingu hans milli „Konungsins norð-
ur£rá“ (Rússa) og „Konungsins suðurfrá" (Breta og Frakka).
Þegar „tímar endalokanna“ hófust, 1914, réðu Bretar og Frakkar („Kon-
ungurinn suðurfrá") yfir öllum þjóðum sunnan línunnar, sem dregin er á kort-
ið. Þá réðu Rússar aðeins yfir Rússlandi og Siberíu, en nú hafa þeir þanið
veldi sitt yfir svo að kalla allt svæðið norðan línunnar, nema yfir Japanseyj-
ar og Norðurlönd, sem þeir munu innlima síðar. En auk þess hefur „Kon-
ungurinn norðurfrá“ (Rússar) „brotizt inn í suðurlandið“, þ. e. náð þar þeirri
fótfestu að vafasamt er að það takist að hrekja hann þaðan aftur. Spádómur-
inn virðist benda til þess, að Bretar og Frakkar muni fyrst í stað, eiga einir við
Egypta, Arabaríkin og rússneska „sjálfboðalið“, en Bandaríkin komi þeim
síðar til hjálpar með árás á Kína („fregnir frá austri“) og Norður-Rússland
(„fregnir frá norðri“) og þá muni „Konungurinn norðurfrá“ (Rússar) „í mik-
illi bræði hefja ferð sína, til þess að eyða og tortíma mörgum“ — þ. e. hefja
kjarnorku- eða vetnisstyrjöld. En þá „mun hann („Konungurinn norðurfrá“)
undir lok líða og enginn hjálpa honum.“ (Dan. 11. 44—45.)
DAGRENNING 15