Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 18

Dagrenning - 01.08.1956, Qupperneq 18
er í viðskiptum þjóðanna, þar sem „báðir konungarnir muni hafa illt í hyggju og tala flærarsamlega að hinu sama borði.“ Hann segir frá því, að „konungurinn norðurfrá" muni koma fram áformum sínum,“ og að hann muni „á ákveðnum tíma aftur brjótast inn í suðurlandið,“ m. ö. o. vinna sér þar hylli með áróðri og fégjöfum (tæknilegri aðstoð o. fl. þ. h.) Hann segir ennfremur, að þessi för muni ekki takast vel fyrir „konunginum norður- frá,“ því að „skip frá Kýpur muni koma á móti honum“ — og er þessi setn- ing ákaflega athyglisverð einmitt nú, þegar Kýpur er orðin svo til eina herstöð Breta við Miðjarðarhaf. En það sem athyglisverðast er við spádóm þennan eins og nú horfir er það, sem þar er sagt um Egyptaland. Þar segir: „Þegar að ENDALOKUNUM líður mun konungurinn suður frá (þ. e. Bretar) heyja (hefja) stríð við hann (þ. e. „konunginn norðurfrá“) og kon- ungurinn norðurfrá mun þeysast á móti honum með vögnum, riddurum og mörgum skipum (haf- og loftskipum?) og brjótast inn í lönd hans (þ. e. Breta) og vaða yfir þau og geysast áfram.“ -----Og hann, „konungurinn norðurfrá" (þ. e. Rússar) munu rétta hönd sína út yfir löndin og Egypta- land mun ekki komast undan. Hann (þ. e. Rússar eða umboðsmenn þeirra) munu kasta eign sinni á FJÁRSJÓÐU EGYPTALANDS AF GULLI OG SILFRI, og á allar gersemar þess, og Lybyumenn (Norður-Afríkubúar) og Blálendingar (Etiopiumenn) munu vera í för með honum.“ Einn af „fjársjóðum“ Egyptalands, „af gulli og silfri“ er Súez-skurður- inn, sem Rússar hafa nú „kastað eign sinni á“ með aðstoð Nassers. Nú er það þessi síðasti þáttur spádómsins, sem er að hefjast. „Konung- urinn suðurfrá“ (Bretar og Frakkar) hefur haldið inn í Miðjarðarhaf og til Kýpur með fjölda „skipa“ (haf- og loftskipa) og „konungurinn norðurfrá“ hefur „rétt hönd sína út yfir löndin“ og „kastað eign sinni“ á (þjóðnýtt) Súez-skurðinn — þýðingarmesta „fjársjóð af gulli og silfri“, sem Egypta- land geymir. Greinilegar er tæpast hægt að spá um þessa hluti ca. 2500 árum áður en þeir gerast. Af þessum spádómi, eins og fleirum, er glöggt að nú er komið að „enda- lokunum,“ sem Daníel talar svo oft um. Þau endalok verða með orustunni milli „konungsins norðurfrá“, — Rússa og fylgiríkja þeirra — og „konungs- ins suðurfrá“ — Breta og Frakka og fylgiríkja þeirra. Þessi átök eru nú að byrja við Miðjarðarhaf. Enginn þarf að láta sér til hugar koma að þó deila sú, sem nú er komin upp út af Súezskurðinum, verði á einhvem hátt jöfnuð til bráðabirgða séu þar með öll ágreinings- málin suður þar úr sögunni. Þetta er aðeins upphafið. Bandaríkamenn munu reyna að koma í veg fyrir hernaðarárekstra, þar til eftir kosningarnar 16 DAGRENNING
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagrenning

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.