Dagrenning - 01.08.1956, Side 19

Dagrenning - 01.08.1956, Side 19
---------------------------------------------------------------------------------- í Bandaríkjunum nú í haust — í nóvember. En Bretar og Frakkar sjá nú, að þeir halda engum völdum lengur á þessum slóðum, sem þeim eru þó svo mikilsverðar, nema þeir geti stöðvað útþenslu kommúnismans í Afríku og Suðvestur-Asíu. Hér er á ferðinni einn þáttur hins „kalda stríðs“ við Rússa, sem nú eru að ná öllum völdum á þessum hjara heims í sínar hend- ur. Loksins virðast Bretar og Frakkar hafa séð, að sú stefna sem fylgt hefir verið í utanríkismálum þeirra að undanförnu og það, að hlaða sífellt undir Sameinuðu þjóðirnar, leiðir til hruns fyrir þá innan mjög skamms tíma, og það verða fyrst Rússar — og e. t. v. síðar Kínverjar og Indverjar — sem lönd þeirra erfa. Allt hjalið um „frelsi og sjálfstæði" þessara frumstæðu þjóðflokka, er svo barnalegt og heimskulegt að engu tali tekur. Fkki ein einasta þjóð, hversu vel menntuð og framtakssöm sem hún er, fær haldið frelsi og sjálfstæði, ef hún ánetjast kommúnismanum, eða fylgistefnum hans, hverju- nafni sem þær nefnast. Sovietskipulagið er fullkomnasta þrælaskipu- lag sem nokkru sinni hefir veríð upphugsað á þessarí jörð. Nú er svo að sjá sem Bretar ætli ekki lengur að láta Bandaríkin reita af sér fjarðrimar til ágóða fyrir Sovietstjórnina annarsvegar og alþjóðaauð- valdið hinsvegar, og ætli sér að leggja einir til úrslitaomstunnar, ef svo vill skipast. Næsti þátturinn á sviði heimsstjómmálanna getur vel orðið sá, að Bret- ar og Frakkar verði einir að berjast við Sovietríkin og Arabaríkin, og að Bandaríkin sitji hjá sem hlutlaus. Þau voru „hlutlaus“ í byrjun fyrstu og annarrar heimsstyrjaldarinnar. Og í lok síðari heimsstyrjaldarinnar STUDDU ÞAU FYRST OG FREMST STEFNU RÚSSA, en börðust gegn sjónarmiðum Breta og Frakka í málefnum Evrópu. Sú stefna þeirra varð Evrópu dýr. Hún kostaði það, að öll Austur-Evrópa og hálft Þýzka- land var afhent Sovétríkjunum. En hvemig sem málum skipast nú á næstunni er það víst, að mjög bráð- lega dregur til mikilla tíðinda við Miðjarðarhafið. DAGRENNING 17

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.